Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
23
^nabord
Barnastóll
J<r 647,-
Lending Rusts á Rauða torginu:
Sovésk hermálayf irvöld
gagnrýnd fyrir agaleysi
Yfirmenn ýkja frammistöðu sína, segir dagblað hersins
Mosvku, Bonn, Reuter.
YFIRMÖNNUM sovéska her-
aflans var í gær sagt að laga
alvarlaga galla á vörnum lands-
ins, sem komu í ljós þegar
vestur-þýski flugmaðurinn Mat-
hias Rust flaug frá Helsinki til
Moskvu á fimmtudag í síðustu
viku. Willy Brandt, fyrrum kansl-
ari Vestur-Þýskalands, sagði í
ræðu í sambandsþinginu í Bonn
í gær að Rust hefði unnið mikið
afrek þegar hann lenti á Rauða
torginu.
Ummæli Brandts voru útúrdúr
úr ræðu um afvopnunarmál. Sagði
Brandt að ekki mætti draga þá
ályktun af flugi Rusts að Sovét-
menn séu meinlausir. „Ég vil ekki
lofsyngja ofdirfsku unga mannsins,
en ég get ekki leynt virðingu minni
fyrir þessu glæsilega afreki, þótt
það hafi verið óðs manns æði,“
sagði Brandt.
Hlátur Kohls
Vöktu ummæli Brandts kátínu
og beindust kvimyndatökuvélar
vestur-þýska sjónvarpsins að Helm-
ut Kohl kanslara, sem hló innilega.
í dagblaði sovéska hersins,
Krasnaya Zvezda(Rauðu stjöm-
unni), sagði að vamarmálaráðuney-
tið hefði vanrækt þá skyldu að verja
landamæri Sovétríkjanna á víta-
verðan hátt fyrst ekki hefði tekist
að stöðva vél Rusts.
Rust flaug 800 km innan sové-
skrar lofthelgi og lenti að lokum á
Rauða torginu. Sergei Sokolov
vamarmálaráðherra og Alexander
Koldunov yfirmanni loftvama var
vikið úr starfi vegna þessa.
Sagði í blaðinu að augljósir gall-
ar hefðu komið í ljós og þyrfti
land-, sjó- og flugher að leggjast á
eitt um að bæta þar úr: „Herinn
þarf að vera viðbúinn, efla þarf
árvekni og stórauka aga í hemum."
Enn fremur kom fram að fyrir
raunsæis sakir þyrfti að horfast í
augu við að yfirmenn í hemum
gerðu sér ekki grein fyrir ábyrgð
sinni og skyldum. Sagði að yfir-
menn gerðu oft og tíðum of mikið
úr frammistöðu sinni.
Augljósir gallar
„Við getum ekki tekið eitt ein-
asta skref fram á við ef við læmm
ekki að starfa á nýjan hátt, nema
að við sigmmst á stöðnun og íhalds-
semi.“
Þegar tilkynnt var um hreinsan-
imar í vamarmálum á laugardag
gagnrýndi stjómmálaráðið yfír-
menn vamarmála harðlega fyrir að
stöðva ekki vél Rusts.
Sagði ráðið að vél Rusts hefði
komist fram á ratsjá þegar hann
nálgaðist strendur Eistlands og
tvisvar hefðu sovéskar ormstuþotur
flogið umhverfis vél hans en ekki
tekist að þvinga hann til lendingar.
Gennady Gerasimov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins
sagði í gær að foreldrar Rusts,
Monika og Karl Heinz, hefðu sótt
um vegabréfsáritun til Sovétríkj-
anna. Hann bætti því við að
vestur-þýska vikuritið Stern hefði
fengið einkarétt á frásögn þeirra
af flugævintýri Rusts.
Stern fær einkarétt
„Ef til vill kemur þá fjórða út-
gáfan fram,“ sagði Gerasimov og
vísaði til þess að Sovétmenn rann-
saka þrjá möguleika varðandi
flugið: gerði Rust þetta sjálfum sér
til skemmtunár, vildi hann koma
sér á framfæri, eða var um að ræða
samsæri til að ijúfa sovéska loft-
Boforsmálið:
p •
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSK yfirvöld hafa birt hluta
af niðurstöðum opinberrar rann-
sóknar á fullyrðingum varðandi
mútur sænsku Bofors-vopna-
verksmiðjanna til indverskra
embættismanna i tengslum við
sölusamning á faUbyssum til Ind-
lands. Kemur fram að allt að 40
milljónir dala hafi runnið til
embættismannanna.
Samningurinn hljóðaði upp á 1.3
milljarða Bandaríkjadala. Fyrirtæk-
ið neitar að hafa brotið gegn
fyrirmælum indverskra yfírvalda
um að notast ekki við neina milli-
göngumenn heldur semja beint við
yfirvöld. Hins vegar hafí það greitt
.umboðsmönnum sínum á Indlandi
Persaflóastríðið:
London, Reuter.
SEINT á þriðjudagskvöld
hrundu íranir af stað nýrri stór-
sókn inn í írak. Að sögn IRNA,
hinnar opinberu fréttastofu ír-
ans náðu hersveitir írana fimm
mikilvægum hæðum á sitt vald
og felldu eða særðu 1.000 íraka.
í tilkynningu fréttastofunnar
sagði að sveitir írana hefðu náð um
20 ferkílómtera svæði á sitt vald á
vígstöðvunum _ nærri Ilam-héraði
sem er í miðju írak. Sagði ennfrem-
helgi?
„Hann gæti hafa gert þetta vit-
andi að fjölmiðlar, sem alltaf eru á
höttunum eftir æsifréttum, gætu
séð fyrir honum til æviloka,“ bætti
Gerasimov við.
Vestur-þýska dagblaðið Bild hef-
ur gert mikið úr flugi Rusts og
dögum saman hafa flennifyrirsagn-
ir prýtt forsíður blaðsins. I gær var
birt yfírlit yfir þau viðurlög, sem
lögð eru við því að lenda í höfuð-
borgum víða um heim í leyfísleysi.
Sagði að það kostaði 400 þúsund
ísl. kr. að lenda á götunni Champs
Elysees í París og gæti varðað
þriggja mánaða fangelsi, sá sem
lenti Cessnu sinni á Trafalgar
Square ætti yfír höfði sér sex mán-
aða fangelsi. Þetta væri þó ekkert
miðað við Canberra í Ástralíu og
Hvíta húsið í Washington. Refsing
fyrir að lenda í Canberra er tveggja
ára fangelsi og sá sem reynir að
lenda fyrir utan Hvíta húsið verður
umsvifalaust skotinn.
íranski kaupsýslumaðurinn Albert Hakim hlustar af athygli á lög-
mann sinn, Richard Janis, við vitnaleiðslur vegna vopnasölumálsins
í gær.
Abrams segi af sér
Washington, Reuter.
ELLIOTT Abrams, ráðgjafi
Bandarikjaforseti um málefni
Mið-Ameríku, sætir nú gagnrýni
þingmanna úr Demókrataflokkn-
um eftir vitnaleiðslur á Banda-
rikjaþingi vegna vopnasölumáls-
ins.
Þess er krafizt að Abrams segi af
sér og bera þingmennimir því við að
annað hvort hafi hann sagt ósatt við
vitnaleiðslumar eða að hann sé með
öllu óhæfur starfskraftur. Abrams
hélt því fram að hann hefði lítið eða
ekkert vitað um baktjaldamakk Oli-
vers North, sem átti frumkvæðið að
vopnasölunni og að andvirði vopn-
anna var afhent skæmliðum í
Nicaragua.
í gær átti íranski milljónamæring-
urinn Alber Hakim að bera vitni hjá
þingnefnd, sem rannsakar vopnasölu-
málið. Hann stofnaði leynilega fyrir-
tækjakeðju _til þess að annast
vopnasölu til írans og flylja skærulið-
um í Nicaragua vopn með leynilegum
hætti.
Ný]ar upplýs-
ingar mn mútur
umrætt fé í sárabætur fyrir að hafa
ekki fengið að hafa afskipti af
samningnum.
I skýrslunni segir að Bofors hafi
aðeins veitt ófullkomnar upplýsing-
ar um viðskiptin og borið við
nauðsyn á iðnaðarleynd. Segja yfir-
völd að þau hafi ítrekað beiðni til
fyrirtækisins um samvinnu við
rannsóknina, aðeins Bofors sjálft
gæti upplýst málið að fullu.
Rajiv Gandhi, forsætisráðherra
Indlands, fór fram á rannsóknina
en hann hefur legið undir ámæli
stjómarandstæðinga um að halda
hlífískildi yfír spilltum embættis-
mönnum. Svíar afhentu indverskum
yfirvöldum skýrsluna í gær.
íranir hefja nýja stórsókn
ur að árasin hefði komið írökum í
opna skjöldu og hefðu þeir neyðst
til að hörfa eftir mislukkaðar gagn-
árásir. Kváðust íranir hafa tekið
fjölda fanga og náð hergögnum á
sitt vald.
Fréttastofan sagði ennfremur að
árasin hefði verið gerð í hefndar-
skyni við loftárás íraka á þorp eitt
nærri Sardasht í norðvesturhluta
írans og til að refsa íröskum stjóm-
völdum fyrir grimmilega meðferð á
kúrdum sem þar búa.
Allt til útivistarog sólbaöa
Tjaldborgartjöld - hönnuö
fyrir íslenska veðráttu.
Vandaðir svefnpokar.
sumarbústaðinn, tjaldið,
á svalirnar - sólbekkir,
stólar margar gerðir.
Verð mjög hagstætt.
Komið og gerið góð kaup.
Mií§
TOmSTUflDflHUSIÐ
Laugavegi 164-Reykjavík- S: 21901