Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 25
t.«„, fr.itr 3 nr:* > * rr u cVVr r ír; , TCTr rr '
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
25
Austurland: Rafmagnsverkstæði Leifs Haraldssonar, Seyðisfirði
| Vestmannaeyjar: Geisli, Vestmannaeyjum
| Suðurnes: Rafiðn, Keflavík
« Vestfirðir: Póllinn, ísafirði
| Norðvesturland: Rafmagnsverkstæði Kf. — Sauðárkróki
Jff RÖNNING
SUNDABORG 15/104 REYKJAVÍK/SÍMI (91)84000
l Reuter
Brian Mulroney, forsætiaráðherra Kanda (til vinstri), tekur í hönd
Roberts Bourassa, forsætisráðherra Quebec, eftir að samkomulagið
hafði verið undirritað.
Kanada:
Stj órnar skrár-
samningur gerður
við Quebec-ríki
Ottawa. Reuter.
KANADÍSKIR stjórnmálaleið-
togar samþykktu einróma á
þriðjudag að breyta stjórnarskrá
landsins og taka Quebec form-
lega í ríkjasambandið. Stjórn og
stjórnarandstaða hefur fagnað
þessum málalokum.
„Þetta er söguleg stund í sögu
þjóðarinnar," sagði John Tumer,
leiðtogi Ftjálslyndaflokksins, sem
er í stjómarandstöðu. Var Brian
Mulroney forsætisráðherra fagnað
vel og innilega á þingi eftir að sam-
komulagið hafði verið undirritað.
Mulroney og 10 forsætisráðherr-
ar sambandsríkja Kanada komust
að samkomulagi þ.a.l. eftir tæplega
20 klukkustunda langan fund, sem
hófst á mánudag og stóð hvíldar-
laust þar til á miðvikudagsmorgun.
„Mér er það sönn ánægja að til-
kynna, að samningurinn var
samþykktur einróma," sagði Mul-
í-oney brosandi, þegar hann ræddi
við fréttamenn, sem beðið höfðu
alla nóttina eftir tíðindum af við-
ræðunum.
„Samkomulagið ber vitni um
mjög sterka þjóðareiningu," bætti
hann við.
Meðan Quebec var undir stjóm
Parti Quebecois, sem er flokkur
aðskilnaðarsinna, vildi ríkisstjómin
þar ekki undirrita hina nýju stjóm-
arskrá alríkisins. Eftir að frjálslynd-
ir náðu völdum í Quebec, lét stjóm
þeirra í ljós vilja til að semja með
ákveðnum skilyrðum.
Robert Bourassa, forsætisráð-
herra Quebec, sagðist vera „ein-
staklega ánægður" með nýja
samkomulagið. „Það er stórkostlegt
fyrir Quebec og stórkostlegt fyrir
Kanada."
Danmörk:
Búist við kosning-
um á haustmánuðum
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun
ÞJÓÐÞING Danmerkur efndi
tO hefðbundinna lokaumræðna,
áður en sumarfrí þingmanna
hófst. Að þessu sinnu féllu þær
saman við upphaf kosningabar-
áttunnar, en flestir eiga von
á, að kosið verði í Danmörku í
haust. Samkvæmt stjórnarskrá
landsins á að kjósa í síðasta
lagi 10. janúar í vetur, þegar
fjögurra ára kjörtímabili nú-
verandi ríkisstjórnar lýkur.
Það kom skýrt fram í lokaum-
ræðunum, að meginfylkingamar
í dönskum stjómmálum em tvær.
Annars vegar em borgarflokkam-
ir fjórir, sem standa að ríkisstjóm-
inni, íhaldsflokkurinn, Venstre,
Miðflokkurinn og Kristilegi þjóð-
arflokkurinn, og hins vegar
vinstrifylkingin, Jafnaðarmanna-
flokkurinn og Sósíalski þjóðar-
, fréttaritara Morgunblaðsins.
flokkurinn. I umræðunum lögðu
vinstriflokkamir fram dagskrárt-
illögu þess efnis, að forsætisráð-
herrann boðaði þegar til kosninga,
en meirihluti stjómarflokkanna
og Det radikale venstre, sem styð-
ur stjórnina, vísaði tillögunni frá.
Vinstrifylkingin gagnrýndi
ríkisstjórnina harðlega og nefndi
einkum til nýlegar spár efnahags-
sérfræðinga stjómarinnar. Þar
segir, að erlendar skuldir landsins
muni fara yfir 300 milljarða
danskra króna á árinu 1988 og
fjöldi atvinnulausra yfir 300.000.
Poul Schluter forsætisráðherra
sagði við umræðumar, að skjól-
stæðingum hins opinbera hefði
fækkað, frá því að ríkisstjómin
tók við völdum 1982, en útgjöld
ríkisins vegna félagsmála væm
samt hærri en þá.
NÆLONVOÐLUR
Fást í nœstu sportvöruverslun.
Einkaumboð
I. Guðmundsson & Co hf
Símar: 91-11999-24020
Kópavogsvöllui
2.deild
V
BREtÐABLIK - SELFOSS
kl. 20.00 í kvöld
BYKO
w