Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 36

Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 GENGIS- SKRÁNING Nr. 103 - 4. júní 1987 Ein.Kl. 09.15 Kr. Kaup Kr. Sala ToU- gengi Dollari 38,840 38,960 38,990 Stpund 63,165 63,361 64,398 Kan.dollari 28,980 5,6773 29,069 29,108 Dönskkr. 5,6949 5,6839 Norskkr. 5,7707 5,7886 5,7699 Sænskkr. 6,1276 6,1466 6,1377 Fi.mark 8,7963 8,8235 8,8153 Fr.franki 6,3895 6,4092 6,4221 Belg. franki 1,0308 25,8589 1,0340 1,0327 Sv.franki 25,9387 26,7615 Holl.gyllini 18,9565 19,0151 18,9931 V-Þ.mark 21,3641 21,4301 21,39% ft.Ura 0,02951 0,02960 0,02962 Austurr. sch. 3,0404 3,0498 3,0412 Port. escudo 0,2736 0,2745 0,2741 Sp.peseti 0,3067 0,3076 0,3064 Jap.yen 0,26972 0,27056 0,27058 Irsktpund 57,190 57,367 57,282 SDR(Sérst.) 50,0860 50,2412 50,0617 ECU.Evrópum. 44,2815 44,4183 44,3901 SUMARLEGTÁ STÖDVUM ESSO Nú er hægt að Ijúka undirbúningi ferðarinnar í rólegheitum á bensínstöðvum Esso. Þar finnst margt nauðsynlegt í sumarfríið: íþróttaskór, trimmgallar, stígvól eða regngallar handa krökkunum, veiðistöng handa mömmu, grill handa pabba og ... bensín á bilinn. Líttu inn í leiðinni, það er margt girnilegt í hillunum hjá Esso! Góða ferð! íþróttaskór frá 350 kr. Trimmgallar frá 1190 kr. (peysa, bolur, buxur) Stígvél frá 580 kr. Regngallar frá 944 kr. Olíufélagiðhf Morgunblaðið/Ól.K.M. Við upphaf formlegra stjórnarmyndunarviðræðna fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Alþýðuflokks og Framsóknarflokks síðdegis í gær. Frá vinstri: Guðmundur Bjarnason, (Framsóknarflokki), Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Baldvin Hannibalsson, (Alþýðuflokki), Steingrím- ur Hermannsson, (Framsóknarflokkii), Þorsteinn Pálsson, (Sjálfstæðisflokki), Halldór Ásgrímsson, (Framsóknarflokki), Jón Sigurðsson, (Alþýðuflokki), Ólafur G. Einarsson og Friðrik Sophusson (Sjálfstæðisflokki). Fyrsti dagur þriggja flokka viðræðna; Framsóknarmenn sagðir draga fætuma FYRSTI dagur formlegra stjórnarmyndunarviðræðna Alþýðu- flokks, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hófst með fundi formanna flokkanna þriggja í gærmorgun og kl. 14.30. Hófust svo eiginlegar viðræður viðræðunefnda flokkanna og stóðu til um 17.30. Viðræðurnar fara fram í húsakynnum Verkamannafél- agsins Dagsbrúnar og Sjómannafélags Reykjavíkur að Lindargötu 9. Jón Baldvin Hannibalsson, sem leiðir viðræðurnar var ánægð- ur með þetta upphaf og greindi frá því á fundi með fréttamönnum í gær. Þorsteinn Pálsson sagðist ekki geta lagt mat á það hvort þokað hefði í samkomulagsátt, - viðræðurnar væru á byijunar- stigi, en Steingrimur Hermannsson neitaði með öllu að ræða við fréttamenn. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er mjög þungt hljóðið í framsóknarmönnum og áhugi á þessari stjórnarmyndun- artilraun takmarkaður. Einn viðmælandi Morgunblaðsins orðaði það þannig í gær að framsóknarmenn drægju fæturna í þessum viðræðum og væru einungis í þeim til málamynda. „Svo Q'arri því. Það væri vissu- lega ósanngjamt að segja að málflutningur og rökræður fram- sóknarmanna hér væri til málamynda," sagði Jón Baldvin, er hann var spurður hvort hann mæti þátttöku framsóknarmanna í viðræðunum á ofangreindan hátt. í gær var rætt sérstaklega um fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum og hugmyndir um heildarupp- byggingu á tekjuöflunarkerfí ríkisins. „Ég hef trú á því, ef menn fara af alvöru í þessar við- ræður, þá geti þær leitt til niður- stöðu, en auðvitað tekur það einhvem tíma að ná samstöðu," sagði Þorsteinn Pálsson að fund- inum loknum. „Við erum að ræða um mögu- leika á myndun meirihlutastjómar þeirra þriggja flokka sem sitja núna við fundarborðið og það væri algjörlega út í hött að fara að ræða um möguleika á myndun einhvers konar annarri ríkisstjóm á meðan við erum að reyna að mynda þessa. Ég tel þetta vera vænlegasta kostinn sem fyrir hendi er og raunverulega eina vænlega meirihlutakostinn sem möguleiki er á og menn ættu ekki að fara að ræða um aðra hluti á fyrsta degi þessara viðræðna," sagði Þorsteinn er hann var spurð- ur álits á þeirri skoðun framsókn- armanna að mun vænlegri stjóm væri myndun minnihlutastjómar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks með stuðningi Stefáns Valgeirssonar. „Þetta voru alvömstjómar- myndunarviðræður. Við ræddum stuttlega um markmiðslýsingu og því næst fóm fram mjög ýtarlegar umræður um fyrstu aðgerðir til þess að treysta jafnvægi í efna- hagsmálum, bæði á sviði ríkis- fjármála og peningamála," sagði Jón Baldvin á fundi með frétta- mönnum í gær. Jón Baldvin greindi frá því að ákveðið hefði verið að setja undir- nefnd flokkanna þriggja til þess að ijalla saman um þau atriði sem rædd vom í gær. Formenn flokk- anna munu tilnefna menn í þá nefnd í dag. Jón Baldvin sagði að það mið- aði miklu greiðar í þessum viðræðum en þeim stjómarmynd- unarviðræðum sem hann hefði tekið þátt í fram að þessu. Hann sagðist telja að á þessu síðdegi í gær hefði miðað áleiðis i sam- komulagsátt. Á hvern hátt var hann spurður og svar hans var á þennan veg: „Á þann hátt að það er nú þegar á þessu síðdegi búið að fara yflr að sumu leyti stærsta málið, þ.e.a.s. nefna lykilatriðin og ræða um heildarendurskoðun á tekjuöflunarkerfí ríkisins." Viðræðum verður fram haldið í dag og hefjast fundir kl. 10 fyr- ir hádegi. Jón Baldvin sagðist vilja vinna þetta nokkuð stíft og dagur- inn í dag færi í að ræða stefnu ríkisstjómarinnar í atvinnumál- um. Byijað yrði á að ræða landbúnaðarmálin og síðdegis yrði rætt um fiskveiðistefnu, málefni sjávarútvegs og flskiðnaðar. Mánudaga - fímmtudaga Föstudaga Laugardaga Sm kl.9-18 kl. 9-2100 A1IKLIG4RDUR MIKIÐFmiRLtm

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.