Morgunblaðið - 05.06.1987, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
39
Sigríður Jóns-
dóttir - Minning
Fædd 4. mars 1895
Dáin 25. maí 1987
Amma mín, Sigríður Jónsdóttir,
lést í Borgarspítalanum að kvöldi
mánudagsins 25. maí, en þar lá hún
sína fyrstu og einu sjúkdómslegu.
Verður útför hennar gerð frá
Reyniskirkju í Mýrdal á morgun,
laugardaginn 6. júní, en í dag,
föstudaginn 5. júní, fer fram minn-
ingarathöfn í Fossvogskirkju.
Sigríður Jónsdóttir eða amma
fæddist í Norður-Götum, Mýrdal.
Foreldrar hennar voru Jón Gíslason
bóndi og smiður og Tala Hjaltadótt-
ir húsfreyja.
Dvaldist hún á bernskuheimili
sinu þar til hún varð 25 ára, en þá
fluttist hún suður á mölina til
Reykjavíkur og réðst í vist til Sig-
urðar Eggerts og konu hans, frú
Sólveigar. Var hún siðan óslitið
vinnustúlka hjá þeim þangað til hún
stofnaði sitt eigið heimili ásamt
manni sínum, Lárusi Sigmundssyni
Knudsen. Amma og afi eignuðust
6 böm: Hrefnu, Sigmund, Sigurð,
Jón, Reyni og Onnu Maríu, og er
undirrituð dóttir hennar. Einnig ól
amma upp fjögur af barnabömum
sínum.
Bróðurpartinn af búskapartíð
sinni bjó amma á tveimur stöðum
í Reykjavík; á Bakkastíg 10 og
Þrastargötu 7. Löngum var gest-
kvæmt á Bakkastíg 10 og Þrastar-
götu 7, því gott var að sækja ömmu
heim, átti hún alltaf eitthvað gott
til í eldhússkápunum. Meðal annars
fómm við systkinin alltaf í Vestur-
bæjarlaugina en ekki í Laugardals-
laugina, þó hún væri miklu stærri
og fínni og miklu nær heimili okk-
ar, því þá var svo stutt að fara til
ömmu á Þrastó. Einnig er mér það
í fersku minni þegar ég fór með
ömmu eitt sumarið austur í Mýr-
dal, á hennar heimaslóðir. Þegar
við vorum að keyra undir Eyjafjöll-
um sagði hún við mig: „Nei sko,
sjáðu alla litlu lækina“ og seinna í
Mýrdalnum þegar hún benti mér á
allar grænu hlíðamar; ég held að
ég hafi þá fyrst farið að taka eftir
fegurð náttúrunnar í kringum mig
og enn þann dag í dag finnst mér
Mýrdalurinn fallegasti staðurinn á
íslandi og þó víðar væri leitað.
Enda var það hennar ósk að fá að
hvíla á sfnum fallegu bemskustöðv-
um í skjóli dalsins síns græna.
Sigríður Jóhannsdóttir
SVAR
MITT
eftir Billy Graham
Upp úr glötunargröfinni
í leit minni að lífshamingju hef eg neytt allra bragða —
kynnst fíkniefnum, áfengi, ólifnaði og jafnvel Satansdýrkun.
Nú finn eg að eg er fastur í feninu. Eg sé enga leið til bjarg-
ar. Er til einhver leið?
Já, björgunarleið er til og hana má finna með hjálp
Guðs. Tugir og þúsundir manna hafa fetað hana um aldirn-
ar. Þeir sneru sér til Guðs. Þú getur líka farið þessa leið.
Davíð konungur orti marga af sálmum Gamla testament-
isins. Hann mælti: „Eg hef vonað og vonað á Drottin og
hann laut niður að mér og heyrði kvein mitt. Hann dró
mig upp úr glötunargröfinni, upp úr hinni botnlausu leðju
og veitti mér fótfestu á kletti." (Sálm. 40, 1—2.)
Þetta getur orðið rejmsla þín vegna þess að Guð elskar
þig og hefur gert allt sem unnt var til að gera þig að barni
sínu — þrátt fyrir allt sem á daga þína hefur drifið er þú
snerir baki við honum. Guð sendi son sinn, Jesúm Krist,
til þess að hann færði líf sitt að fóm fyrir syndir þínar á
krossinum.
Þú átt skilið dóm Guðs. En Kristur tók á sig dóminn sem
þú og eg unnum til. „Kristur leið einu sinni fyrir syndir,
réttlátur fyrir rangláta, til þess að hann gæti leitt oss til
Guðs.“ (1. Pét. 3,18.)
Hvað áttu þá að gera? Þér er sjálfum ljóst að þér ber
fyrst og fremst að snúa þér frá syndum þínum, eins heiðar-
lega og þér er unnt. Þetta er einmitt afturhvarf, að hverfa
frá syndum sínum og til Jesú Krists. Bjóð þú síðan Jesú
Kristi í trú að koma inn í hjarta þitt.
Ef til vill finnst þér þetta alltof ótrúlegt til að taka mark
á því. En Jesús Kristur vill í raun og sannleika verða veru-
leiki í lífi þínu. Trúðu því að hann hafi dáið til þess að
frelsa þig og fyrirgefa þér, og bið hann að verða drottin
þinn og frelsari. Hann hefur lofað að koma til þín, í líf þitt,
og hann getur ekki sagt ósatt.
Lærðu síðan að ganga með Kristi dag hvem. í þessu
atriði er Biblían sérstaklega mikilvæg því hún er orð Guðs,
gefið okkur svo að við skiljum Guð og vilja hans varðandi
líf okkar.
Já, lífshættir þínir verða algjörlega nýir og þú þarft nú
að „neyta allra bragða" til að halda þér frá fyrri lifnaðar-
háttum. En Guð þráir að hjálpa þér, og eins er um trúaða,
kristna menn. Guð blessi þig er þú snýrð þér til Krists og
lærir að treysta honum.
<7
4tt þú ósóttan
Lottó-vinning?
Vinningstölurnar á hálfu ári.
29. nóvember 1986 02 07 08 23 29 7. mars 1987 04 09 20 21 30
6. desember 1986 02 03101329 14. mars 1987 04 05101227
13. desember 1986 02 0317 28 32 21. mars 1987 02 0411 1531
20. desember 1986 02 05 0819 27 28. mars 1987 0912131723
27. desember 1986 041923 30 32 4. april 1987 0411 23 27 32
3. janúar 1987 0511 1621 31 11. april 1987 18 22 27 30 32
10. janúar 1987 02 07141531 18. april 1987 0414151929
17. janúar 1987 01 091017 23 25. april 1987 09102731 32
24. janúar 1987 01 0417 24 32 2. maí-1987 1011 1723 27
31. janúar 1987 01 03 0718 29 9. maí 1987 02 081416 20
7. febrúar 1987 05 091216 29 16. maí 1987 04 22 2526 29
14. febrúar 1987 01 02 0510 20 23. maí 1987 05 071214 29
21. febrúar 1987 1217192231 30. maí 1987 03 05 0810 26
28. febrúar 1987 0417 23 29 31
Tafla sem sýnir hversu oft
hver tala hefur komið upp.
p 1 r I! 1
1 t I i § œ 1t
1 1 il 1 I® 11 itnl ii i i i
jl UL Li iili i JL
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32
Upplýsingasími: 685111
i/SiA