Morgunblaðið - 05.06.1987, Page 48

Morgunblaðið - 05.06.1987, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987 'Zr & •v ást er... ... aö koma meÖ fyrstu plöntuna handa henni til aÖ gróöursetja TM Reg. U.S. Pat. Ofl.—all rights resarv«t © 1986 Los Angeles Times Syndicate Ef þú trúir þvi ekki að þú hijótir, reyndu að þegja augnablik og heyra berg- málið! í hvert skipti sem eitthvað sýnist ætla að verða eftir í veskinu koma í ljós reikn- ingar sem gleymst hafa. Flugumferð veldur ónæði Kæri Velvakandi. í góða veðrinu að undanfömu hefur það vakið athygli mína hve flugumferð hefur aukist mikið yfír borginni á síðustu ámm. Hér á ég við litlar flugvélar sem eru á sífelldu hringsóli yfír borginni. Kvartað hef- ur verið undan auknum umferðar- þunga en ég hef hvergi séð að kvartað sé undan hávaðanum í þessum rellum. Eru engar reglur til um flug yfír þéttbýli? Hafa flug- menn þessara litlu flugvéla ekki nóg pláss án þess að leika listir sínar hér yfír höfðum okkar og valda okkur ónæði í tíma og ótíma? Halldór Hagsmunir þjóðarinnar Til Velvakanda. Hvenær skyldu íslendingar öðlast það sjálfstraust að þora að búa að sínu og meta hagsmuni þjóðarinnar meira en stundargróða fáira einstakl- inga? Hvers vegna líðst sjómönnum að landa afla sínum í erlendum höfn- um, þegar ftystihúsin okkar vantar verkefni? Hvemig er hægt að rétt- læta atvinnuleysi í landi með því að benda á auknar telq'ur sjómanna? Hvemig er hægt að leggja niður saumastofu í Borgamesi og svipta hóp fólk atvinnu sinni? Hvað varðar þetta fólk um það, þótt eitthvert fyrir- tæki í Skotlandi framleiði fatnað úr hráefni okkar? Hvers vegna hamast neytendasam- tökin gegn innlendri landbúnaðar- framleiðslu? Eru þau að þjóna hagsmunum neytenda eða einhverj- um öðrum? Og fyrir hvaða peninga eigum við að kaupa hinar innfluttu vörur heildsalanna ef haldið verður áfram að grafa undan íslenskum at- vinnuvegum? Ætli það sé ekki kominn tími til að við gerum okkur grein fyrir því að við erum þjóð og verðum að hugsa um okkur sjálf. Ekki getum við búist við að aðrir geri það frekar. Aðrar þjóðir leggja áherslu á að nota það sem þær framleiða sjálfar. Okkar vörur eru ekki verri en annarra, síður en svo. Matvæli eru hreinni og óm- engaðri hér en víðast annars staðar. Fatnaður okkar er vandaðri en sá sem framleiddur er af láglaunaþrælum Asfulandanna. Einingahúsin okkar henta betur íslenskri veðráttu en þau innfluttu. Okkur vantar bara meiri virðingu fyrir okkur sjálfum og því sem við vinnum. Vaknaðu nú, litla þjóð. Vaknaðu til vitundar um verðmæti þeirra eigin- leika sem þú býrð yfir. Halldóra Gunnarsdóttir „Fór ég að finna frændur mína“ Kæri Velvakandi, viltu birta þessa þulu fyrir mig, mig langar að fá ráðningu. Kannast einhver lesenda Morgun- blaðsins við þessa gátu? Ég veit ekki hvort hún er rétt og Iangar að fá skýringu, ef einhver hefur hana. Gátan er svona: Fór ég að finna frændur mína sólardaginn í sultardyrunum. Skundaði ég eftir skipsbotni og kom um bakhluta til kunningjanna. Hitti ég þá óskerta á hestfæti, hafði ég þar góðar hjúastöður. Var þar með réttur af vatni ströngu, samnefhdur fiskmiði Sunnlendinga, fúgla klyQar og fjöldi af skottum og einnig andvana afkvæmi sálar. Fékk ég þar síðan ferðlítið pláss, þeyttist ég ofarlega. Dignuðu menn þá dagsverð litu, fór ég þá strax í stórar tunnur, frændur buðu mér byitu sauðar, en ég hafði ekld lyst á öðru en húsum. Hélt ég svo þaðan er hafði ég hlammað vísu minni svo vel sem kunni. Streymdi ég lengi á stórum nagla, þar til varð fyrir mér fataspillir, sem flýtti ferðum mínum heim að málfæris hinsta rúmi. í von um rétta ráðningu og þá leið- réttingu á gátunni, ef þarf. Snjólaug Þorsteinsdóttir Víkverji skrifar HÖGNIHREKKVÍSI ISLENDINGAR eru stolt þjóð svo að stundum jaðrar við rembing. Við berum okkur gjaman saman við milljónaþjóðir og unum því illa að þurfa að láta í minni pokann. Einkum á þetta við um íþróttir og því kom tapið gegn Austur-Ijóð- veijum sem reiðarslag yfír þjóðina enda voru væntingar miklar fyrir leikinn. Margir höfðu fyrirfram bókað íslendingum sigur og mátti á sumum skilja að það væri nánast formsatriöi að leika leikinn. Vissu- lega höfðum við íslendingar æma ástæðu til að vera vongóðir. Þessir piltar, sem skipa íslenska landsliðið, hafa á undanfömum árum unnið ótrúleg afrek á knattspymuvellin- um og staðið uppi í hárinu á mörgum fremstu knattspymuþjóð- um heims, minnumst þess. Það er því ástæðulaust að vera með 8kammir og svívirðingar þótt illa hafi farið í landsleiknum á miðviku- dag. Auðvitað geta fslenskir kantt- spymumenn átt slæman dag eins og aðrir og þegar slíkt gerist eigum við að taka því með jafnaðargeði í trausti þess, að strákamir geri bet- ur næst. XXX Aukið eftirlit vegalögreglunnar á hálendinu er fagnaðarefni. Það er fyrir löngu kominn tími til að spyma fótum við náttúmspjöll- um ökuníðinga, sem láta sig engu skipta viðkvæman gróður landsins, ef þeir aðeins fá svalað ökufíkn sinni hvar og hvenær sem þeim dettur í hug. Víkveiji verður þó að viðurkenna að torfæmakstur getur verið skemmtileg íþrótt við réttar aðstæður. Það hefur jafnvel hvarfl- að að honum að gaman væri að bregða sér á fjórþjól við tækifæri. En hvar? Sannleikurinn er nefnilega sá að náttúruvemdarlög og ný reglugerð um akstur Qórhjóla stangast illilega á. Samkvæmt nátt- úruvemdarlögum er allur akstur utan vega stranglega bannaður, en með reglugerð, sem birtist f Stjóm- artíðindum 7. aprfl síðastliðinn, heimilaði dómsmálaráðuneytið akstur §órhjóla utan vega. Reglu- gerðin felur sem sagt í sér að mönnum er heimilt að bijóta nátt- úruvemdarlögin og hver heilvita maður sér að slíkt gengur ekki. Á þessu máli verður að fínna viðun- andi lausn svo að löghlýðnir borgarar geti iðkað §órhjólaakstur án þess að fá samviskubit. Fegurðarsamkeppni íslands verður haldin nú um hvíta- sunnuhelgina og sjálfsagt bíða margir spenntir eftir úrslitum, ekki sfst keppendur sjálfír, sem hafa lagt á sig mikla vinnu við undirbúning. Löngum hefur verið deilt um rétt- mæti þessarar keppni og sýnist sitt hveijum. Sumir telja að lengra verði ekki komist í kralrembu og kvenfyr- irlitningu, en aðrir telja sjálfsagt að gefa ungúm stúlkum kost á að koma sér á framfæri með þessum hætti, ekki síst ef þær hafa áhuga á fyrirsætustörfum, sem þær geta haft góðar tekjur af. En þótt ekki séu allir sammáia um fyrirbærið er hitt staðreynd, að meðal almenn- ings nýtur keppnin sífellt meiri virðingar og áhuga og skiptir þar mestu máli að vel hefur verið að henni staðið á undanfomum árum. Velgengni Hólmfríðar Karlsdóttur á alþjóðavettvangi opnaði líka augu margra fyrir því að margt gott getur leitt af þessari keppni. Flestir em sammála um að sjaldan eða aldrei hafi íslendingar fengið betri landkynningu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.