Morgunblaðið - 05.06.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
51
Amór Guójohnsen f leiknum f fyrrakvöld. Kæmi sér betur fyrir liðið
éf hann ióki á miðjunni með Ásgeiri Sigurvinssyni og Sigurði Jónssyni?
MasterCard vill
semja við HSÍ
Á stjórnarfundi kreditkortafyrir-
tækisins MasterCard, sem
verður f New York um helgina,
verður auglýsingasamningur
við HSÍ á dagskrá, en mikiar
líkur eru á samstarfi þeirra fram
yfir Ól f Seoul.
Að sögn Jóns Hjaltalíns, for-
manns HSÍ, var Michael
McNally, forstjóri Evrópudeildar
MC, hér á landi í vikunni og bar
þá þessi mál á góma. HSÍ haföi
verið í viðræðum við Grétar Har-
aldsson, markaðsstjóra Kredit-
korta, um hugsanlegt samstarf
og sýndi McNally málinu mikinn
áhuga. Hann sá síðustu leiki ís-
lands og Júgóslavíu á bandi og
tók spólurnar út með sér á fund-
inn.
McNally taldi samstarf við HS(
fela í sér mikið auglýsingagildi
fyrir MC, þar sem íslenska lands-
liðið tæki þátt í mörgum mótum
úti um allan heim fram að
Ólympíuleikunum í Seoul á
næsta ári.
Ef um semst leikur íslenska
landsliðið með augiýsingu frá
MC á búningunum auk auglýs-
ingarfrá Flugleiðum og eru miklir
peningar í boði. Þá mun HSÍ taka
þátt í kynningarherferð fyrirtæk-
isins, en frekari viðræöur fara
fram í næstu viku að sögn Jóns.
Viðbrögð EHerts B. Schram, formanns KSÍ, eftir landsleikinn:
„Held hlýtur að stokka
upp liðið og endurskoða.
hlutverk leikmannanna“
„BJARTSÝNI leikmannanna var
alltof mikii og þá skorti einbeitn-
ingu. Fótbolti er meira en að
sparka boltanum. Sálfræðin hef-
ur mikið að segja — þetta er
spurning um hugarfar. Strákarnir
hafa talið sór trú um að þeir
væru orðnir svo góðir að þeir
þyrftu ekkert fyrir þessu að hafa,
fóru inn á völlinn og hóldu að
hitt kæmi af sjálfu sór. Stolt okk-
ar allra er sært, en þetta var slys,
sem ekki má endurtaka sig,“
sagði Ellert B. Schram, formaður
Knatspyrnusambands íslands, f
samtali við Morgunblaðið í gær
um útreiðina, sem landsliðið fókk
í fyrrakvöld.
(slenskir áhugamenn um knatt-
spyrnu voru felmtri slegnir eftir 6:0
tapið gegn Austur-Þjóðverjum.
Gat sama lið og gerði jafntefli við
Frakka og Sovétmenn í haust átt
svo lélegan leik, sem raun bar
vitni? Var undirbúningurinn ekki
réttur? Hvað var að gerast? Spurn-
ingar sem þessar heyrðust í öllum
hornum og því lá beinast við að
fá skýringu formanns KSÍ á málinu.
Sami undirbúningur
„Undirbúningurinn var nákvæm-
lega eins og jafnvel betri en nokkru
sinni fyrr. Hann hefur verið í föst-
um skorðum í langan tíma og
hingað til hefur allt gengið upp og
ekkert undan því kvartað."
- En verður undirbúningurinn
ekki að vera meiri ef við eigum
ekki að eiga á hættu að fá skell
sem þennan?
„Allir gera sér Ijóst að undirbún-
ingur mætti vera meiri, en aðstæð-
ur leyfa það ekki. Við erum ýmist
með menn hérna heima eða er-
lendis sem spila á mismunandi
tíma. Það eru stöðugir árekstrar
og erfiðleikar að fá menn lausa í
leiki, hvað þá æfingar, og við meg-
um teljast góðir að ná þessu liði
saman í tvo, þrjá daga fyrir hvern
leik. Þetta er viðurkennd stað-
reynd og hefur verið svo síðan
okkar bestu menn fóru í atvinnu-
mennsku, en samt hefur þetta
gengið þokkalega, úrslit leikja við-
unandi og oft góð.“
Slys
- Sama er ekki hægt að segja um
leikinn f fyrrakvöld. Menn hafa
gengið út frá þvf sem vísu að
stórtöp tllheyrðu sögunnl, en þá
kemur þessi skellur. Erum við á
niðurleið?
„Við höfum verið sömu skoðun-
ar sjálfir varðandi stórtöpin. Við
höfum verið og erum á uppleið og
því lít ég á þessi úrslit sem mikið
slys og áfall. Fyrst og síðast eru
það leikmennirnir sjálfir inni á vell-
inum, sem sigra eða tapa leikjun-
um.”
- Hvað með uppstillingu leik-
manna og leikkerfi?
„Það stendur aldrei á gagnrýninni,
þegar illa gengur, en minna er
sagt, þegar vel gengur. Við höfum
verið með sama leikskipulag undir
stjórn Sigi Held, sem hefur reynst
mjög vel og leikmennirnir sjálfir
eru ánægðir með það. Það er því
ekki leikskipulaginu um að kenna
að svona fór.
Þegar ekkert gekk upp í fyrri
hálfleik fóru menn að sækja í ör-
væntingu, þeir sköpuðu færi en
um leið opnaðist vörnin og voðinn
var vís.
Þétt vörn er málið
Vörnin hefur verið okkar sterk-
asta hlið og menn sjá það eftir
svona áfall að skynsamlegast er
að leika þétta vörn. íslendingar
eru, hvort sem okkur líkar betur
eða verr, ekki I hópi bestu knatt-
spyrnuliða. Við erum lakari og
verðum að byggja á þéttri vörn og
treysta á skyndiupphlaup."
- Er almenn ánægja innan KSÍ
meö landsliðsþjálfarann?
„Við höfum verið mjög ánægðir
með hann fram að þessu og getum
ekki farið að hlaupa upp til handa
og fóta, þó þessi leikur hafi farið
svona og segja allt í einu að nú
sé hann ómögulegur. (þróttum
fylgja sigrar og töp og við verðum
að vera menn til að taka því, þeg-
ar illa gengur. Ég skrifa þennan
ósigur ekki alfarið á reikning Sigi
Held frekar en leikmennina og
okkur hjá KS(. Þetta er sameigin-
legt skipbrot."
- Verður eftthvað gert til að koma
í veg fyrir að þetta gerist aftur?
„Við hljótum að læra af þesari
biturri reynslu. Þetta sýnir strákun-
um aö taktíkin var rétt og aö ekki
má ofmetnast. Baráttan, sem hef-
ur verið okkar aðalsmerki verður
að vera fyrir hendi. Stolt okkar allra
og ekki síst leikmannanna er ákaf-
lega sært og ég hef fulla trú á að
menn taki sig saman og mæti
tvíefldir til næsta leiks til aö sýna
að þeir geta mikið betur."
- Verður þetta til þess að menn
missa trúna á landsliðið?
„Ég geri mér grein fyrir því að
það skiptast á skin og skúrir og
fólk er fljótt að dæma. En við látum
ekki hugfallast, það er enginn upp-
gjafartónn í okkur og vonandi
standa knattspyrnuáhugamenn
með okkur, þó við verðum fyrir
áfalli. Við erum með gott liö, þjálf-
arinn hefur mikla reynslu sem
leikmaðúr á heimsmælikvarða,
hann hefur góð meðmæli frá
Þýskalandi og hefur kynnt sig hér
mjög vel, hann hefur haldið uppi
mjög góðum aga í liðinu, sem er
mikils virði, og sú leikaðferð, sem
hann hefur lagt fyrir, hefur gengið
upp.“
Uppstokkun
- Hvað með stöðu einstakra
manna á vellinum. Af hverju eru
sumir menn ekki látnir leika þar
sem þeir ieika með sfnum félags-
liðum, hvar þeir hljóta að koma
best út?
„Við höfum allir okkar skoðanir
á því hvar menn nýtast best, en
það verður bara að véra svo að
skipstjórinn ræðúr og hans mat'
verður að ráða feröinni. Ég geri
hins vegar ráð fyrir því að hann
hljóti að stokka upp liðið og endur-
skoða hlutverk einstakra leik-
manna inni á vellinum eftir þessa
útreið. Hans röksemdir fyrir leikinn
voru þær að liðinu hafði gengið
vel með þetta lið heima í fyrra-
haust, sæmilega úti og því taldi
hann ástæðulaust að breyta upp-
stillingu, sem leikmenn voru farnir
að þekkja og kunnu á.“
- Nær Sigi Held róttu keppnis-
skapi hjá leikmönnum fyrir leiki?
„Mismunurinn á honum og Tony
Knapp er sá að Tony gat æst
menn upp fyrir leiki, en Held gerir
það ekki. Hann heldur hins vegar
góðum aga innan liðsins og hefur
gott auga fyrir því sem er að ger-
ast. En andinn hefur verið góður
í hópnum og eins leikgleðin.
Stemmningin hefur aldrei verið
eins góðriéttleikinn var fyrir hendi,
en rétt hugarfar skorti í leiknum."
Samningurinn við Sigi Held
rennur út í haust, en hann fór til
Þýskalands í gær og voru skilnað-
arorðin þau að ósigursins skyldi
hefnt. Að sögn Ellerts bendir ekk-
ert til þess að undirbúningurinn
verði annar fyrir haustleikina, þjálf-
arinn kemur og fer með vissu
millibili, en vonandi þjappar þetta
mikla áfall mönnum enn betur
saman.
-S.G.
Verð kr. 3.430.- stærðir3-9
Hvítír/grænir — Hvítir/bláir
spomowmsmN
INGOUFS
Klapparstig 40
A HORNI MAPMimS
og CRmseðrv
S:11783