Morgunblaðið - 05.06.1987, Page 52
TjjBRUnnBÓT
-AFÖkYGGISASTÆÐUM
Nýjungar
í 70 ár
ALHLIÐA PRENTWÓNUSTA |
1 GuðjónÓ.hf.
91-27233 I
FÖSTUDAGUR 5. JÚNÍ 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Urskurður Hæstaréttar í Utvegsbankamálinu:
Akæru á hendur banka-
■stjórunum var vísað frá
HÆSTIRÉTTUR vísaði í gær frá
dómi ákæru á hendur sjö banka-
stjórum Útvegsbanka Islands, á
þeirri forsendu að ríkissaksókn-
ari, Hallvarður Einvarðsson, hafi
verið vanhæfur til að ákæra í
málinu vegna setu bróður hans,
Jóhanns, í bankaráðinu frá 1.
janúar 1985.
Bankastjóramir sjö vom ákærðir
hinn 9. apríl sfðastliðinn fyrir stór-
fellda vanrækslu og hirðuleysi í
j^arfí vegna viðskipta Útvegsbank-
ans við Hafskip hf. á ámnum
1982-1985. Þegar málið var tekið
fyrir í sakadómi Reykjavíkur hinn
15. maí sl. kröfðust veijendur þess
að málinu yrði vísað frá dómi. Kröfu
sína byggðu þeir á því, að ríkissak-
sóknari hafí hlotið að standa
frammi fyrir því álitaefni, þegar
ákæra var gefín út, hvort hún ætti
jafnframt að beinast að bankaráðs-
mönnum. Þeir bentu á að Albert
Guðmundsson hafi verið formaður
bankaráðs frá 1981 til júní 1983
og komið hafí fram að ríkissaksókn-
ari hafí fengið peningalán hjá
Albert, þegar hann gegndi stöðu
Qármálaráðherra. Þá hafí bróðir
ríkissaksóknara verið varaformaður
bankaráðs árið 1985. Ríkissaksókn-
ari verði því að teljast svo riðinn
við málið eða aðila þess, að hann
mætti ekki gegna dómarastörfum
í því og hafi honum borið að víkja
sæti. Vísuðu verjendur meðal ann-
ars til 36. greinar laga um meðferð
einkamála í héraði þar sem segir
að dómari skuli vílga úr dómara-
sæti, ef málið varðar hann eða
venslamenn hans verulega fjár-
hagslega eða siðferðislega, eða
annars er hætta á því, að hann fái
“ ekki litið óhlutdrægt á málavöxtu.
Þegar frávísunarkrafa veijend-
^ anna var tekin fyrir í sakadómi var
henni hafnað. Dómarinn sagði, að
hvorki Albert Guðmundsson né Jó-
hann Einvarðsson væru ákærðir og
ákvörðun ríkissaksóknara um að
draga ekki bankaráðsmenn til
ábyrgðar sætti ekki endurskoðun
dómsins. Veijendumir kærðu úr-
skurðinn þegar til Hæstaréttar, sem
í gær vísaði ákærunni frá dómi.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins var ákærunni vísað frá
vegna setu Jóhanns Einvarðssonar
í bankaráðinu, en ekki var tekið
tillit til annarra krafna veijend-
anna. Úrskurðinn kváðu upp
hæstaréttardómaramir Magnús
Thoroddsen, Gaukur Jömndsson,
Guðrún Erlendsdóttir og Guðmund-
ur Jónsson. Halldór Þorbjömsson
hæstaréttardómari skilaði sérat-
kvæði í málinu. Þar sem úrskurður-
inn var ekki gerður opinber í gær,
var ekki unnt að fá nánari upplýs-
ingar um efnisatriði.
Líklegt þykir nú að dómsmála-
ráðherra skipi sérstakan saksókn-
ara í máli þessu.
Sjá einnig á bls. 2: „Hæstirétt-
ur hafnaði kröfum veijenda
forsvarsmanna Hafskips".
Hvalvertíðin
að hefjast
HVALVERTÍÐIN hefst á
sunnudaginn. Hvalur 8 og Hval-
ur 9 stunda veiðar í sumar og
er kvóti þeirra 80 langreyðar
og 40 sandreyðar. Þessi mynd
var tekin i Hvalfirðinum í gær
og sjást Hvalur 6 og Hvalur 7,
en eins og menn rekur sjálfsagt
minni til var þessum skipum
sökkt i Reykjavíkurhöfn síðast-
liðið haust.
Morgunblaðið/Sverrir
Miklar tafir á innanlandsflugi undanfarna daga:
Flugiimferðarstj óitu* fylgja
nú ýtrustu öryggisreglum
- segir formaður Félags flugumferðarstjóra
FLUGUMFERÐ á íslandi hefur
verið mjög tafsöm undanfarið
meðal annars vegna þess að flug-
umferðarstjórar og einstaka
flugmenn hafa farið sér hægt
við vinnu sína. Báðar þessar
stéttir eiga nú í viðræðum vegna
kjarasamninga. Formenn félaga
flugumferðarstjóra og flug-
manna neita þvi að um skipulagð-
ar aðgerðir sé að ræða en
formaður Félags flugumferðar-
stjóra segir að flugumferðar-
stjórar fari nú eftir ýtrustu
öryggisreglum.
Mjög miklar tafír hafa orðið í
innanlandsfíugi undanfama daga
og stafa þær, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, meðal annars af
því að talsverðan tíma tekur fyrir
flugvélar að fá gangsetningar-
heimildir og flugtaksheimildir og
er ýmsum ástæðum borið við. Einn-
ig mun einstaka flugmaður hafa
farið sér hægt við vinnu sína.
Jón Baldvin
er bjartsýnn
i
Framsóknarmenn sýna takmarkaðan
áhuga og gæla enn við hugmyndina
um myndun tveggja flokka stjórnar
FORMLEGAR stjórnarmynd-
unarviðræður Alþýðuflokks,
Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks undir forystu
Jóns Baldvins Hannibalssonar
hófust í gærmorgun og stóðu
með hléum til kl. 17.30. Þeim
verður fram haldið kl. 10 ár-
degis í dag. Jón Baldvin telur
að miðað hafi í samkomulag-
sátt á þessum fyrsta viðræðu-
degi, en yóst er að framsóknar-
menn hafa takmarkaðan áhuga
á að þessi tilraun Jóns Baldvins
takist.
Jón Baldvin sagðist telja að
miðað hefði í samkomulagsátt og
taldi það vera þýðingarmikið að
farið var yfír að sumu leyti
stærsta málið í gær, heildarendur-
skoðun tekjuöflunarkerfís ríkisins
og tekin ákvörðun um að setja
það mál í undimefnd allra flokk-
Heimildir Morgunblaðsins
herma á hinn bóginn að hljóðið i
framsóknarmönnum sé þungt í
þessum viðræðum og efasemdir
eru um að þeir séu í þeim af heil-
indum, með það að markmiði að
myndun þessarar þriggja flokka
Morgunblaðið/Ol. K. M.
Við upphaf formlegra stjórnarmyndunarviðræðna Jóns Baldvins
í gær. Steingrímur Hermannsson heilsar Jóni Baldvin og fyrir
aftan stendur Guðmundur Einarsson, framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins.
ríkisstjórnar takist. Steingrímur
Hermannsson, formaður Fram-
sóknarflokksins vildi ekki ræða
við blaðamann Morgunblaðsins að
viðræðunum í gær loknum, en
Þorsteinn Pálsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins kvaðst telja
viðræðumar það skammt á veg
komnar að útilokað væri að leggja
mat á það hvort miðað hefði í
samkomulagsátt.
Sjá fréttafrásögn á bls. 36.
Ámi Þorgrímsson formaður Fé-
lags flugumferðarstjóra sagði að
engar skipulegar aðgerðir væm í
gangi af hálfu félagsins. Hinsvegar
væri eðlilegt að flugumferðarstjórar
gættu þess að fara ekki of óðslega
°g fylgja ýtmstu ötyggisreglum í
ljósi félagsdóms um að þeir væm
öryggisstétt og þrír flugumferðar-
stjórar hefðu verið ákærðir fyrir
meint mistök í starfí.
Vilhjálmur Þórðarson formaður
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
sagði að engar aðgerðir væm í
gangi hjá flugmönnum aðrar en að
menn vinni nú samkvæmt samning-
um sínum og allar tafír í fluginu
hlytu að eiga sér eðlilegar skýring-
ar, svo sem bilanir.
Flugumferðarstjórar og fulltrúar
ijármálaráðuneytisins áttu fund í
gær um kjarasamninga flugum-
ferðarstjóra og er nýr fundur
boðaður í dag. Ámi Þorgrímsson
sagði þær viðræður á réttri leið en
vildi engu spá um framhald. Flug-
menn funduðu einnig með fulltrúum
Flugleiða í gær og sagði Vilhjálmur
að samningaviðræðurnar gengju
hægt og lít.ið hefði hreyfst þar.
Vatn setti af
stað brunaboða
BRUNAVARNAKERFI á Hótel
Óðinsvéum í Reykjavík fór af
stað um klukkan 23 í gærkvöldi
og fór Slökkvilið Reykjavíkur á
staðinn. Þegar til kom reyndist
vatnsgufa hafa sett brunakerfið
í gang.