Morgunblaðið - 20.06.1987, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20, JÚNÍ 1987
21
ríkjamanna. íranir voru hins vegar
nógu skynsamir til að láta slíkt
ógert.
Stuðningur við írak
Á hinn bóginn var það framferði
írana sem leiddi til þess að Banda-
ríkjamenn ákváðu að veita írökum
upplýsingar frá gervihnöttum um
liðsflutninga og umsvif írana. Þá
hvöttu Bandaríkjamenn til þess á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna að
ríki heims sameinuðust um algert
bann á vopnasölu til íran. Tillaga
þessi beindist einkum gegn Kínveij-
um sem hafa selt írönum flugskeyti
af gerðinni „Silikiormur" (Silkworm)
en í krafti þeirra gætu íranir hindr-
að allar siglingar um Hormuz-sund
inn á Persaflóa. Á dögunum sótti
Yang Shankung, sem á sæti í stjóm-
málanefnd kínverska kommúnista-
flokksins, bandaríska embættismenn
heim. George Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, fór þess á leit
við hann að Kínverjar létu af sölu á
flugskeytum þessum til íran. Sá
kínverski tók þessari málaleitan fá-
lega. Engu að síður sýnir þetta að
Bandaríkjastjóm stendur með Irök-
um í Persaflóastríðinu. Stjómin
hefur ekki látið í ljós efasemdir um
þá skýringu íraka að árásin á frei-
gátuna „Stark“ hafi komið til vegna
mistaka flugmannsins sem skaut
flugskeytinu. Þetta sýnir að stjómin
vill koma í veg fyrir að almenningur
í Bandaríkjunum fyllist andúð í garð
íraka. Stjóm Reagans forseta er
einnig mjög í mun að treysta að
nýju samskiptin við hófsöm Araba-
ríki svo sem Saudi-Arabíu, Jórdaníu,
Kuwait og fleiri og bæta þann trún-
aðarbrest sem skapaðist eftir
vopnasöluhneykslið.
Þrátt fyrir að Iranir hafi fordæmt
aukin umsvif Bandaríkjamanna og
Sovétmanna á Persaflóa munu af-
skipti þessara ríkja vafalaust leggj-
ast þungt á íranska ráðamenn.
Lokasigur þeirra í styijöldinni við
íraka er enn ijarlægari en áður. Þá
hljóta íranir að hafa af því áhyggjur
að stórveldin tvö bíði færis á að
grípa til aðgerða sem gætu veikt
stöðu írana enn frekar. Flestir
stjómmálaskýrendur hér í Banda-
ríkjunum hallast að því að íranir
muni forðast að ögra stórveldunum
á Persaflóa og vonist til þess að
Bandaríkjamenn dragi smám saman
úr umsvifum sínum á þessum slóðum
og kalli herskip sín á brott. Svo
kann einnig að fara að íranir endur-
meti stöðu mála í Persaflóastríðinu
í kjölfar aðgerða Bandaríkjamanna
og Sovétmanna til að tryggja sigl-
ingar á flóanum. Hingað til hafa
íranir ekki náð að vinna umtalsverða
sigra. Gífurlegt mannfall hefur verið
í röðum þeirra og kostnaður við
stríðsreksturinn hefur sligað efna-
hasgslífið. Stjómkænska Kuwaitbúa
kann að hafa meiri áhrif á gang
Persaflóastríðisins en drápstól Irana
og Iraka.
Henry Brandon var um langt
skeið fréttaritari Sunday Times.
Hann ritar nú dálka um bandarísk
stjórnmál og er þekktur fyrir við-
töl sín við Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta og aðra hátt-
setta embættismenn.
Hare Krisna:
Samkomaí
Þrídrangi
SAMKOMUR verða hjá Hare
Krisna hreyfingunni á íslandi í
Þrídrangi, Tryggvagötu 18 í
Reykjavík, sunnudagana 21. júní
og 28. júní. Samkomurnar hefj-
ast kl. 16.00.
Þar verður meðal annars kynnt
heimspeki og menning Vedafræð-
anna indversku og kyijaðir verða
andlegir söngvar og möntmr á
sanskrít. Síðan verða bomir fram
jurtaréttir.
(Úr fréttatilkynningu)
Gunnlaugur Helgason dagskrárgerðarmaður á Stjörnunni.
Ný bók frá Menningarsjóði:
Afmælisrit til heiðurs
Þorbimi Sigurgeirssyni
í TILEFNI af sjötugsafmæli Þor-
bjöms Sigurgeirssonar prófess-
ors hinn 19. júní gefur
Menningarsjóður út afmælisrit til
heiðurs Þorbimi. Rit þetta nefnist
„í hlutarins eðli“ og er 434 blaðsí-
ður að stærð, prýtt myndum og
inniheldur tvö sérprentuð kort. Eðlis-
fræðifélag íslands hafði forgöngu
um útgáfuna. Ritstjóri er Dr. Þor-
steinn I. Sigfússon eðlisfræðingur
við Raunvísindastofnun Háskólans.
Bókinni „í hlutarins eðli“ er
skipt í þijá meginhluta. Alls skrifa
24 íslenskir vísindamenn greinar í
bókina, sem allar eiga það sameigin-
legt að tengjast starfi og hugsjónum
Þorbjöms Sigurgeirssonar á ein-
hvem hátt, en Þorbjöm er einn af
frumheijum rannsókna í nútíma
raunvfsindum hér á landi.
í fyrsta þætti bókarinnar er fjallað
um sögu rannsókna í þessum fræð-
um á Islandi og einkum tekið mið
af eðlisfræði og jarðvísindum. Einnig
er í fyrsta þætti minningaágrip og
saga Rannsóknaráðs rakin.
I öðmm þætti bókarinnar er fjall-
að um íslensk rannsóknaverkefni
sem spanna allt frá segulsviðsmæl-
ingum og jöklarannsóknum til
hraunkælingar og hraunhitaveitu.
Alls em í þessum þætti bókarinnar
13 greinar.
Síðasti þáttur bókarinnar er
fræðslugreinar um eðlisfræði nútím-
ans. Greinar í þessum flokki em,
eins og margar greinar ritsins, þær
fyrstu sinnar tegundar á aðgengi-
legu íslensku máli.
I ritnefnd afmælisritsins em auk
ritstjóra þeir Leó Kristjánsson, Páll
Stjarnan á
Suðurlandi
HLUTARINS
Laugardags-
göngurí
Kópavogi
Á HVERJUM laugardegi allan
ársins hring fer gönguklúbbur
frístundahópsins „Hana nú“ í
Kópavogi í gönguferð um Kópa-
vog.
Þessi laugardagsganga er ætluð
öllum Kópavogsbúum, ekki einung-
is félagsmönnum. Á hveijum
laugardegi kl. 10 er komið saman
að Digranesvegi 12, dmkkið kaffi
og síðan gengið um bæinn í klukk-
utíma.
ÚTVARPSSTÖÐIN Sljarnan
nær nú til hlustenda um allt Suð-
urland eftir að sendir var settur
upp á Klifi í Vestmannaeyjum.
Sendirinn var tekinn í notkun að
kvöldi mánudagsins 15. júní og
hljómaði Stjaman þá um allt Suður-
land. Sem fyrr nær Stjaman eyrum
hlustenda um allt Faxaflóasvæðið
og upp á Snæfellsnes.
Búast má við að Stjaman færi
enn út kvíamar áður en langt um
líður. Auk senda í Reykjavík og í
Vestmannaeyjum hefur útvarps-
stöðin tryggt sér útsendingarleyfí á
Ísafirði, Akureyri og á Egilsstöðum,
segir í frétt frá Stjömunni.
Theodórsson, Þorsteinn Vilhjálms-
son og Jón Pétursson.
Fréttatilkynning.
Áskriftarsiminn er 83033
GISLI J. JOHNSEN
Nýbýlavegi 16. Sími 641222
n i
ERIGSSON
farsímar í fararbroddi