Morgunblaðið - 14.07.1987, Page 4

Morgunblaðið - 14.07.1987, Page 4
MQRGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987 Sr. Sigurður Pálsson vígslubiskup látinn SR. SIGURÐUR Pálsson vígslu- biskup á Selfossi lést í Sjúkrahúsi Suðurlands aðfaranótt mánu- dagsins 13. júlí. Hann var 86 ára. Sr. Sigurður var fæddur í Hauka- tungu í Hnappadal þann 8. júlí 1901. Foreldrar hans voru Páll Sig- urðsson bóndi þar og kona hans Jóhanna Guðríður Bjömsdóttir. Að afloknu guðfræðiprófí frá Háskóla íslands varð séra Sigurður sóknar- prestur í Hraungerðisprestakalli árið 1933. Þjónaði hann því kalli til ársins 1971 en bjó á Selfossi frá 1956. Hann varð prófastur í Árnes- prófastdæmi árið 1965 og sat á kirkjuþingi frá 1958 til 1970. Hann var kjörinn vígslubiskup Skálholts- biskupsdæmis 1966. Árin 1972 til 1977 var sr. Sigurður settur sókn: arprestur í Reykhólaprestakalli. í 30 ár var hann í stjóm Prestafélags Suðurlands og lengi formaður þess. Sr. Sigurður var sæmdur stór- VEÐUR Akranes og Borgarnes: Hitaveitureikningurinn lækkar um 5% - ekki 20% Séra Sigurður Pálsson vígslubiskup riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu. Var hann útnefndur heiðursdoktor við Háskóla íslands og heiðursborgari Selfossbæjar. Sr. Sigurður vann brautryðjendastarf á sviði helgisiða í Þjóðkirkjunni og gaf út messubók árið 1961 og rit- aði bók um sögu messunnar sem út kom 1982 auk fleiri rita. Eftirlifandi eiginkona sr. Sigurð- ar er Stefanía Gissurardóttir og eiga þau 7 böm. NÝ gjaldskrá fyrir Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar var samþykkt á stjórnarfundi síðast- liðinn föstudag. Samkvæmt henni lækkar hitunarkostnaður á svæðinu í 1550 krónur hver mínútulítri en hann er nú 1640 krónur. Lækkun gjaldskrárinnar kemur í kjölfar samnings hita- veitunnar við ríkissjóð þar sem ríkissjóður yfirtekur 220 milljón- ir af skuldum veitunnar. Hin nýja gjaldskrá tekur gildi 1. júlí. I samningi ríkisins við Hitaveitu Akraness og Borgarfjarðar felst að ríkissjóður yfírtekur 220 milljónir af skuldum veitunnar. Stofnað verður undirbúningsfélag af eigna- raðilum fyrir væntanlegt orkubú Borgarfjarðarhéraðs og það félag yfírtekur 150 milljónir til viðbótar. Ingimundur Sigurpálsson bæjar- stjóri á Akranesi sagði í samtali við Morgunblaðið að búið væri að beij- IDAGkl. 12.00: Heimild: Veöurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) VEÐURHORFUR I DAG, 14.07.87 YFIRLIT á hádegi í gær: Um 400 km suövestur af Reykjanesi er hægfara 992 millibara djúp lægö og önnur álíka djúp nokkuð lengra suösuövestur í hafi. Báöar þokast austur. Milli íslands og Noregs er 1022 millibara hæö. SPÁ: Suöaustlæg átt á landinu, víðast kaldi (5 vindstig). Sunnan- lands verður dálítil súld eöa rigning og hiti á bilinu 10 til 14 stig. Norðanlands verður víða léttskýjað og hiti á bilinu 15 til 20 stig. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: MIÐVIKUDAGUR og FIMMTUDAGUR: Suöaustlæg átt og fremur hlýtt í veðri um allt land. Dálítil rigning eða súld um sunnanvert landið en þurrt fyrir norðan. Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma # * * •j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V B = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður ast fyrir því í mörg ár að fá einhveija úrlausn í málum hitavei- tunnar og þetta væri í fyrsta skipti sem á þeim væri tekið. Gert var ráð fyrir að samkomulagið gerði hita- veitunni kleift að lækka gjaldskrá sína um allt að 20% svo hún væri sambærileg gjaldskrá Rafmagn- sveitna ríkisins. Andrés Ólafsson skrifstofustjóri hjá Hitaveitu Akraness og Borgar- fjarðar var spurður um ástæðu þess að einungis er um rúmlega 5% lækkun að ræða á vatnsverði hita- veitunnar. Hann sagði að skráð verð hitaveitunnar væri 1880 krón- ur á lítrann, þar sem samþykkt hefði verið gjaldsrárhækkun í des- ember úr 1640 í 1880 krónur. Sú hækkun hefði átt að taka gildi 1. janúar en verið frestað af stjóm hitaveitunnar. „Hitaveitan lítur því svo á að lækkunin nemi 17% miðað við gildandi gjaldskrá, úr 1880 í 1550 krónur, “ sagði Andrés. Hreppsnefnd Borgamess sam- þykkti samkomulag hitaveitunnar við ríkissjóðs einróma á_ fundi í fyrrakvöld að sögn Eiríks Ólafsson- ar hjá Borgameshreppi, en það verður tekið fyrir á bæjarstjómar- fundi á Akranesi í kvöld. Ingimund- ur Sigurpálsson bæjarstóri á Akranesi sagðist telja að menn væm almennt ánægðir með sam- komulagið og þá lækkun á gjald- skrár sem hún hefði í för með sér. Það væri lágmarkskrafa að fólk á svæði hitaveitunnar sem tæki þátt í að greiða niður orkukostnað hjá þeim sem væm með rafhitun þyrfti ekki að greiða miklu hærra verð fyrir eigin húshitun. Gjaldskrá Raf- magnsveitna ríkisins væri í 'raun og vem hið opinbera orkuverð til húshitunar. Hann sagði að nýsam- þykkt lækkun á gjaldskrá hefði miðast við húshitunarkostnað á Vestfjörðum og hjá Rarik. Eiríkur Ólafsson sagðist telja líklegt að gjaldskrárlækkunin þýddi um 700 til 800 króna lækkun á húshitunar- kostnaði fyrir meðalstórt hús á mánuði. agj W M w % ~ w ▼ T' VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gœr að ísl. tíma hltl veður Akureyri 21 hálfskýjað Reykjavík 13 úrkomafgr. Bergen 20 léttskýjað Helslnki 17 skýjafi Jan Mayen 6 súld Kaupmannah. 16 skýjaft Narssarssuaq 9 hálfskýjafi Nuuk 3 alskýjafi Oaló 19 hðlfskýjað Stokkhólmur 16 rigning Þórshöfn 11 skýjafi Algarve 29 skýjaft Amsterdam 21 hálfskýjafi Aþena 33 helftskfrt Barcelona 28 helfiskfrt Berlfn 18 skýjað Chlcago 21 láttskýjað Feneyjar 28 heiðskfrt Frankfurt 19 skýjað Glaskow 16 rignlng Hamborg 17 hálfskýjaö Las Palmas 26 láttskýjafi London 24 skýjað LosAngeles 17 alskýjað Lúxemborg 20 hálfskýjað Madrfd 26 mlstur Malaga 27 mlstur Mallorca 32 hálfskýjaft Miaml vantar Montreal 26 Iðttskýjað NewYork 24 þokumóða Parfs 24 léttskýjað Róm 28 helftskfrt Vfn 26 skýjað Washington 24 þokumóða Winnlpeg 12 úrkoma f gr. Kristján Kristjáns- son, fyrrverandiyfir- borgarfógeú, látinn Kristján Kristjánsson fyrrver- andi yfirborgarfógeti lést í Borgarspitalanum aðfaranótt 12. júli sl. 89 ára að aldri, en hann fæddist að Höskuldsstöðum i Laxárdal í Dalasýslu þann 9. september árið 1898. Kristján varð fulltrúi bæjarfóget- ans í Reykjavík, Jóhannesar Jóhannessonar, árið 1928 og full- trúi lögmannsins í Reykjavík, dr. Bjöms Þórðarsonar, frá 1. janúar 1929 til 17. desember 1942 þegar hann var settur lögmaður í Reykjavík er dr. Bjöm varð forsæt- isráðherra. Kristján var settur borgarfógeti í Reykjavík í lok árs 1943 og skipaður í það embætti í september 1944. Hann var skipaður yfírborgarfógeti í Reykjavík þann 12. mars 1963, en fékk lausn frá störfum 1967. Þá fékk hann um- boðsskrá frá dómsmálaráðuneytinu til að fara með 56 uppboðsmál í Reykjavík, en þeim málum var að fullu lokið í október 1968. Kristján var skipaður dómari í félagsdómi og sat þar eitt kjörtímabil. Einnig var hann settur dómari í nokkrum opinberum málum og auk þess sett- ur dómari í Hæstarétti í ýmsum málum. Kristján hlaut Riddarakross íslensku fálkaorðunnar. Kristján Kristjánsson. Eiginkona Kristjáns var Móeiður Margrét Guðjónsdóttir og lést hún árið 1984. Þau eignuðust fjórar stúlkur. Aukinn hraði á Suðurnesjum: Yfir 800 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur Mikil fjölgun umferðarslysa Vogum. Á NÍUNDA hundrað ökumenn hafa verið teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi Keflavíkurlög- reglunnar fyrstu sex mánuði ársins. Það er sami fjöldi og allt síðasta ár. Svo virðist sem hraðinn í um- ferðinni hafí aukist að undanfömu þvi yfírmenn lögreglunnar hafa ekki lagt áherslu á meira eftirlit með umferðarhraðanum en undan- farin ár. Þá er aukinn Qöldi bíla í umferðinni ekki heldur talin skýring því aukningin á bæði hraðaakstri og slysatíðni hefur yerið miklu meiri en fjölgun bíla. í maímánuði var 161 ökumaður tekinn fyrir of hraðan akstur og 204 í júní og það sem af er júlí. Umferðarslysum hefur einnig fjölgað mikið frá því í fyrra en þá voru skráð umferðarslys alls 255 fyrstu sex mánuði ársins, en eru orðin 330 í ár og skiptast nokkuð jafnt á mánuðina. Það er aðeins í þremur tilvika þar sem umferðar- slys hafa orðið að ökumenn eru grunaðir um ölvun við akstur, en lögreglan hefur tekið alls 100 öku- menn grunaða um ölvun við akstur í ár. Það er mikil fjölgun frá síðasta ári en þá voru þeir 62 fyrstu sex

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.