Morgunblaðið - 14.07.1987, Side 19

Morgunblaðið - 14.07.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987 19 Opið bréf til ríkissljórn- ar og þingmanna undirritaðan í tímaritinu Sögu 1973 og 1979. Lesandinn mun sjá að hér er verið að leita að rétta svarinu við tiltekinni rannsóknarspumingu. Hér erum við komin að þungamiðju í vísindalegri sagnfræði: Skipuleg leit samkvæmt almennt viðurkenndum föstum reglum. Auðvitað væri afar auðvelt að benda á ritgerðir, sem tilheyra visindalegri sagnfræði en eru á þann hátt gallaðar, að gildandi reglum í vísindalegri sagnfræði er ekki fylgt þar nema að nokkru leyti, en ekki verður farið út í þá sálma hér. Framsetningarsagnfræðin gegnir auðvitað sínu hlutverki ekki síður en sagnfræðileg vísindarannsókn (vísindaleg sagnfræði). En það er nauðsynlegt fyrir lesandann að gera sér grein fyrir því, um hvort er að ræða, er hann velur sér til lestrar sagnfræðilegt efni. Það er nauðsyn- legt fyrir lesandann að gera sér grein fyrir þvf, að ef um framsetningar- sagnfræði er að ræða, getur hann alls ekki alltaf treyst á það, sem stendur í textanum. Það sem verið er að segja, er kannski alls ekki nið- urstaða af sagnfræðilegri vísinda- rannsókn, heldur bara skoðun höfundarins. Það er t.d. ekki margt í íslandssögu Jónasar frá Hriflu sem getur talizt niðurstaða af sagnfræði- legri vísindarannsókn. I þessu sambandi er og rétt að hafa í huga, að stundum getur framsetningar- sagnfræði og sagnfræðileg vísinda- rannsókn blandazt saman í einu og sama ritinu. Nú kann lesandinn að spyrja: Er ekki hægt að treysta á það, að rit sem er með tilvitnanir í allar heimild- ir, sé vísindaleg sagnfræði? Svarið er nei. Vissulega hefur þá verið farið eftir reglunni um tilvitnanir en þessi regla er bara ein af mörgum. Stundum heyrir maður þeirri skoð- un haldið fram, að sagnfræðin sé ekki vfsindi. Þessu mætti svara þann- ig, að framsetningarsagnfræði er yfirleitt ekki vísindi en getur stund- um verið með nokkru vísindalegu ívafi, og ef þar er stuðzt við niður- stöður af sagnfræðilegum vísindar- annsóknum, þar sem reglunum hefur verið fylgt í hvívetna, er hægt að treysta á hana svo langt sem þær niðurstöður ná. Segja má því, að sumt í sagnfræðinni sé vísindi og annað ekki. Jafnframt má segja, að sagnfræði sé ekki vísindi í höndum allra. Hún er vísindi í höndum þeirra sem fylgja réttum reglum. Efasemdir Þögn Sveinbjöms Rafnssonar gef- ur tilefni til nokkurra efasemda um það, hvort hann sé hæfur í það starf sem hann gegnir. Það virðist ekki vera hægt að treysta honum sem embættismanni. í dómnefndaráliti því sem nefnt er í upphafi þessarar greinar og Sveinbjöm hefur undirrit- að, hefur hann t.d. sleppt nokkmm þýðingarmestu ritgerðum undirrit- aðs, er hann metur framlagðar ritgerðir hans, og aðrar ritgerðir hans hefur Sveinbjöm afgreitt með sleggjudómum án samhengis við markmið þeirra. Auðvitað gefa slík vinnubrögð ekki rétta mynd af þeim höfundi, sem flallað er um. En það skyldi þó ekki vera, að Sveinbjöm hafi einmitt viljað gefa allt aðra mynd af viðkomandi en framlagðar ritgerðir gáfu tilefni til? Það er víst ekki hægt annað en hafa Sveinbjöm gmnaðan um þetta og ekki dregur það úr gmnsemdunum, hvemig hann hefur bmgðizt við grein minni 20. maí. Lokaorð í grein minni oftnefndri (20. maí) benti ég á nauðsyn þess að setja á stofn stjómamefnd heimspekideild- ar, sem sinnti tilteknum verkefnum til eftirlits með deildinni. Frammi- staða Sveinbjöms Rafnssonar, sem einmitt er prófessor í heimspekideild, er auðvitað frekari röksemd fyrir nauðsyn slíkrar stjómamefndar. Þörf er því nýrrar lagasetningar með því sniði, sem lýst er í grein minni, og ég vænti þess, að háttvirtum al- þingismönnum sé smám saman að verða það ljóst, að sú sjálfstjóm, það frelsi, sem heimspekideild nýtur og hefur notið frá upphafi, á ekki við lengur í alveg óbreyttri mynd. Hin eldri skipan hvfldi á siðferðilegum grunni, sem er ekki lengur fyrir hendi eftir að Gunnar Karlsson, Sveinbjöm Rafnsson og Gísli Gunnarsson hafa tekið að setja mark sitt á störf deild- arinnar. Höfundur er sagnfræðingur. eftir Jóhann Tómasson í stefnuyfirlýsingu og starfsáætl- un nýskipaðrar ríkisstjómar Þor- steins Pálssonar fjallar 11. kafli um heilbrigðismál. Þar kemur fram, að ríkisstjómin hyggst leggja höfuð- áherzlu á forvamir og heilsuvemd og sérstaka áherzlu á að styrkja ávana- og fíkniefnavamir. Þetta er gleðiefni. Það vekur hins vegar ugg, að höfundur þessarar ríkis- stjómar, Jón Baldvin Hannibalsson, er helzti talsmaður lögleiðingar bjórs á íslandi og hefur „lofað“ að bera bjórfrumvarpið upp að nýju á Alþingi. Helztu kunnáttumenn á sviði ávana- og fíkniefna með prófessor Tómas Helgason í broddi fylkingar hafa ítrekað varað við hættu af bjómum. Sjálfur er ég ekki í vafa um, að bjórinn yrði við- bót við aðra neyzlu áfengis og að íslendingar myndu setja enn eitt heimsmetið, sbr. myndböndin, far- símana, reiðhjólin, fjórhjólin og mglarana. Ég skora því á íslenzka þingmenn og Jón Baldvin sérstaklega að hugsa sig vel um, áður en þeir vinna það óhappaverk að lögleiða bjór á Islandi. Forvamir era góðar, en forvamir era ekki bara verkefni heilbrigðis- starfsfólks. Raunar held ég að forvamir fari að veralegu leyti fram utan heilbrigðisþjónustunnar. For- vamarstarf er fyrst og fremst pólitík og öll pólitík er heilbrigðis- pólitík (eða óheilbrigðispólitík) — eins og einn þekktasti læknir 19. aldar, Virchow, benti á. Og pólitík er að vilja, eins og Olov Palme benti Jóhann Tómasson oft á. Mættu háttvirtir þingmenn minnast þess. Með vinsemd. Höfundur er læknir. JUl.l KR. 297 LÍKAMSDÝRKUN OQ NÚTÍMA- KONAN Júlíblaðið er fullt af spennandi og fjörlegu efni Staða formanns Sjálfstœðisflokksins Lúxusveiðar og stórlaxar Konur í Arabaríkjum Lífið á Grœnlandi Frumkvððull tísku 20. aldarinnar - Hvað ræður kvenímynd nútímans? Hvað er falleg kona?____________________ - Hver er staða kvenna í löndum Araba?____________ - Æsispennandi líf frétta- manna erlendis.__________ - Er lífið á Grænlandi tómt fyllerí og sóðaskapur? - Hver er staða Þor- steins Pálssonar eftir kosn- ingaósigur og klofning? - Viðar Eggertsson: kemur frægð hans að utan?______ - Hverjar eru fimm efnilegustu söngkonur landsins? - Maðurinn sem hélt að konan sín væri hattur. - Coco Chanel og tískan, arkitektúr, matur, kvikmynd- ir, skák, bókmenntir, fólk og margt fleira Ungfrú ísland 1987, Anna Margrét Jónsdóttír r Ástrós Gunnarsdóttir dansari Fæst á næsta blaðsölustað

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.