Morgunblaðið - 14.07.1987, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JULI 1987
Grænland:
Vonast til að finna nýja
stofna nyljafiska og mið
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgnnblaðsins.
JAPANSKA fiskrannsóknaskipið rannsókna og tilraunaveiða við
Shinkai Maru, sem er um 3000 Vestur- og Austur-Grænland á
tonn, er komið til Nuuk á Græn- vegum grænlensku landstjórnar-
landi. Verður það notað til innar.
Áskorun Evrópubandalagsins:
Sovétríkin
flytji her sinn
frá Afganistan
Bjartsýni á stefnu Gorbachevs að öðru leyti
Kaupmannahöfn, Reuter.
EVRÓPUBANDALAGIÐ (EB)
skoraði í gær á Sovétríkin að
flytja her sinn burt frá Afganist-
an. Það væri sönnun um jákvæð-
an vilja stjórnvalda í Moskvu, ef
þau létu kalla her sinn heim. Var
ályktun þessa efnis samþykkt á
fundi utanríkisráðherra EB í
Bríissel í gær.
Þá samþykktu utanríkisráðherr-
arnir tólf yfirlysingu, þar sem fram
kom ósk um, að Gorbachev myndi
takast að koma fram efnahagsleg-
um og pólitískum umbótum í
Sovétríkjunum. í yfirlýsingunni var
aðeins skírskotað til þeirra „nýju
möguleika," sem þróunin í Sov-
étríkjunum að undanförnu fæli í
sér. Jafnframt lýstu ráðherrarnir
yfir samþykki sínu við álitsgerð frá
Hans-Dietrich Genscher, utanríkis-
ráðherra Vestur-Þýzkalands,
varðandi stefnuskrá og baráttumál
Mikhail Gorbachevs Sovétleiðtoga.
Genscher gerði þeim grein fyrir
viðræðum sínum við sovézka ráða-
menn í Moskvu, á meðan opinber
heimsókn Richards von Weizsácker,
forseta Sambandslýðveldisins, til
Sovétríkjanna í síðustu viku stóð
yfir. Þessar viðræður gæfu ástæðu
til bjartsýni um, að Sovótríkstjórnin
hygðist draga að einhveiju leyti úr
hömlum þeim, sem ríktu í efna-
hags- og stjórnmálalífi Sovétríkj-
Markmið landstjórnarinnar er að
finna nýja stofna nytjafiska og ný
mið. Grænlenska útvarpið scgir, að
þetta sé umfangsmesta og metnað-
arfyllsta verkefni, sem landstjórnin
hafi staðið fyrir. Stjórnin er einkum
áhugasöm um rannsóknir á síld,
kolkrabba og kolmunna og gerir sér
vonir um, að þessar fisktegundii'
geti orðið grænlenskum sjávarút-
vegi ný lyftistöng.
Moses Oisen, sem fer með sjávar-
útvegsmál í landstjórninni, væntir
þess, að veiðarnar standi undir um
30% af kostnaðinum við rannsókn-
irnar. Japanska fiskrannsóknafyrir-
tækið Jamarc borgar það, sem þá
er eftir, og fær í staðinn að not-
færa sér niðurstöður rannsóknanna.
Landstjórnin fékk neitun í fyrra,
þegar hún fór fram á að fá lánað
danska rannsóknaskipið Dana, af
því að skipið var þá upptekið við
önnur verkefni. Stjórnin hafnaði
hins vegar boði, sem kom frá Is-
landi um lán á rannsóknaskipi.
Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegs-
ráðherra Islands, gagnrýndi þá
ráðstöfun í Morgunblaðinu í síðustu
viku, að Grænlendingar skyldu snúa
sér til Japana í máli þessu. Að hans
áliti stríðir þessi ákvörðun gegn
samningi Norður-Atlantshafsþjóð-
anna um að hafa eins mikla
samvinnu sín í milli og mögulegt er.
Brezka lávarðadeildin:
~T7~ '11 • 3T • Reuter
Konan a bak viðmannmn
Undanfarna daga hefur Oliver North, ofursti í Bandaríkjaher
verið mikið í sviðsljósinu vegna meintrar hlutdeildar hans í
vopnasöiumálinu svokallaða. í þingyfirheyrslum hefur hann
þótt standa sig með miklum ágætum og hefur almenningsálitið
enda snúist honum mjög í hag. Minna hefur hins vegar borið
á Betsy, eiginkonu hans, sem sést á meðfylgjandi mynd þar sem
hún fylgir manni sínum til yfirheyrslnanna. Henni er lýst sem
hæverskri konu, sem staðið hefur við hlið manns síns gegnum
þykkt og þunnt.
Sakbomingarnir frá Heysel
verði framseldir til Belgíu
Briissel, Reuter.
svæðið, þar sem stuðningsmenn Unnt var að greina hina ákærðu myndbanda frá sjónvarpi og Iög-
Juventus höfu tekið sér stöðu. úr mannfjöldanum með aðstoð reglu.
Kosningarnar í Ástralíu:
Stj ómarandstaðan
virðist í kreppu
og færa ímynd hans til hægri. For-
BREZKA lávarðadeildin, æðsti
dómstóll Bretlands, samþykkti í
gær að heimila framsal á þeim
26 Bretum, sem sakaðir hafa
verið um manndráp í tengslum
við óeirðirnar á Heysel-leikvang-
inum í Bríissel 1985. Jean Gol,
dómsmálaráðherra Belgíu, hét
því um leið, að sakborningarnir
skyldu fá sanngjarna málsmeð-
ferð.
Samþykkt lávarðadeildarinnar í
gær hefur það í för með sér, að
sakborningamir geta nú aðeins
komizt hjá því að verða dregnir
fyrir rétt í Belgíu með því að skjóta
máli sínu til Douglas Hurd, inn-
anríkisráðherra Bretlands, en hann
hefur úrslitavald í málum, sem
varða framsal sakamanna. Eftir
Gol var þó haft, að hann væri sann-
færður unm, að Hurd myndi heimila
framsalið.
Fari svo verða sakborningarnir
26 fluttir flugleiðis til Belgíu mjög
bráðlega og þeir hafðir í varðhaldi
í fangelsinu í Louvain, á meðan
réttarhöld yfir þeim standa yfir.
Líklegt þykir, að þrír dómarar dæmi
í máli þeirra hvers og eins en ekki
kviðdómur. Verði hinir ákærðu
fundnir sekir, geta þeir átt yfir
höfði sér allt að 10 ára fangelsi.
Oeirðirnar á Heysel-leikvangin-
um urðu, er úrslitaleikur var að
hcíjast um Evrópubikarinn í knatt-
spymu milli enska liðsins Liverpool
og ítalska liðsins Juventus. Flestir
þeirra 39 manna, sem biðu bana,
vom Italir. Krömdust þeir undir
vegg, sem hrundi, er stuðnings-
menn Liverpools ruddust inn á
Hawke vinnur
yfirburðasigur
Sydney, Reuter.
ÁSTRALSKA stjórnarandstaðan
virðist nú í kreppu eftir þriðja
kosningasigur Verkamanna-
flokksins í röð. Er áttatíu prósent
atkvæða höfðu verið talin, var
ljóst að Bob Hawke, forsætisráð-
herra, er ótvíræður sigurvegari
kosninganna. Deilur rísa hins
vegar í stjórnarandstöðunni, og
gætu jafnvel haft áhrif á flokka-
skipan i landinu.
Er 143 sætum af 148 í fulltrúa-
deild þingsins hafði verið úthlútað,
skiptust þau þannig, að Verka-
mannaflokkurinn hlaut 82 sæti en
stjórnarandstaðan 61 samtals.
Samkvæmt tölvuspám mun Verka-
mannaflokkurinn fá 18 til 25 sæta
meirihluta í deildinni, en hafði 16
sæta meirihluta áður.
Sætaskipting í öldungadeildinni
mun ekki verða ljós fyrr en eftir
nokkra daga vegna hins flókna fyr-
irkomulags kosninga til hennar, en
flokki Hawkes er einnig spáð
stærstum hlut þar. ,
Svo virðist sem landslag stjóm-
málanna í Ástralíu gæti breyst
nokkuð á næstunni vegna deilnanna
innan stjórnarandstöðunnar. Þjóð-
arflokkurinn og Ftjálslyndi flokkur-
inn, sem báðir þykja íhaldssamir,
hafa haft með sér bandalag um
fjörutíu ára skeið, en það var rofið
fyrir tveimur mánuðum vegna
óánægju Þjóðarflokksmanna í fýlk-
inu Queenslandí Norður-Ástralíu,
undir forystu Sir Johs Bjelke-Pet-
ersen, með samstarfið við Fijáls-
lynda flokkinn. Flokkarnir gerðu
með sér lauslegt bandalag á ný
skömmu fyrir kosningar, þar sem
útlit var fyrir að skortur á einingu
í forystu stjómarandstöðunnar
vekti með kjósendum ótta við óstöð-
ugleika í stjórn landsins, kæmust
íhaldsmenn til valda.
Þjóðarflokksmenn í Queensland
vilja breikka grundvöll flokks síns
seti Þjóðarflokksins í fylkinu, John
Sparkes, sagði í gær að það kæmi
ekki til greina að halda áfram
bandalaginu við Fijálslynda flokk-
inn. Sparkes sagði að uppstokkun
í flokkakerfínu myndi leiða af sér
stofnun nýs, íhaldssams flokks.
Hann sagði: „[Flokkurinn] þyrfti
nýtt nafn og nýja stefnu. Hann
yrði algerlega nýtt afl, sem tæki
yfir Þjóðarflokkinn og hægri arm
Frjálslynda flokksins."
Formaður Þjóðarflokksins, Ian
Sinclair, hefur sett ofan í við þá
Bjelke-Petersen og Sparkes og
sagst skyldu halda flokknum sam-
an, en margir stjórnmálaskýrendur
telja að það geti reynst honum erf-
itt án stuðnings Queenslandbúa.
John Howard hefur látið í ljós
þá skoðun að óeiningin í Þjóðar-
flokknum og klofningur bandalags
flokkanna hafi gert hann ótrúverð-
ugan í augum kjósenda og valdið
miklu um kosningaósigurinn.
En Howard á einnig við vanda-