Morgunblaðið - 14.07.1987, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987
33
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir Jóhönnu Kristjónsdóttur
Portúgal:
Kosningabaráttu að ljúka
og Cavaco Silva spáð sigri
ENN EINNI kosninga baráttu í Portúgal vegna þingkosninga
er að ljúka og allar spár benda til, að Sósialdemókrataflokkur-
inn (PSD) undir forystu Anibals Cavaco Silva, forsætisráð-
herra síðustu stjórnar vinni stóran sigur. Silva hefur skorað
á menn að veita flokki sínum meirihluta til að stjórnin fengi
vinnufrið og gæti setið út kjörtímabil og gert þær ráðstafan-
ir sem Silva telur brýnar og stjórn hans var komin nokkuð
á veg með. Til þess að komast í meirihlutaaðstöðu þurfa sós-
ialdemókratar að fá allt að 46%. Síðustu spár gefa þeim 39-
42%, en portúgaiskir fréttaskýrendur segja, að án efa muni
margir kjósendur, sem enn eru í vafa - meðal annars vegna
tryggðar við flokk sem áður hefur verið kosinn- ákveða á
síðustu stundu, að Sósialdemókratar séu vænlegasti kosturinn
og þvi sé hreint ekki útilokað, að Cavaco SUva fái snöggtum
meira.
Ollum spám ber saman um,
að Lýðræðislegi endumýj-
unarflokkurinn PRD, sem er í
daglegu tali kallaður Eanista-
flokkurinn, muni bíða afhroð.
Hann tapaði miklu fylgi í borgar
og sveitastjómarkosningunum
síðustu og ekkert bendir til að
hann hafí styrkt sig í sessi síðan.
í þingkosningunum þeim einu
sem flokkurinn hefur boðið fram
í, fyrir tveimur ámm, var fylgi
hans töluvert yfír 20% Álitið er,
að útkoman nú verði naumast
meira en 12-15 prósent - og í
bezta falli.
Það er Ramalho Eanes, fyr-
verandi forseti landsins, sem
stofnaði flokkinn og stýrir hon-
um, eins og alkunna er. Eanes
naut vinsælda sem forseti, en
augljóslega hefur hann fátt það
til að bera sem þarf til að öðlast
tiltrú í stjómmálum. Hann hefur
þótt seinheppinn í stjóm flokks-
ins og hikandi og það sem er
náttúrlega sýnu verstjflokkinn
vantar eiginlega starfsgmn-
dvöll. Því að Eanes bjó til þennan
flokk af þeirri ástæðu einni, að
hann vildi ekki hverfa úr sviðs-
ljósi eftir að forsetatímabili hans
lauk. Svo að flokkurinn byggðist
á vinsældum hans persónulega
og þegar það sýnir sig svo, að
hann hefur sáralítið fram að
færa er ekki kyn þótt fari að
halla undan fæti. Þá hefur það
orðið flokknum álitshnekkir að
sýna það dómgreindarleysi að
bera fram vantraust á farsæla
ríkisstjóm og á röngum tíma.
Sósialistaflokkurinn-PS-
missti fylgi til Lýðræðislega end-
umýjunarflokksins í síðustu
þingkosningum, en ýmsir gera
því skóna, að slangur af þeim
atkvæðum skili sér nú aftur. Þó
hefur Sósialistaflokkurinn ekki
náð sér á strik eftir að Mario
Soares, nú forseti, lét af for-
mennsku. Vitor Constancio sem
tók við af Soares þykir ekki
litríkur og tekst ekki að ná til
fólks eins og forveri hans. Mál-
efnaleg barátta sósialista nú
hefur á allan hátt verið í dau-
fara lagi og Sósialistaatkvæðin,
sem hurfu frá flokknum síðast,
gætu mörg hver farið til PSD.
Miðdemókratar, CDS, undir
formennsku Adrianou Moreira,
fyrmm ráðherra hjá Salazaar,
er ekki nema svipur hjá sjón og
er honum spáð fylgistapi, úr 12
prósentum í 5-8 prósent. Ailir
þeir, sem unnu að stofnun Mið-
demókrata eftir byltinguna
Ramalho Eanes: hann þykir
misheppnaður stjórnmálamað-
ur og flokknum er spáð fylgi-
stapi
1974, hafa horfíð frá störfum
fyrir hann og flokknum tekst
ekki að ná til ungra kjósenda
eins og fyrir nokkmm ámm.
Kommúnistaflokkur Cunhals,
PCP, er í samstarfí með nokkr-
um öðmm vinstriflokkum.
Reiknað er með að hann fái sín
venjuleg 16-18%.
Kosningabaráttan hefur verið
með öðmm brag en stundum
áður. Þar kemur ýmislegt til.
Efnahagsmál hafa ekki verið í
brennidepli, í fyrsta skipti frá
því lýðræði var komið á. Aðal-
lega vegna þess að í tíð minni-
hlutastjómar Anibals Cavacvo
Silva náðist eftirtektarverður
árangur í efnahagsmálum.Svo
að þau mál brenna ekki jafn
heitt á fólki og áður. Það er
þakkað skömlegri og vitlegri
stjóm fjármálaráðherrans Cadil-
he. Því era nú önnur mál
kjósendum og stjómmálamönn-
um ofar í huga. Fyrst og fremst
hafa mennta- og kennslumál
verið rædd. Þeim hefur ekki
verið sinnt á viðunandi hátt og
Portúgalar segja, að kennsla á
öllum stigum sé lakari en boðið
er upp á annars staðar. Kannski
sé ástandið skást á háskólastigi,
en þá sé þess að gæta, að nem-
endur komi með magra undir-
stöðu í háskólana. Öllum er
metnaðarmál, að þama verði
gert raunvemlegt átak og enda
þjóðarvirðing í veði. Þá hafa
umræður snúizt heilmikið um,
hvemig verði áfram unnið að
því að aðlaga landbúnaðarstefn-
una betur að aðild Portúgals að
Evrópu bandalaginu.
Þótt Portúgalir hafi oft þurft
að kjósa síðustu þrettán ár og
kosningaleiða hafí gætt, em
flestir á því, að þátttaka verði
góð nú. Það dæmalausa fmm-
hlaup Lýðræðislega endumýjun-
arflokksins að flytja vantraust á
stjómina í vor og fá Sósialista-
flokkinn til styðja tillöguna
hefur greinilega kallað fram
gremju og vandlætingu hins al-
menna kjósanda og mun trúlega
Anibal Cavaco Silva: Nær
flokkur hans meirihluta á
þingi?
birtast í fylgisaukningu PSD
eins og í upphafí sagði.
Cavacou Silva hefur verið
hinn sterki maður kosningabar-
áttunnar. Hann er góðum gáfum
gæddur, harðskeyttur og að
mörgu leyti ósveigjanlegur, þeg-
ar hann vill koma fram stefnu
sinni. Portúgalar vilja líka sterka
og afdráttarlausa stjómmála-
menn. Og meta þá að verðleikum
ef þeir sýna dirfsku og þora að
taka áhættu, sem vit er í.And-
stæðingar hans segja, að hann
sé hrokafullur og ópersónulegur.
En allir segja, að hann sé heiðar-
legur stjómmálamaður í alla
staði. Hann hefur valið góða og
hæfa menn til samstarfs með
sér, en er vinnuþjarkur og hlífír
sér hvergi. Lítill samkvæmis-
maður, lifír einföldu lífí og hefur
ekki breytt lífsháttum sínum eða
fjölskyldunnar, þann tíma sem
hann hefur verið forsætisráð-
herra. Það líkar löndum hans
mæta vel.
Það bendir ýmislegt til að það
gæti orðið lýðræðinu til styrktar
og portúgölsku þjóðinni til góðs,
ef niðurstöður kosninganna
verða á þá lund, að Sósialdemó-
krataflokkurinn næði hinum
langþráða meirihluta þann
19.júlí.
Rúmenar sigruðu á Ólympíuleikum í
eðlisfræði:
Islendingur fékk
viðurkenningu í
fyrsta skipti
Jena, frá fréttaritara Morgunblaðsins, Viðari Agústssyni.
VERÐLAUN á eðlisfræðileikun-
um í Jena voru í dag afhent i
hátiðarsal Fredrich-Schiller-há-
skólans að viðstöddum mennta-
málaráðherra, borgarstjóra og
háskólarektor. Er þar með lokið
keppni, sem var Austur-Þjóðveij-
um til sóma í alla staði, góður
aðbúnaður, vönduð keppnisverk-
efni og nákvæmt skipulag.
Eðlisfræðileikamir em keppni
milli einstaklinga og sigraði Rúm-
eninn Catalin Malureanu með 49
stigum af 50 mögulegum. Landi
hans varð næstur, Ciprian Necula,
með 45 stig, og þriðji Hollending-
ur, Bastian Backer, með 44 stig.
Besta stúlkan í hópnum var Didina
Serban frá Rúmeníu með 42 stig.
Gunnar Guðnason varð efstur
íslendinganna með 24 stig og fékk
hann viðurkenningu fyrir góðan
árangur. Er þetta í fyrsta skipti sem
íslendingur fær viðurkenningu á
eðlisfræðileikunum, en 1984 skorti
Vilhjálm Þorsteinsson aðeins hálft
stig til að ná viðurkenningu.
I óopinberri keppni þjóðanna
urðu Rúmenar yfírburðasigurveg-
arar, aðrir urðu Vestur-Þjóðveijar,
en Kínveijar vom í þriðja sæti.
Næstir og jafnir vom Áustur-Þjóð-
veijar, Ungveijar, Pólveijar, og
Rússar. íslendingar náðu sínum
besta árangri hingað til, höfnuðu í
19. sæti af 25 með betri árangur,
en Ástralía, Kanada, Ítalía, Tyrk-
land og Kuwait.
Næstu Ólympíuleikar í eðlisfræði
verða í Bad Ischel í Austurríki í lok
júní á næsta ári. Hefur öllum núver-
andi þátttökuþjóðum verið boðið til
leikanna og er búist við allt að 150
keppendum.
18. ólympíuleikarnir í eðlisfræði:
„Auðvitað Jena-
gler í tilrauninni“
Frá fréttarítara Morgunblaðsísins í Jena,
UNGMENNI frá 25 þjóðum anda
nú léttar í Jena þar sem þeirra
hlutverki er lokið á 18. ólympíu-
leikunum í eðlisfræði. Eftir er
vinna dómnefndar og fararstjóra
við að meta lausnir keppenda og
raða í vinningsröð.
Verklega verkefnið fjallaði um
ljósbrot í gleri og vatni. Auðvitað
var notað prisma framleitt í Jena
sem fræg er fyrir linsugerð og gler-
vöra. Fengu keppendur það verk-
efni að framkvæma að vild
mælingar til að reikna brotstuðlana.
Tilraunin og skýrslugerðin tóku
fímm klukkutíma.
Hjörtur frá MA var hinn eini
íslensku þremenninganna sem áður
ðari Ágústssyni.
hafði gert prisma-tilraun. „Ég
þekkti tilraun þar sem kíkt var á
títupijóna í gegnum prisma og
framkvæmdi svipaða tilraun með
strikum á blaði," sagði Hjörtur sem
fór nærri réttum brotstuðli glersins.
„Hins vegar náði ég ekki að reikna
brotstuðul vatnsins."
Leið keppenda lá í stjömuathug-
unarstöðina í Jena þar sem rann-
sökuð er innbyrðis afstaða
stjamanna í fortíð, nútíð og framtíð.
Þá fara keppendur einnig í skoðun-
arferð til Buchenwald-útrýmingar-
búðanna í Weimar sem enn standa
sem minnisvarði um mannvonsku
nasista.
Hækkun áhættugjalds á ríkisábyrgðir:
Nær að láta gjald-
ið ná til allra
skuldbindinga
- segir Bragi Hannesson fram-
kvæmdasljóri Iðnlánasjóðs
„Ég tel eðlilegt að þeir sem njóta
ríkisábyrgðar greiði fyrir hana
áhættugjald, en aftur á móti
hefði verið nær að láta þetta
gjald ná til allra skuldbindinga,
þar með talið innlendra, i stað
þess að hækka gjaldið á erlend-
um skuldbindingum einvörð-
ungu“, sagði Bragi Hannesson,
framkvæmdastjóri Iðnlánasjóðs,
þegar Morgunblaðið innti hann
álits á þeirri ákvörðun rikis-
stjórnarinnar að hækka áhættu-
gjald fyrir ríkisábyrgðir um
0,5%.
„Sem dæmi má nefna að ríkis-
bankamir auglýsa að ríkisábyrgð
sé á innlánum í þeim en fyrir hana
er ekki borgað neitt áhættugjald.
Það hefði verið betra að hafa gjald-
ið almennara og lægra.
Samkvæmt bráðabirgðalögunum
verður einnig settur á sérstakur
skattur á erlendar lántökur, 1-3%
eftir lengd lánstímans, og mun hann
án vafa hækka fjármagnskostnað
fyrirtækjanna og veikja samkeppn-
isstöðu þeirra. Það er mikið um
framkvæmdir um þessar mundir og
bjartsýni ríkjandi í mörgum grein-
um iðnaðar og menn verða að passa
sig á að slá ekki um of á þá bjart-
sýni. Þama er verið að gera hluti
sem eiga eflaust eftir að skila sér
í auknum hagvexti þegar fram í
sækir.
Það leikur þó enginn vafi á því
að þessi skattur mun þjóna þeim
tilgangi sínum að draga úr eftir-
spurn eftir erlendu fjármagni og
er mun betur til þess fallinn en
gamla skömmtunarkerfíð.
Það hefði þó verið æskilegra ef
þessi skattur hefði verið lagður á
sem liður af endurskipulagningu
skattkerfisins en ekki í snarhasti
til þess eins að hjálpa til að brúa
halla ríkissjóðs," sagði Bragi að
lokum.