Morgunblaðið - 14.07.1987, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 14.07.1987, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐE), ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987 Julie Cox (eða Kent) eins og hún kallast síðan hún lék í myndinni Giselle á móti Mikhael Barysnikov. Frá vinstri: Julia Kent, Thomas Mills og Deidre Byrne 811 fyrrv. nemendur í Maryland ballettskólanum. Ballettstj örnur úr litlum ballettskóla Sif er yndislegur nemandi, sagði Tensia um leið og hún faðmaði hana að sér. eftir Sigurborgu Ragnarsdóttur Innan um nýbyggða skýjakljúfa í miðborg Bethesda (bær álíka stór og Reykjavík, rétt utan við höfuð- borg Bandaríkjanna) er Maryland- ballettskólinn til húsa. Lítið vissi ég um þennan ballett- skóla fyrr en fyrir u.þ.b. ári að tækifæri gafst fyrir tilstuðlan fslensks nemanda við skólann að sjá meiriháttar afmælissýningu hjá þeim. Þessi afmælissýning var nokk- uð sérstök ekki bara vegna þess að 15 ár voru liðin frá stofnun skólans, heldur einnig vegna þess að einn nemandi skólans hafði stuttu áður unnið eitt af Qórum efstu sætum í árlegri ballettkeppni í Lausanne í Sviss (Prix de Lausanne) og var nú kominn heim til að dansa verðlauna- dansinn fyrir skólafélagana. Blaðamaður Washington Post, Alan Kriegsman, skrifar í blað sitt að sýningu lokinni: „Maryland-ball- ett-flokkurinn er óvenjulegur hópur og sama má segja um sýninguna. Ballettinn „Þymirós" sannar óvenju mikla hæfíleika Michelle Lees (starf- andi kennari skólans og fyrrverandi verðlaunadansari) sem setti ballett- inn á svið og Tensia Fonseca stjóm- anda skólans. Fyrrverandi nemendur skólans, en þar eru í broddi fylking- ar sonur Tensiu Fonseca, Peter, Susan Jaffe og Cheryl Yeager, sem öll dansa með Bandaríska ballett- félaginu (The American Ballet Theatre) undirstrika að ballettskól- inn og þeir sem hann reka eru mjög miklum hæfíleikum búnir. Alan held- ur áfram og talar um nýjasta undrabam ballettheimsins, Juliu Cox, sem dansaði Áróru í Þymirósu. óvenjulegir hæfileikar þessarar stúlku, útlitið, framkoman og hreyf- ingar hennar gefa strax til kynna að hér er engin meðalmanneskja á ferð, öllu heldur undrabam, sem oft tekur marga áratugi að fínna. Stuttu eftir að þessi blaðadómur birtist bauðst Júlfu að leika aðal- hlutverk í kvikmynd á móti sjálfum Mikhael Barysnikov. Síðan er liðið eitt ár og margt hefur gerst á einu æviári 17 ára stúlku, nafn hennar breyst úr Cox í Kent og hún að mestu flutt til New York, þar sem hún dansar með American Ballet Theatre." Til að forvitnast um hvað liggur að baki rekstri skóla, sem útskrifar marga nemendur er ná á toppinn í mjög miklu samkeppnisþjóðfélagi, náði ég tali af upphafsmanni og stjómanda skólans. Auk þess ræddi ég við eina íslenska nemanda skól- ans, Sif Snorradóttur Þorgeirssonar og Unnar Pétursdóttur, sem bæði eru starfandi vísindamenn við Heil- brigðisstofnun Bandaríkjanna (National Institute of Health). — Hvenær hófstu rekstur skólans og hvers vegna? — Fyrst fékk ég nemendur úr næsta nágrenni og kenndi þeim heima hjá mér. Eftir að ég giftist hætti ég að dansa sem atvinnudans- ari þar sem ég var bundin heima við með eigin böm. Skólinn varð fljótt mjög vinsæll. Ég gat einungis haft 40 nemendur heima hjá mér og sömu nemendur héldu áfram ár eftir ár. Að lokum urðu elstu stúlkumar svo stórar að það var ekki lengur pláss fyrir þær I kjallaranum hjá mér. Þetta varð til þess að ég stofnaði Maryland-ballettskólann í Bethesda og nemendafjöldinn orðinn 500 manns, þar af er helmingurinn full- orðnir. — Hvað með starfsfólkið? — Við höfum samsafn af mjög hæfíleikamiklu fólki. Það eru sam- tals 7 kennarar og-6 píanóleikarar. — Hvemig er fjárhagsrekstri skólans háttað? ' — Hann er rekinn án nokkurs ágóða. Við höfum heimild til að krefj- ast skólagjalda. Ég ákvað er við fluttum hingað að einungis kennarar og ritari fengju laun borguð, allir aðrir sem hefðu áhuga á því að starfa við skólann yrðu að gera það í sjálfboðavinnu. Og þeir eru margir. Það eru margir sem eyða ótakmörk- uðum tíma hér í sjálfboðavinnu. — Eru það þá aðallega foreldrar? — Já, það er rétt. Þegar bömin þeirra útskrifast, halda foreldramir áfram sambandi og vinna hér áfram mikla sjálfboðavinnu. Það eru u.þ.b. 15—20 foreldrar sem eru nátengdir skólanum og eyða hér miklum tíma. Einn sér um allt bókhald skólans, annar sér um alla skipulagningu á stundaskrám kennara og nemanda. Hún er doktor í stærðfræði og þigg- ur engin laun fyrir sitt starf. Svona mætti lengi telja. Bandarískar konur eru ekkert sérlega lagnar við saumaskap — í sýningarskrá sá ég að þú hannar flesta búninga fyrir sýning- ar! — Jú, ég hanna þá og mæður hjálpa mér við ýmiss konar frá- gagn. Amerískar konur eru ekkert sérstaklega lagnar við saumaskap. (Þess má geta að Tensia kemur upphaflega frá Puerto Rico.) Þeim finnst hins vegar gaman að sauma kögur og pífur og allt tekur þetta mikinn tíma. En sjálf sé ég um all- an annan saumaskap. — Þetta hlýtur að vera tímafrekt miðað við allan annan undirbúning varðandi skólastarfíð? — Vissulega, fyrir sýningar sit ég oftast við frá kl. 10—2 á kvöld- in og sauma. — Það er mikið um að foreldrar hjálpi til í skólum barna sinna hér í Bandaríkjunum. Foreldrafélög eru mun virkari hér en þú átt að venj- ast víða í Evrópu. — Það eru a.m.k. 40 foreldrar sem leggja einhverja vinnu af mörk- um fyrir skólann. Það eru mismun- andi hópar eins og þeir sem taka þátt í fjáröflun fyrir skólann. Þeir hittast og ræða um hina ýmsu möguleika, eins og t.d. núna erum við að senda út um 200 bréf til kaupmanna á svæðinu. Við erum að hugsa um að flytja, svo bréfín eru aðallega send í spegla- og pípu- lagningaverslanir, þar sem við biðjum um ýmislegt fyrir skólann. — Er dýrt að læra ballett? — Það er talsvert kostnaðarsamt og ekki á færi nema efnaðri for- eldra að kosta bömin sín í slíkt nám. Skólinn okkar er ekkert dýr- ari en gengur og gerist hér á svæðinu. En það kostar 2.000 doll- ara allt árið fyrir þá nemendur sem eru í efstu bekkjunum. — Hvert er hlutfallið á milli pilta og stúlkna í skólanum? — Við höfum u.þ.b. 180 stúlkur og aðeins 10 stráka eins og er. En við vonumst til að hafa a.m.k. einn strákabekk, þegar við erum komin í nýtt húsnæði. — Hvað eru nemendur lengi hér í námi? — Frá 5—17 ára aldurs. Þegar þeir verða 17 ára eru þeir annað- hvort tilbúnir að fara í háskóla eða að ráða sig í atvinnudansflokk. Ef hvorugt verður fyrir valinu finna þessir nemendur ævinlega vinnu og flestir koma þeir hingað aftur sem fullorðið fólk í framhaldsdeildina. Hún er fyrir þá sem hafa hætt að dansa eri vilja halda sér við. Nýtt undrabarn í ballettheiminum — Alan Kriegsman kallar Juliu Kent eða Cox, fyrrverandi nemanda þinn, „Wunderkind" í Washington Post. Er hún besti nemandi sem þú hefur haft? — Nei! (svarar Tensia mjög snögglega). Hún er ein af þeim hæfíleikameiri, en við eigum þó nokkra mjög góða dansara. Þrír, þar af sonur minn Peter meðtalinn, hafa verið í American Ballet Theatre-flokknum og á ég þá við Susan Jaffe, Cheryl Yeager. Sú fyrmefnda er einn besti aðaldans- ari flokksins. (Hér má kannski bæta inn til gamans, að nýlega var mynd af Susan í Time- tímaritinu þar sem sagt var frá því að hún dansi um þessar mundir aðalhlut- verk í Þymirósu. Auk þess var nýlega minnst á hana í samkvæmi hvíta Hússins í tilefni af nýlegri heimsókn forsætisráðherra Japan.) — Hvað gerir nemanda eins og t.d. Júlíu að svo góðum dansara? Er það bakgmnnurinn, námið hér eða sambland af þessu? — Það er sambland af ýmsu. Hún er fallegur dansari og hefur sömu hæfileika og hinir sem ég hef talað um áður, en þegar verið var að velja fólk í kvikmyndina Giselle, sem Mikhael Baryshnikov leikstýrir og leikur í, var leitað að ákveðinni manngerð. Þeir þurftu ekki einung- is góðan dansara heldur einhvem með sérstakt aðdráttarafl og Júlía hefur þetta alit. Stöðugnr megrunarkúr er það eina sem dugir? — Halda einungis bestu nemend- ur áfram eða hætta hæfíleikamiklir nemendur áður en þeir útskrifast? — Það em því miður nokkrir nemendur sem við höfum misst, annaðhvort af því að þeir flytja, meiðast eða af því að foreldramir þrýsta á bömin og segja að ballett sé ekki ákjósanlegasti ferill og vilja að bömin fari í háskóla. Aðrir hætta vegna þyngdar. — Hafið þið uppskrift að ein- hveiju sérstöku mataræði sem nemendur geta fylgt? — Nei, en við höfum prófað ýmislegt. Þetta er erfítt. Þessi börn þurfa á mat að halda. Þau em að vaxa úr grasi og verða að nærast. Ef þau em stöðugt í megmn, þjást þau og hafa ekki þá orku sem þarf til að stunda alla þessa áreynslu. En ef þau passa sig ekki þá fá þau ekki inngöngu í atvinnudansflokk- ana. Svo það er undir þeim komið. Vilja þau grenna sig og hafa mögu- leika á meiri frama eða hætta og fara í háskóla. Það kemur að því að þau koma og segjast ekki þola þetta lengur og hafa valið að fara í háskóla. Við höfum misst stórkost- lega dansara! — Ertu með þessu að segja að þeir sem hafa mestan sjálfsaga haldi áfram? — Þeir sem ekki þurfa að standa í þessari baráttu eða hafa frá upp- hafí fullkominn líkama em þeir sem halda áfram. Nemendur sem hafa langa fótleggi, þurfa ekki stöðugt að passa línurnar, eiga metnaðar- gjama foreldra sem ekki víla fyrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.