Morgunblaðið - 14.07.1987, Síða 52
8S
52
IJH flíTíí A IHVfTIDHOM
Y86Í IJÚÍ. ,ht ÍTUOAflTTUI
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987
Hjónaminning:
Hafliði Halldórsson og
SigríðurF. Erlendsdóttír
Fæddur 6. október 1899
Dáinn 5. júli 1987
Fædd 5. apríl 1901
Dáin 29. mars 1982
í dag verður kvaddur og jarðsett-
ur á Patreksfirði Hafliði Halldórs-
son, fyrrverandi bóndi á Hvallátr-
um. I þvi tilefni vil ég einnig
minnast eiginkonu hans, Sigríðar
Filippíu Erlendsdóttur, þótt fimm
ár séu nú liðin frá fráfalli hennar.
Hafliði fæddist í Keflavík í
Rauðasandshreppi í Vestur-Barða-
strandarsýslu. Foreldrar hans voru
hjónin Halldór Benjamínsson, bóndi
þar, og Anna Jónsdóttir. Halldór
andaðist árið 1905 frá bömum
sínum ijórum í ómegð, sem ólust
upp með móður sinni og hálfbróður
sínum, Ingimundi Halldórssyni, sem
var stoð stjúpu sinnar.
Árið 1915 réðst Hafliði til Er-
lends Kristjánssonar, útvegsbónda
og vitavarðar á Hvallátrum, og eig-
inkonu hans, Steinunnar Ólafsdótt-
ur Thorlacíus. Þessi vistráðning að
Miðbæ reyndist afdrifarík, því hann
var heimilisfastur þar nær samfellt
næstu 35 ár. Sigríður, dóttir Er-
lends og Steinunnar, og Hafliði,
felldu hugi saman og voru gefin
saman 1926.
Sigríður Filipppía fæddist á
Hvallátrum í Rauðasandshreppi og
ólst þar í stórum systkina- og fóst-
ursystkinahópi. Sigríður var
myndarleg og glaðvær en ávallt
hæglát í daglegri umgengni.
Þau eignuðust þijár dætur Önn-
ur sem fæddist 1927 og er gift
Áma Helgasyni frá Kollsvík, Erlu
Kristjönu, sem fæddist 1930, og var
gift Kristjáni Jóhannessyni frá
Norður-Botni í Tálknafirði, sem nú
er látinn, og Ólöfu Þórunni, sem
fæddist 1932 og er gift Þórði Guð-,
laugssyni frá Stóra-Laugardal í
Tálknafírði. Bamaböm urðu 20 og
bamabamaböm em nú 31.
Sigríður og Hafliði hófu búskap
í sambýli við foreldra Sigríðar á
Hvallátrum, en Hafliði hafði 1924
keypt hluta af Húsajörðinni, sem
hann nytjaði. Árið 1935 tóku þau
við ábúð á Miðbæ. Að Erlendi
Kristjánssyni látnum 1938 tók hann
einnig við stöðu vitavarðar á
Bjargatangavita og gegndi því
starfi þar til hann flutti frá Hvall-
átrum árið 1950.
Á fyrsta hluta þessarar aldar var
margmenni á Látmm, sjór sóttur
af kappi, bjarg nytjað auk þess sem
almennur landbúnaður var stundað-
ur. Þegar Hafliði kom unglingur
að Látmm var hann jafnoki fulltíða
manna til allrar vinnu og gekk
ótrauður að öllum störfum. Hann
var kappsfullur og vaskúr maður.
Fram eftir öllum aldri naut hann
þess að afkasta meim en flestir
menn og hafði lag á því að láta þá,
sem unnu með honum, hrífast með.
Varla hefur nokkur maður þekkt
Látrabjarg betur og farið víðar um
Bjargið en Hafliði. Hann var því
vel í stakk búinn að takast á við
þá þrekraun, þegar honum, ásamt
sveitungum sínum í Slysavama-
deildinni Bræðrabandið í Rauða-
sandshreppi, tókst að bjarga tólf
skipbrotsmönnum af enska togar-
anum Doon, sem strandaði undir
Látrabjargi í árslok 1947.
Eiginkonan, Sigríður, lét þá ekki
heldur sinn hlut eftir liggja. Allir
verkfærir menn á Látram vom
famir út í Bjarg til að vinna að
björguninni. Hún veitti þá leiðsögn
hópi manna, sem vom ókunnugir á
þessum slóðum, og áttu að færa
björgunarmönnum og skipbrots-
mönnum vistir, en hríðarveður var
og skyggni slæmt. Tvær konur aðr-
ar vom með í þessari ferð og þar
með þátttakendur í hinni fræknu
björgun, dóttirin Ólöf, sem þá var
aðeins 15 ára, og Oddný Guð-
mundsdóttir kennari.
Sigríður, systir mín, varðveitti
sína bamatrú alla ævi, hún bar
ekki á torg skoðanir sínar, en líf
hennar og breytni við samferðafólk-
ið sýndi hvað í henni bjó. Hún signdi
yfir hvílu bamanna, sem hún bjó
undir svefninn, hvort sem það vom
hennar eða annarra böm.
Öll vor sótti Hafliði sjóinn frá
Látmm, en Sigríður annaðist þá
sauðburðinn og önnur vorverk með
dætmm sínum, nærfærin og athug-
ul. Margir mætir menn stunduðu
sjóinn með Hafliða þessi ár.
Systursonur Sigríðar, Erlendur
Jónsson, skipstjóri hjá Eimskip, hóf
t.d. sinn sjómannsferil á báti Haf-
liða.
Sigríður og Hafliði vom samvalin
um góðvild og hjálpsemi við sveit-
unga sína, fögnuðu gestum af
einlægni og veittu góðan beina öll-
um, sem að garði bar. Sumarbömin
þeirra minnast þeirra með virðingu
og þakklæti.
Bæði vom þau hjónin bókelsk,
þótt of sjaldan gæfist tími til lestr-
ar. Sigríður kaus að lesa fagurbók-
menntir eða skáldsögur, en Hafliði
hafði mesta ánægju af þjóðlegum
fróðleik, sögum um afreksmenn og
aldarhætti.
Árið 1950 fluttu þau hjónin frá
Hvallátmm og bjuggu félagsbúi
með dóttur sinni, Önnu, og eigin-
manni hennar, Áma Helgasyni, í
Neðri-Tungu í Örlygshöfn til ársins
1963. Hafliði réðst þá í vinnu til
Rafmagnsveitna ríkisins og vann
mest við trésmíðar. Þau Sigríður
bjuggu þá hjá Erlu dóttur sinni og
tengdasyninum Kristjáni Jóhannes-
sjmi á Patreksfirði. Þar áttu þau
heimili uns Sigríður andaðist 1982.
Hafliði kenndi nú elli og sjónin
dapraðist. Hann fékk þá vist á
Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði.
Þar undi hann vel hag sínum og
var þakklátur fyrir allt atlæti. En
auðvitað var honum mest gleðiefni
ástsemin og umhyggja dótturinnar
Ólafar og tengdasonarins Þórðar
Guðlaugssonar. Gleði hans var ein-
læg þegar bamabömin komu í
heimsókn. Erfiðast þótti honum að
hafa ekkert fyrir stafni, eins og
hann orðaði það.
Nú hefur hann fengið þráða hvíld
og verður í dag til moldar borinn í
Patreksfjarðarkirkjugarði við hlið
eiginkonu sinnar.
Hvíli í friði kærir vinir, með virð-
ingu og þökk fyrir samfylgdina.
Jóna Erlendsdóttir
Þann 5. júlí 1987 lést langafi
minn, Hafliði Halldórsson, í Landa-
kotsspítala. Það era til margar
minningar um hann. Þegar hann
var á elliheimilinu í Hveragerði var
hann hress og spjallaði við okkur.
í hvert skipti sem við bömin komum
til hans átti hann alltaf eitthvað til
að stinga í vasann, og þegar við
fómm frá honum þá fylgdi hann
okkur alltaf til dyra. Langafí varð
mikið veikur og kom á spítala til
Reykjavíkur, svo var hann fluttur
þaðan á elliheimilið Gmnd. Þegar
ég kom til hans í síðasta skiptið
þá spjallaði hann við mig og var
nokkuð hress, ég gaf honum shake
og var hann ánægður með það. Það
var í síðasta skiptið sem ég sá hann,
því hann var fluttur í spítala og var
mikið veikur, og fyrir hádegið
sunnudaginn 5. júlí hringdi amma
Ólöf og sagði: „Langafí þinn er
dáinn." En við skulum hugsa vel
til hans, og nú líður honum vel hjá
Guði.
t
Sambýliskona mín,
HELGA GUÐLEIFSDÓTTIR,
Hverfisgötu 48,
Hafnarfirði,
lést í St. Jósefsspítala þann 11. júlí.
Fyrir hönd aöstandenda,
Jón Sveinsson.
t
Faðir okkar,
EINAR ÞORSTEINSSON,
Boðahlein 11, Garðabæ,
lést i Landspítalanum 12. júlí sl.
Markús Á. Einarsson,
Elín Einarsdóttir,
Sigríður H. Elnarsdóttir,
Helga Þ. Einarsdóttir.
Eiginmaður minn. t fSLEIKUR JÓNSSON, Vestmannabraut 59,
Vestmannaeyjum,
andaðist í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 12. júlí.
Elfnborg Pétursdóttir.
Eiginmaður minn. t
JEAN JÓHANN FRANKSON DE FONTENAY,
Útgörðum, Hvolhreppi,
er látinn. Ólöf Kristófersdóttir.
t
Faöir okkar,
SIGURBJÖRN INGVARSSON
frá Þóroddsstöðum í Grímsnesi,
andaðist i Borgarspítalanum sunnudaginn 12. júlí.
Jaröarför verður auglýst síðar.
Katrín I. Sigurbjörnsdóttir,
Ellert B. Sigurbjörnsson,
Ingvar Sigurbjörnsson.
t
Eiginmaður minn,
ÞORSTEINN ÞORBJÖRNSSON,
Sörlaskjóli 18,
Reykjavík,
lést i Landakotsspítalanum að morgni 13. júli.
Fyrir hönd vandamanna,
Guðný Jóhannsdóttir.
t
Útför móðursystur okkar,
ÖNNUJÓNSDÓTTUR
Ijósmyndara,
Hafnarflrði,
fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miövikudaginn 15. júlí kl. 13.30.
Kristfn Claessen,
Laura Claessen.
t
Móðir okkar,
KRISTÍN ÞORSTEINSDÓTTIR
frá Ytri-Þorsteinsstöðum,
Fannborg 5, Kópavogi,
lést 1. júlí síöastliöinn. Jaröarförin hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu. Þökkum auösýnda samúð.
Fyrir hönd aðstandenda,
börn hinnar látnu.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
FJÓLA SIGMUNDSDÓTTIR,
Skúlagötu 54,
andaöist í Borgarspítalanum 12. júlí.
Útförin fer fram fimmtudaginn 16. júlí kl. 10.30 í Fossvogs-
kapellu. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaö.
Hilmar Svavarsson, Aldfs Ó. Guðmundsdóttir,
Garðar Svavarsson, Bryndfs Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaöir og afi,
JÓHANN S. SIGURÐSSON,
Grænumýri 8,
Akureyri,
sém lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 11. júlí, verður jarð-
sunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 16. júlí kl. 13.30.
Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á líknarstofnanir.
Ester Lárusdóttir,
Bragi Jóhannsson, Áslaug Kristinsdóttir,
Þóra Ester Bragadóttir,
Hanna Björk Bragadóttir,
Bergur Már Bragason.
t
Móðurbróðir okkar og vinur,
JÓNATAN GUÐNIJÓNATANSSON,
Utlu-Helöi,
Mýrdal,
er lést i sjúkrahúsi Vestmannaeyja 6. júlí sl, verður jarösunginn
frá Reyniskirkju, Mýrdal, þann 15. júlí kl. 14.00.
Helga Ólafsdóttir,
Margrót Ólafsdóttir
og fjölskyldurnarfrá Litlu-Heiði.
Anna Linda Magnúsdóttir