Morgunblaðið - 14.07.1987, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987
53
Metþátttaka í
Boðsmóti TR
Skák
Margeir Pétursson
STARFSEMI Taflfélags
Reykjavíkur er mun mínni á
sumrin en veturnar. Auk æf-
inga á þriðjudags- og fimmtu-
dagskvöldum er ávallt haldið
hið svonefnda Boðsmót. Vegna
veðurblíðunnar sem ríkt hefur
í sumar var ekki búist við mik-
illi þátttöku að þessu sinni, en
hún sló samt öll met. 80 þátttak-
endur mættu til leiks og tefldu
7 umferðir eftir Monrad-kerfi.
Stigahæsti þátttakandinn á
mótinu, Davíð Ólafsson, vann
yfirburðasigur, hlaut sex og
hálfan vinning. Hann vann
Snorra G. Bergsson í úrslita-
skák í siðustu umferð og missti
aðeins niður eitt jafntefli við
Tómas Björnsson.
Fjórar stúlkur voru á meðal
þátttakenda og stóð íslands-
meistari kvenna, Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, sig mjög
vel. Eftir fimm umferðir var
hún efst ásamt þeim Davíð og
Snorra og eina tapskák hennar
var gegn Davíð. Guðfríður stóð
sig einnig mjög vei á stúlkna-
mótinu í Austurríki um daginn,
þótt árangur hennar hafi skilj-
anlega fallið í skuggann af
heimsmeistaratitli Hannesar
Hlífars.
Röð efstu manna á mótinu
varð þessi:
1. Davíð Ólafsson, TR 6V2 v.
af 7 mögulegum.
2. -7. Snorri G. Bergsson, TR
(28,0 stig), Tómas Björnsson,
TR (26,0), Sigurður Daði Sigf-
ússon, TR (25,0), Björgvin S.
Guðmundsson, SH (23,0),
Sveinn Kristinsson, TR (21,0)
og Jón Árni Halldórsson, TS
(21,0) 5'/2 v. 8.-15. Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, TR, Hrann-
ar Baldursson, TR, Siguijón
Birgisson, SH, Uros Ivanovic,
TR, Ingi Fj. Magnússon, TR,
Einar T. Óskarsson, TR, Eirík-
ur Björnsson, TR og Eggert
ísólfsson, TR 5 v.
Skákstjóri á Boðsmótinu var
Ólafur Ásgrímsson.
*
Góður árangur
íslensks skákmanns
í Politiken Cup
Jóhannes Ágústsson, rúmlega
tvítugur starfsmaður Borgarfóg-
etaembættisins í Reykjavík, kom
mjög á óvart á Politiken Cup-
mótinu í Kaupmannahöfn, sem
lauk um síðustu mánaðamót. Á
mótinu tefldu yfir 20 titilhafar,
þar af fjórir stórmeistarar, en
Jóhannesi tókst samt að ná
10.-16. sæti af 48 þátttakendum.
Jafnir honum voru m.a. tékknesku
stórmeistaramir Jansa og Plac-
hetka. Jóhannes lagði m.a. að
velli hina þrautreyndu dönsku,
alþjóðlegu meistara Ole „den
store" Jakobsen og Svend Ham-
ann. Hann var með allra stiga-
lægstu keppendunum í efsta
flokknum, en þegar ættir Jóhann-
esar eru raktar þarf árangurinn
ekki að koma neinum á óvart, því
afí hans var enginn annar en
Guðmundur heitinn Ágústsson,
skák- og bakarameistari, sem lést
árið 1983.
Það munaði aðeins hálfum
vinningi að árangur Jóhannesar
dygði honum til að ná áfanga að
alþjóðlegum meistaratitli og hann
hækkar mjög mikið á stigum.
Sigurvegari á mótinu varð
danski alþjóðlegi meistarinn,
Bjöm Brinck-Clausen, sem er
reyndar íslenskur í aðra ættina.
Röð efstu manna á mótinu varð
þessi:
1. Brinck-Clausen (Danmörku)
7'/2 v. af 10 mögulegum.
2. -4. Karlsson (Svíþjóð), Yijola
(Finnlandi) og Pavlovic (Júgó-
slavíu) 7 v.
5.-9. Mortensen (Danmörku), G.
Horvath og T. Horvath (Ung-
veijalandi), Van Mil (Hollandi) og
Stein (V-Þýzkalandi) 6V2 v.
10.-16. Jóhannes Ágústsson, Con-
quest (Englandi), Hazai (Ung-
veijalandi), Jansa og Plachetka
(Tékkóslóvakíu), Douven og Bart-
els (Hollandi) 6 v. 17.-18. Höi og
Fries Nielsen (Danmörku) 5V2 v.
o.s.frv.
Jóhannes fékk óskabyijun á
mótinu er hann vann Ole Jakobs-
en í býsna laglegri skák. Óli
hugðist mgla lítt reyndan and-
stæðing sinn í ríminu með óvenju-
legri leikjaröð í byijuninni, en
tókst aldrei að ná neinu mótspili.
Hvitt: Jóhannes Ágústsson
Svart: Ole Jakobsen
Sikileyjarvöm
1. e4 - c5 2. Rf3 - e6 3. d4 -
cxd4 4. Rxd4 - d6 5. Rc3 - a6
6. Bd3 - Bd7 7. Be3 - Rc6 8.
0-0 - Rf6 9. f4 - Dc7 10. Df3
- Be7 11. Hael - 0-0 12. Khl
Hvítur hefur fengið að hafa
fijálsar hendur í byijuninni og náð
að stilla liði sínu upp í ákjósan-
legri stöður en yfirleitt er kostur
á gegn Sikileyjarvöm.
12. - Hac8 13. Dg3 - g6 14.
Rf3 - Rb4 15. e5 - Rh5 16.
Dh3 - Rxd3 17. cxd3 - Bc6
18. Rd4 - Hfd8?
Svartur vanmetur hættumar
og eftir þessi mistök verður stöðu
hans ekki bjargað. 18. — Rg7 var
eðlilegur vamarleikur.
19. f5! - dxe5
20. Rxe6! - fxe6 21. fxg6 - Rf6
21. - fxg6 22. Dxe6+ Kh8 23.
Hf7 var ennþá lakara.
22. Dxe6+ - Kh8 23. Bg5!
Hvítur vinnur nú manninn til
baka og kemst út í léttunnið enda-
tafl.
23. - Hf8 24. Hxf6 - Bxf6 25.
Bxf6+ - Hxf6 26. Dxf6+ - Dg7
27. Dxe5 - Dxe5 28. Hxe5 -
hxg6 29. d4 - Kg7 30. d5 -
He8 31. Hxe8 - Bxe8 32. Re4
- Bf7 33. d6 - Kf8 34. a3 -
Ke8 35. Rf6+ — Kd8 36. h4 og
svartur gafst upp.
•
Millisvæðamótið
í Júgóslavíu
Senn fer að ljúka fyrsta af
þremur millisvæðamótum sum-
arsins, en það fer fram í júgóslav-
nesku borginni Subotica. Að
loknum tólf umferðum á mótinu
var heildarstaðan þessi:
1.-3. Ribli, Short og Speelman 8 v.
4. Tal 7V2 v. 5. Rodriguez, (Kúbu)
6V2 v. 6.-7. Maijanovic og Zapata
6 v. 8. Sax 5'/2 v. og 2 biðskák-
ir. 9.-10. Emst og Alburt 4V2 og
biðskák. 11. Smyslov 4 v. og 2
biðskákir. 12. Popovic 4 v. og bið-
skák. 13. Chemin 4 v. 14. Xu
3'/2 v. 15. Prasad 2'A v. 16.
Hamed IV*.
Úr þrettándu umferðinni hafa
borist þær fregnir að Tal tapaði
mjög óvænt fyrir Prasad, en Short
vann Ribli. Speelman gerði hins
vegar jafntefli. Englendingamir
tveir virðast því nokkuð ömggir
með að komast áfram í ásko-
rendamótið, en það gera Ijórir
efstu menn.
Skákþáttur þessi er endur-
birtur vegna mistaka sem
urðu við frágang hans hér í
blaðinu síðastliðinn laugar-
dag. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis-
og minningargreinar til birt-
ingar endurgjaldslaust. Tekið
er við greinum á ritstjórn blaðs-
ins á 2. hæð i Aðalstræti 6,
Reykjavík og á skrifstofu blaðs-
ins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Ekki em
tekin til birtingar fmmort ljóð um
hinn látna. Leyfílegt er að birta
ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi
og skal þá höfundar getið. Sama
gildir ef sálmur er birtur. Megin-
regla er sú, að minningargreinar
birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins em birt-
ar greinar um fólk sem er 70 ára
eða eldra. Hins vegar em birtar
afmælisfréttir með mynd í dagbók
um fólk sem er 50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að
handrit séu vel frá gengin, vélrit-
uð og með góðu Iínubili.
Blómastofa
FriÖfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavik. Sími 31099
Opið öllkvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
SKARPHÉÐINN GUÐBRANDSSON
frá Bifröst,
Ólafsvfk,
andaðist í Landspítalanum sunnudaginn 12. júlí.
Útförinferframfrá Fossvogskirkju fimmtudaginn 16. júlíkl. 15.00.
Laufey Þórðardóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Fósturbróðir og bróðir okkar
SVEINBJÖRN MAGNÚSSON
fró Skuld,
Hrlngbraut 73,
Hafnarfiröi,
verður jarðsunginn fró Þjóðkirkjunni í Hafnarfiröi fimmtudaginn
16. júlí kl. 15.00.
Stefanía Elfsdóttir,
Slgrfður Ketilsdóttir,
Jón Magnússon.
t
Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og útför eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóöur og ömmu,
MARGRÉTAR JÓNSDÓTTUR,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Ragnar Jakobsson,
Árni Ragnarsson, Guðfinna Halldórsdóttir,
Kristján Ragnarsson, Kristfn Möller,
Kristinn Ragnarsson, Elfn Jóhannsdóttir,
Sigrfður Ólafsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö
andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
SIGRÍÐAR PETRÍNAR GUÐBRANDSDÓTTUR,
Rauðalæk 18.
Snorri Júlfusson,
Guðrún Snorradóttir, Jón Ingibergsson,
Hilmar Snorrason, Guörún H. Guðmundsdóttir
og barnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för fósturmóöur minnar og ömmu okkar,
ÖNNUJÓNSDÓTTUR
frá Hvallátrum,
Langholtsvegi 132.
Gyða Guðmundsdóttlr,
Anna Guðrún Marfasdóttir,
Svanhildur Ósk Marfasdóttir.
t
Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
ÓLAFS GUÐJÓNSSONAR,
Esjubraut 6, Akranesi.
Guðrún Ólafsdóttir,
Hörður Ólafsson, Rósa Jónsdóttir,
Gyða Ólafsdóttir, Halldór Kjartansson
og barnabörn.
t
Alúðarþakkir fyrir vinsemd og hlýhug við andlát og útför
SVEINBJÖRNS L. HERMANSEN.
Fyrir hönd aöstandenda,
Guðný Hermansen.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og vinarhug við andlát og
útför
SÖLVA M. SIGURÐSSONAR
frá Undhóll,
Bjarkargötu 8.
Jóhannes Sölvason og fjölskylda.
Lregsteinar
ýmsar gerðir
Marmorex
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður