Morgunblaðið - 14.07.1987, Side 54

Morgunblaðið - 14.07.1987, Side 54
3 54 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987 Þessi átta ára gamla bandaríska stúlka sjálf. ver frístundum sínum í útgáfu fréttablaðs sem hún skrifar Atta ára gamall ritstjóri Ameðan flest átta ára gömul skólaböm nota tímann eftir skóla til að leika sér eða horfa á sjónvarpið sest Heather Cook við skrifborðið sitt og tekur til við að skrifa fréttir. Það eru þó ekki fréttir af stjómmálamönnum eða slysförum sem hún er að skrifa. Heather gefur nefnilega út frétta- blað þar sem hún segir frá helstu viðburðum innan íjölskyldunnar og dreifir því til ættingjanna í hveijum mánuði. Blaðið er ekki stórt, aðeins átta síður, en hún handskrifar það og ljósritar og dreifir því til rúmlega áttatíu ættingja víðs vegar um Bandaríkin. Frænka hennar teiknar myndir með fréttunum og móðir hennar leiðréttir stafsetn- ingarvillur. Heather ver u.þ.b. fimm klukkustundum í mánuði til að safna efni í blaðið. Hún hringir í ættingjana eða heimsækir þá til að verða sér úti um sögur sem hún síðan, eins og alvöru rit- stjóri, flokkar og velur það sem henni líkar best til birtingar í næsta blaði. Auk smáfrétta af helstu viðburðum í fjölskyldulíf- inu, eins og t.d. þegar einhver kaupir nýjan bíl eða veggfóðrar hjá sér stofuna, skrifar hún stund- um lengri greinar um málefni sem varða alla fjölskylduna eins og skipulag garða. Helsta ástæðan fyrir því að Heather fór út í blaðamennsku var löngun til að svala forvitni sinni og svo hafði hún veitt því athygli að eftir því sem Qölskyld- an stækkaði og dreifðist víðar fór að bera á sambandsleysi. Hún ákvað að reyna að bæta úr því með því að skrifa niður helstu viðburði og koma þannig á reglu- bundnum samskiptum innan fjölskyldunnar. Þetta framtak hennar hefur fallið í mjög góðan jarðveg hjá ættingjunum og sömuleiðis hafa bandarískir fjölmiðlar hrifíst af þessarri framtakssömu stúlku og hefur hún m.a. komið fram í sjón- varpi og viðtöl við hana birst í dagblöðum. Hún er staðráðin í því að halda áfram á sömu braut. „Ég ætla að halda áfram að gefa út Fjölskyldufréttir þangað til ég verð eldgömul" segir hún, „að minsta kosti átján ára“. A sunnudagsrölti n inn tilvonandi faðir, Woody Allen, er hér á sunnudagsrölti í Central Park, New York, ásamt konu sinni Miu Farrow og tveggja ára gamalli stjúpdóttur, Dylan. Fyrrum kyrkislanga Michaels Jackson. Þessi myndarlega kyrkislanga er nú til sölu í gæludýraverslun einni í Kaliforníu. Söngvarinn varð víst eitthvað leiður á gæludýrinu sem vegur um 40 kg og er 4 rúmlega fimm metra langt. Hann skilaði slöngunni JK því aftur í búðina þar sem hún var upphaflega keypt og hefur eigandi «HP| hennar síðan notað nafn , 'ij&' ■" Jacksons í auglýsingaskyni fyrir gæiudýraverslunina. Fyrr- “ um kyrkislanga Mickahels Jackson til sölu“ hljómar svo sem nógu spennandi, eða hvað? En þó salan hafi aukist í versiuninni eru um- boðsmenn Michaels Jackson víst ekki jafn ánægðir. Reuter Otemjureið | Javid Peters frá Pottsboro í Texas sýnir mikil tilþrif þar sem hann þeysir berbakt á hestinum sínum sem heitir því undarlega nafni Stríðsmálning. Hann var í hópi fjölda kúreka sem tóku þátt í árlegu kúrekamóti í borginni Calg- ary í Kanada nú fyrir skömmu. Lazlo de Borondy er kampakátur þar sem hann hampar kyrkislöng- unni sem hefur auglýst gæludýra- versiunina hans svo rækilega. fclk í 7& fréttum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.