Morgunblaðið - 14.07.1987, Qupperneq 59

Morgunblaðið - 14.07.1987, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987 59 Góður matur H A M 1 H c. JUBRÉr Þetla bréí «r aent til þín ivo þú fíir HAPP OG HXMINGJU Upprunalega bréfió v«r •krif«ó í Nrw Englend, U.6.A. Bréfió hefur farió umhverfi* jöróina «ó minnst* koati 10 nnnua. Hamingjan er þér iend. Innan fjögurra daga eftir aó þG hefur fengló bréfíó, kemur happió til þin. Petta er ckkert apaug. Happió kcmur til þin líkt og bréf i póati. Sendu afrit til fólka, sem þú heldur aó þarfnist happa og hamingj'u. Sendu enga peninga, þar eem hamingjar •r ekki mmld 1 aurum. Geymdu ekki bréfió. Sendu þaó éfram innan 96 tima. 3inn Vep, 1 iósfui ingi fékk U6( /0.000,-. Jan Elliott fékk U5$ 40.000,, en tapaói þeim aftur, vegna þeaa aó hann sleit keójuna. Sendu 70 afrit af bréfinu. Sjéóu hvaó gerist innan fjögurra daga. Keójan byrjaói { Venezuela, og upprunalega bréfió var skrifaó af Saulanton- Dur-Pof, tróboóa i S-Ameríku. ÞÚ skalt sanda 70 afrit til mttingja og vina. Eftir nokkra daga gerist eitthvaó óvmnt. Paó er alveg öruggt, jafnvel þótt þú trúr ekki é hió yfirnéttúrulega. 4£úristian Dior fékk hamingjubiéf érió 1951. Hann baó ritara sinn aó gera 70 afnt af þvi 09 senda fyrir sig. Mokkrum dögum seinna vann hann USS 7 milljónir i happdrmtti. Arlo Dallitt, skr1fstofumaóur fékk bréf, en gleymdi aó senda þaó éfran innan 96 tína. Hann missti vinnuna. Seinna fann hann bréfió aftur 09 sendi þaó éfram. Nokkrum dögum seinna fékk hann betra starf. P.S. Sendu ekki pemnga. Léilu þér e,*;ki detta þaó í hug. Bréf ií vinnur raunvarulega. P.S. Bréfió er raunverulega vélritaó og fjölritaó. Hvimleið keðjubréf Tvær konur höfðu samband við Velvakanda og afhentu honum keðjubréf sem þeim hafði borist og voru ekki alls kostar ánægðar með. Onnur þeirra lét eftirfarandi at- hugasemd fylgja: Mig langar að vekja athygli á því að keðjubréf eitt, hótunarbréf eiginlega er á hraðferð um allt landið. Ég hef fengið tvö á einni viku. Ekki þarf að fjölyrða um það að umrætt bréf vekur eflaust ugg hjá auðtrúa borgurum. Með von um að hægt sé að kveða niður þennan miðaldadraug. Herdís Hallvarðsdóttir Félagskonur kvennadeildar Rauða krossins fóru í sína árvissu sumarferð í síðustu viku. A heim- leið var snæddur kvöldverður í Hótel Örk, Hveragerði. Þar var sest að fallega dúkuðum borðum, þar sem borin var fram vel heit súpa, kjötréttur og eftirrétt- ur, ljúffengur matur. Við viljum hér biðja fyrir kveðjur til starfsfólks Hótel’ Arkar, sem veitti okkur framúrskarandi góða þjónustu. Við vonum að Hótel Örk megi lengi lifa og dafna vel, svo að við megum öll njóta hins fallega um- hverfis þar, utanhúss sem innan. Félagskonur kvennadeildar Rauða krossins Frábær skemmtun Kæri Velvakandi. Mig langar fyrir hönd nokkurra eldri borgara að þakka Hermanni Ragnari Stefánssyni fyrir frábæra skemmtun sem hann stómaði í VR-húsinu 17. júní. sl. Þessi skemmtun tókst vel, enda var húsfyllir og komust færri að en vildu. Eftir mjög góð skemmtiat- riði, tískusýningu eldri borgara, kórsöng o.fl. var dansað þegar allir voru orðnir vel saddir af góðum veitingum. Ólafur Að höggva á hel- fjötra marxismans Fegin er ég, að sumir af þeim mönnum sem hlupu frá námi til þess að reyna að koma helfjötrum marxismans á þjóð sína geta nú fylgst með baráttu Gorbachevs við að reyna að höggva a þá. Allt er staðnað og lengur er ekki hægt að blóðmjólka kúna. Nú á að reyna kapítalismann sem hefur sýnt það í öðrum löndum, að hann er það eina afl, sem stendur undir öllum framförum sem orðið hafa, síðan frelsiskenning hans komst í gagnið. Það á að byija á því að gera for- stjórana ábyrga gerða sinna. Reyna að haga framleiðslunni eftir eftir- spum. Til þess að eitthvað fari batnandi í Rússlandi þá verða vald- hafamir af taka mannréttindi líka með í reikninginn, en það verður erfiðast og ógerlegt nema að af- nema marxismann alveg. Það hlægir mig hins vegar að núna virð- ist sem félagsvísindadeild Háskóla íslands sé síðasta vígi hagfræði- kenninga Karls Marx. Nú gerast þeir hlutir sem óhugs- andi hefðu verið á tímum Willy Brandts og sumra skoðanabræðra hans. Nú koma valdhafar úr öllum áttum og keppast við að heimta mannréttindi handa fólkinu í kommúnistaríkjunum. Þetta var óhugsandi fyrir nokkmm ámm þeg- ar skáldin kepptust við að lofa Stalín. Auðvitað hlaut að koma að því, að heimurinn gæti ekki þolað misþyrmingar marxismans á mann- skapnum. Skortur og kúgun hans leiddi líka til vaxandi örðugleika í öðmm löndum. Hveijum er mest að kenna offramleiðslan í land- búnaðinum, nema hungrinu í kommúnistaríkjunum. Bara í A- Evrópu lifa yfir 300 milljónir manna við skort á öllum lífsnauðsynjum okkar. Ekkert er heiminum í dag nauðsynlegra en mannréttindi, svo sem tjáningarfrelsi, ferðafrelsi og verkfallsrettur. Ég vona að baráttan sem hafin er í Rússlandi beri árangur, en löng verður sú barátta. Ef einhver árangur á að nást þá verða vinstri öflin í hinum fijálsa heimi að hætta að ganga undir KGB og beijast fyrir frelsi öllum þjóðum til handa. Húsmóðir Skrifið eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 13 og 14, mánu- daga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal eftiis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspumir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisföng verða að fylgja öllu eftii til þáttarins, þó að höfundur óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Borgað verði fyrir tómar gosdósir í Yosemite þjóðgarðinum í Bandaríkjunum keypti ég gos og öl á dósum. Ég tók eftir því að fljót- lega fóru ýmsir náungar (bakpoka- fólk og unglingar) að lóna í kringum okkur og gefa okkar auga. Ástæðan var að þeir vildu vita hvað við gerðum við tómu dósimar. Þær fóru auðvitað í þar til gerða ruslakassa. En náungamir voru fljótir að hirða úr ruslakassanum. Þetta var þeirra gullnáma. Þeir endurseldu dósimar á 5 cent stykk- ið og það gat vel drýgt tekjumar hjá duglegum safnara. Mitt ráð er því að bæta endur- kaupsverði dósanna, til dæmis 5 eða 10 krónum, ofan á verð gosdrykkj- anna eða ölsins og margur strákur- inn mun afla sér vasapeninga með því að selja dósimar til réttra aðila sem væru til dæmis sjoppumar. Gangið í málið og dósimar verða horfnar um leið. Gumbur H.C. Andersen Ljóðið er eftir H.C. Andersen Nokkrar bollaleggingar hafa orð- ið um það í Velvakanda hver hafi ort kvæðið „Eg elska hafið æst er stormur gnýr“ og eru þá helst til- nefnd skáldin Guðmundur Guð- mundsson eða Steingrímur Thorsteinsson. En þetta fallega ljóð er ekki eftir neitt íslenskt skáld, heldur er það danskt að uppruna Mjólkur- fernurnar ágætar Ekki skil ég i því fólki sem er sínöldrandi yfír okkar blessuðu mjólkurfernum. Mér finnast þær í alla staði mjög hentugar og að það sé algjör klaufaskapur að geta ekki opnað þær og hellt úr þeim án þess að sulla allt út. Sjónvarpið hefur nú sýnt hvemig á ekki að opna þær og ætti því að koma með smá- kennslustund fyrir klaufana. Annars er það svo með sumt fólk að það er eins og að það hafi tóma þumalfingur. Leyfið því bara nöldrurunum að nöldra áfram og haldið ykkar striki með þessar ágætu mjólkurfemur. Annars væri það ef til vill góð hug- mynd að hanna sérstakar femur með túttu fyrir klaufana. Mjólkursvelgur Þessir hringdu . . Peningar og bankabók týndust Pálmi hringdi: „Ég týndi um daginn bankabók og 25.000 krónum í reiðufé sem ég var nýbínn að taka út úr bók- inni. Þetta er mjög tilfinnanlegt fyrir mig því að ég er með konu og ungabam. Vil ég biðja skilvísan finnanda að hringja í síma 46857 eftir klukkan sjö.“ og eftir ævintýraskáldið H.C. And- ersen. Birtist það fyrst í bók hans Phantasier og Skizzer, sem kom út árið 1831, og þar undir heitinu: „Hvad jeg elsker". Fyrsta vísan á fmmmálinu er þannig: Jeg elsker Havet, naar det stor- mer vildt, jeg elsker det, naar Fladen Iigger mildt, og Maanen spejler sig i dybets Blaa, Jeg elsker Bjergene, jeg aldrig saa. Það var nú líka dálítið ósennilegt að íslenskt skáld teldi sig aldrei hafa séð §öll. Sigurður Guttormsson Með Bröste x og klút i hendi kemstu i skínandi hreingerningar- skap! UÓMANDIBÍLL I HVELLI Bröste hreinsivörurnar vinna kraftaverk á bilnum: Splendo gerir rúöurnar skínandi hreinar á augabragdi. Basta Vinyl Extra fjarlægir óhreinindi af vinyi eða plasti utan á bílnum t.d. stuðurum. Polish Spray er bón sem setur sterkan gljáa á lakkið og ver það raka og óhreinindum. Rens-Lak djúphreinsar bíllakkid sem fær þá sinn upprunalega lit. Bröste gæöavörur fást á bensinstödvum Esso. Olíufélagið hf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.