Morgunblaðið - 14.07.1987, Side 62
PSt ’ w»'.ír>? r orn* T»m«M -'TWjrvwm*
62 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚLÍ 1987
Húsnæði Málningar hf. brennur til kaldra kola
Vatnsskortur
olli erfiðleikum
Tjón talið vera um 80 millj. kr.
áttar og voru íbúðarhúsin
vestan verksmiðjunnar öll
rýmd og fóik varað við að
anda að sér eiturgufunum.
Allt ónýtt
Húsið er um 2000 fermetrar
að grunnfleti, steinsteypt með
bárujámsklæddu þaki. í hús-
næðinu var framleiðsludeildin til
húsa, auk skrifstofu og mötu-
neytis, en sölulagerinn er til
húsa við Lyngháls í Reykjavík.
„Atburðarásin var mjög hröð.
Við heyrðum brunavamarkerfið
fara í gang og eldurinn lagðist
í húsið á fimm mínútum þannig
STÓRBRUNI varð í gær þeg-
ar húsnæði Málningar hf. að
Marbakkabraut 21 í Kópa-
vogi brann til kaldra kola og
er tjón talið vera hátt í 80
milljónir króna. Allt tiltækt
lið Slökkviliðs Reykjavíkur
var kallað út kl. 13.40 auk
Slökkviliðs Reykjavíkurflug-
vallar og munu um 50
slökkviliðsmenn hafa verið
að beijast við eldinn fram
eftir degi. Starfsmenn í hús-
inu voru um 35 talsins og
komust þeir allir út ómeiddir
utan einn sem brenndist lítil-
lega. Vindur var af suðaust-
an þegar eldurinn kom upp
og lagði reyk út á sjó. Síðan
snérist hann hann til austan-
Eldurinn kom upp í norðausturhorni hússins á neðri hæð þess.
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
Morgunblaðið/Bjami Eiríksson
Slökkviliðsmönnum tókst að mestu leyti að ráða niðurlögum eldsins
á þremur klukkustundum.
að maður gat ekkert um annað
hugsað en að koma sér út,“ sagði
Gísli Guðmundsson framleiðslu-
stjóri í samtali við Morgunblaðið
í gær. „Eldurjon kom upp á jarð-
hæð hússins, norðaustanmegin,
þar sem hráefnageymslan er og
mörg eldfim efni eru innan dyra.
Ég treysti mér þó ekki að segja
um hvað hugsanlega hefur vald-
ið eldinum. Mér sýnist allar
eignir fyrirtækisins ætla að eyði-
leggjast. Þó er smá möguleiki á
að hægt sé að bægja eldinum
frá þremur stórum vélum, sem
við eigum í bakhúsinu," sagði
Gísli skömmu eftir að eldurinn
kom upp.
Eins og
kveikiþráður
„Ég var á efnaloftinu við
átöppun ásamt fleirum og allt í
einu fór viðvörunarkerfið í
gang,“ sagði Sigurður Viðarsson
verkstjóri í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Ég labbaði rakleið-
is inn á skrifstofu til að athuga
hvar upptök eldsins væru og
beindust allir mælar að neðri
hæð hússins, jafnvel kjallara.
Ég fór aftur inn til mín en þar
var allt á kafi í reyk svo ég tók
á rás út. Þá mundi ég eftir kon-
unni í eldhúsinu, sem er á
Morgunblaðið/Sverrir
Málning hf. er til húsa að Marbakkabraut 21. Logarnir teygðu sig
langar leiðir út um glugga og sprengingar urðu oft í húsinu og
mögnuðu eldinn. Húsin vestan við voru rýmd vegna eldhættu.
við slökkvistarf