Morgunblaðið - 19.07.1987, Side 5

Morgunblaðið - 19.07.1987, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 19897 Kjartan Gunnarsson formaður útvarpsréttarnefiidar; Orkar tvímælis hvort sérstök lög þurfi um útvarpsmál „ÞRÓUNIN í þessum málum hef- ur ekki orðið öðruvísi en maður bjóst við,“ sagði Kjartan Gunn- arsson formaður utvarpsréttar- nefndar, í samtali við Morgun- blaðið, þegar hann var spurður að því hver hefði að hans mati orðið þróunin i útvarpsmálum íslendinga, eftir að útvarpsrekst- ur var gefinn fijáls fyrir einu og hálfii ári siðan. „Fjölbreytnin hefur aukist og sýnist sitt hverj- um um ágæti þeirra stöðva sem hafa verið settar á stofii. En vert er að hafa í huga að þó manni finnist sum blöð og tímarit leiðin- leg þá kennir enginn prentfrels- inu um það. Útvarpsfrelsi byggist á sömu forsendum og prentfrelsi og annað fjáningar- fi-elsi. Það orkar því mjög tvímæfis hvort sérstök lög þurfi um þessa tegund tjáningar. Þetta tel ég að eigi að taka til endur- skoðunar þegar útvarpslögin falla úr gildi í lok ársins 1988. Almenn prent- og meiðyrðalög- gjöf ætti að ná yfir ábyrgð á efiii og einungis þyrfti að setja reglur um úthlutun tíðnisviða.“ „Samskipti okkar í útvarpsrétt- amefnd við þessa fjölmiðla hafa öll verið með ágætum og engin alvar- leg vandamál hafa komið upp. Við höfum mótað okkur þá stefnu að hafa afskipti okkar af útvarpsleyf- um sem minnst eftir að leyfí hefur verið veitt, þó höfum við haldið fundi með forsvarsmönnum út- varpsstöðvanna og rætt ýmis stefnumarkandi atriði og verður ekki annað séð en sjónarmið okkar fari í stórum dráttum saman. Það er sérstaklega ánægjulegt hversu mikill áhugi er á að láta útsending- ar ná til alls landsins. Það markmið mun líka verða auðveldara í fram- kvæmd samfara þeirri tækniþróun sem á sér stað. Ljósvakafjölmiðlarnir og ekki síður prentmiðlarnir hafa áhrif á þróun tungunnar og íslenskrar menningar og við verðum að kapp- kosta að þau áhrif verði jákvæð og auki samheldni þjóðarinnar frekar en að sundra henni. Þeim árangri náum við ekki með valdboði og ströngum reglum af einu eða öðru tagi heldur verður þetta að koma innanfrá. Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki það gott yfirlit yfir þróunina að ég geti verið að fella dóma um það hvort þessi breyting á fjölmiðlun hafi orðið til góðs eða ills enn sem komið er varðandi menningarþróunina. Það sem menn hafa óttast hvað mest eru aukin erlend áhrif samhliða þessari fjölg- un fjölmiðla og vissulega er það rétt að okkur ber að vera á varð- bergi gagnvart slíku en jafn heimskulegt og er að gleypa við erlendri menningu hrárri er að hafna henni með öllu. Menning okkar Islendinga hefur snertifleti við menningu margra annarra ríkja og því ekki óeðlilegt að einhver samruni sé þarna á milli og til þess eru ljósvakafjölmiðlamir mjög vel fallnir. Ef við lítum til framtíðar á ég ekki von á að stöðvum eigi eftir að Qölga mikið, þó hafa ekki allir sem fengið hafa leyfi frá útvarps- réttarnefnd hafíð útsendingar enn og má sem dæmi nefna Bylgjuna sem sótti um leyfi fyrir aðra rás fyrr á þessu ári. Ríkisútvarpið held ég að muni smám saman breytast úr því að vera markaðsútvarp í skóla- og fræðsluútvarp og útvarp sem flytur dýrt og vandmeðfarið menningar- efni. Það er erfitt að færa rök fyrir því að ríkisstofnun skuli t.d. vera að vafstra í fréttaflutningi og reka bæði fréttastofu og fréttaþjónustu þegar aðrar útvarps- og sjónvarps- stöðvar verða farnar að ná til landsins alls. Þarna er máttur van- ans að verki og æskilegt að breyting verði á í framtíðinni." 5 Hörpuskjól - varanlegt skjól. Skúlagötu 42, Pósthólf 5056 125 Reykjavík, Sími (91)11547 HARPA lífinu lit! ,MEÐ SEX ITAKINU ...og fer létt með þaó ÆÉt .... .. Nu fdstallir drykkirnirfrá Sanitas rhandhægum sex-pakkningum < £2 H__ jjpEPSlj Sanilas - J ,, A - ’ - ■ d&' ■m :-Mb

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.