Morgunblaðið - 19.07.1987, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚU 19897
41
Séra Hubert
Oremus - Sjötugur
Á morgun, mánudaginn 20. júlí
er Þorláksmessa á sumar. Hún var
haldin hátíðleg í minningu þess að
þann dag, árið 1198, var helgur
dómur Þorláks Skálholtsbiskups
tekinn úr jörðu og skrínlagður. Og
á þeim degi, árið 1917, var séra
Hubert Oremus borinn í þennan
heim í borginni Zeist í Hollandi.
Hann segir sjálfur svo frá náms-
ferli sínum að árin 1921—23 hafi
hann gengið í leikskóla í Zeist,
1923—29 í barnaskóla í Zeist og
Bussum, 1929—36 í lægri presta-
skóla í Wernhout, og 1936—1943
í æðri prestaskóla í Panningen.
Hann gekk í reglu Lazarista (Con-
gregatio Missionir) 1936 og átti því
50 ára „regluafmæli" á sl. ári. Þá
reglu stofnaði hl. Vincent, kenndur
við Pál postula, árið 1625. Reglunni
var fengin í hendur Saint-Lazare-
kirkjan í París árið 1633 og er
þaðan komið heitið „Lazaristar",
eins og prestar þessarar reglu eru
að jafnaði nefndir, en orðið „Laz-
are“ er komið af heitinu „Laza-
retto“ sem merkti holdsveikrahæli.
Skírnarnöfn séra Oremusar eru:
Hubertus Theodorus. Ættarnafn
hans, Oremus, kemur mörgum kyn-
lega fyrir sjónir því latneska orðið
„oremus" þýðir: Vér skulum biðja.
Hafa því sumir þeir, sem ekki eru
málum kunnugir, haldið að prestur-
inn sjálfur eða einhverjir forfeður
hans hafí tekið sér þetta nafn til
að benda á bænrækni sína eða til
að minna sjálfa sig á að láta ekki
deigan síga í bænalífinu. En reynd-
in er önnur: Árið 1690 flúði forfaðir
séra Oremusar, sem var húgenotti,
frá Frakklandi til Hollands, því
húgenottar voru þá engin eftirlætis-
böm Frakka, svo sem kunnugt er
af sögunni. En nafn þessa manns
var Orésmes. Þegar Hollendingar
spurðu manninn að nafni, heyrðist
þeim hann segja „oremus" og
glöddust þeir mjög við, því þeir
þóttust skilja af þessu að nafnið
væri tekið úr latnesku messunni og
mundi maðurinn vera rammkaþ-
ólskur. Festist nafnið Oremus síðan
við fjölskyldu mannsins og hugsar
nú enginn lengur um uppmna þess.
Þegar Hugbjartur Teódór var
fjögurra ára gamall, fékk hann
köllun, að honum fannst, til að
verða trúboði í Kína. Á þeim árum
voru böm kvödd í árlegar „trúboðs-
skrúðgöngur" og í þeim göngum
klæddust þau allskonar dulargerv-
um, sum voru dýrlingar, önnur
nunnur, einhver var páfi, annar indí-
áni, þriðji blökkumaður, fjórði
eskimói og fimmti Kínverji, og
Hugbjartur litli vildi alltaf að fá að
vera Kínveijinn. Þriðja árið sem
hann tók þátt í skrúðgöngunni kom
hann of seint til leiks og neyddist
til að vera prestur úr reglu „hvítu
feðranna“ og féll honum það mjög
þungt.
Að loknum barnaskóla sagði
hann föður sínum frá þeim framtíð-
ardraumum sínum að verða trúboði
í Kína en var þá sagt að af því
gæti ekki orðið því nú væri hann
orðinn nógu gamall (11 ára) til
þess að hjálpa til að vinna fyrir fjöl-
skyldunni, enda elstur 8 systkina.
Um haustið varð honurr. þó að
nokkru leyti að ósk sinni því þá
gafst honum tækifæri til að fara í
trúboðsprestaskóla. Eftir sjö ára
nám þar höfðu nemendur náð all-
mikilli leikni í sex tungumálum:
hollensku, frönsku, ensku, þýsku,
latínu og grísku. Hann lét þó ekki
þar við sitja heldur bætti við sig tíu
tungumálum eftir því sem árin liðu
en telur sig nú vera farinn að ryðga
allmikið í sumum þessara 17 mála.
Þegar hann hafði lokið námi í
guðfræði og heimspeki og öðru því
sem til prestskapar heyrði, þáði
hann prestvígslu (19. júlí 1944) og
hélt svo enn áfram að afla sér
Hið árlega kappflug Bréf-
dúfhafélags Reykjavíkur og
Visa íslandi var haldið þann 20.
júní s.l.
Lagt var af stað frá Fagurhóls-
mýri og flogin 364 km leið.
Eigendur þeirra fugla sem reynd-
ust hraðfleygastir eru Þórir
meiri þekkingar. Lauk hann prófum
í trúboðsfræði, lækningu hitabeltis-
sjúkdóma, kínversku, sögu, list og
bókmenntum Kínveija, svo og í
blaki.
Frá 1948 til 1967 kenndi hann
tungumál, kínverska bókmennta-
sögu og trúarbragðafræði við
háskóla í Hollandi, París, Istanbúl
og Alexandríu. Alls var hann 16 ár
í Miðausturlöndum, þar af 6 ár í
Tyrklandi. Egyptaland varð honum
þó hugfólgnast allra landa þangað
til hann kom hingað til lands. Nú
finnst honum að hann hafi aldrei í
betra landi verið en íslandi.
Hann var sóknarprestur í Hol-
landi 1955—61 en kom hingað til
lands 10. júní 1978. Hann þjónaði
Karmelsystrum hollensku í 5‘/2 ár,
hinum pólsku eftirkomendum þeirra
í V2 ár og sóknarprestur í Hafnar-
firði hefur hann verið í 2‘A ár.
Hann býr í gamla prestahúsinu á
Jófríðarstöðum, ásamt séra van
Hooff, presti Karmelsystra, og
mundi mörgum þykja það húsnæði
þröngt sem harin hefur þar fyrir
sjálfan sig. En hann tekur því með
hinni mestu rósemi og æðruleysi
og býður gestum sínum sælgæti
úr dós, vitandi að á himnum muni
verða rýmra um hann. „Mótlæti og
kross er manninum gott og gagn-
legt til þess að hann gleymi því
ekki að hann er maður,“ segir hann
brosandi og bregður fyrir sig
kínverskum málshætti, „eins og það
er gott og gagnlegt fyrir hundinn
að hafa dálítið af flóm svo hann
gleymi því ekki að hann er hundur."
Séra Oremus hefur eignast
marga vini hér á landi en engan
óvin. Enginn efast um góðan vilja
hans og einlægni og ég hef aldrei
frétt að hann hafi komist í illt skap
í þau níu ár sem hann hefur dvalist
hér; og það er út af fyrir sig afrek.
Á morgun les hann messu klukk-
an 6 síðdegis í kapellu St. Jósefs-
spítala í Hafnarfírði, til minningar
um hl. Þorlák. Eftir messuna gefst
vinum hans tækifæri til að óska
honum til hamingju með afmælið
og það, hversu vel hann ber aldur
sinn. Má sjá á svip hans hversu
hollt það er hvetjum manni að
leggja rækt við gott skap og hafa
frið við alla menn, að því leyti sem
það er unnt og á mannsins valdi.
Innilegar hamingjuóskir á af-
mælisdaginn, séra Oremus.
Torfi Ólafsson.
Eggertsson, Halldór Guðbjömsson
og Ómar Bjarnason.
Visa-mótið er eitt stærsta mót
sumarsins en verðlaun verða ekki
veitt sigurvegurum fyrr en á upp-
skeruhátíð Dúfnaræktarsambands
íslands að keppnistímabili loknu.
Bréfdúfur í kapp-
flugi 364 km. leið
Hyaða kostur
er bestur?
margnota rakvélar eru ódýrari en venju-
leg rakvélarblöð! Og hver '■*(B/C) rakvél dugar jafii-
lengi og eitt rakvélarblað.
MACINTOSH
Works
Fjölnotakerfið Works er nú að verða mest notaða
forritið á Macintosh. Á námskeiðinu er farið
rækilega í þá möguleika sem forritið býður upp á.
Dagskrá:
* Grundvallaratriði við
notkun Macintosh.
* Teikniforritið MAC-PAINT.
* Ritvinnsla, æfingar.
* Gagnagrunnur, æfingar.
* Töflureiknir, æfingar.
* Flutningur gagna á milli
þátta forritsins.
* Umræður og fyrirspurnir.
Tími: 25. og 26. júlí kl. 9-16.
Innritun I símum 687590 og 686790.
Tölvufræðslan
Borgartúni 28
Lslðbeinandl:
QuAmundur Karl
GuAmundsson, sAlu-
maAur hjá RadlóbúAlnnl.
frá LERKIH
frá kl. 9-6.
LERK
SKEIFAN 13. 108 REYKJAVIK
SIMI82877 82468
v--:.