Morgunblaðið - 19.07.1987, Síða 43
4-
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 19897
43
Kveðjuorð:
Birgir Harðarson
framkvæmdastjóri
Birgir frændi er dáinn. Hann dó
í fjarlægu landi þar sem hann starf-
aði fyrir þjóð sína og vann henni
bæði gagn og sóma. Hann var son-
ur afa okkar og ömmu, Harðar
Guðmundssonar og Guðrúnar
Klemensdóttur sem eiga heima í
Alfheimum 26 í Reykjavík.
Þeir sem með honum unnu ljúka
lofsorði á þann velvilja og þá lipurð
sem hann sýndi ætíð í samskiptum
við annað fólk.
En þó að Birgir frændi væri til
stórra verka kallaður og hefði mik-
il umsvif, bæði hér heima og
erlendis, gleymdi hann þó ekki unga
frændfólkinu sínu. Systkinum
sínum, þeim Kristínu, Pálma og
Viðari, sýndi Birgir frændi ætíð
mikla tryggð og hjálp. Þau mátu
hann öll mikils ekki aðeins sem
bróður heldur og líka sem vin og
félaga. Við skynjuðum hann ekki
sem hinn athafnasama fram-
kvæmdastjóra mikils fyrirtækis. Til
þess erum við of ung. I okkar huga
er hann góður, glaður vinur sem
ætíð sýndi okkur hlýhug þegar
fundum bar saman.
Lítil börn eru líka menn. Eflaust
sjáum við tilveruna í öðru ljósi en
hinir fullorðnu. Mat okkar á því
fólki sem við eigum samskipti við
er háð því hvemig það kemur fram
við okkur, en óháð öllu hefðar-
standi athafnalífsins.
Birgir frændi var elskulegur
maður sem gott var að eiga að vini.
Hann hvarf alltof fljótt héðan frá
okkur.
Sá sem skilur eftir sig ljúfar
minningar í vitund lítils bams
gleymist ekki. Gleðigeislarnir lýsa
inn í framtíðina og varpa birtu jafnt
yfir gengin og ógengin spor.
Þannig munum við Birgi frænda
og þökkum honum stuttar en góðar
samverustundir.
Hermann Örn,
Linda Björk,
Guðrún María.
Breytingar á Hótel Borg*
MIKLAR breytingar hafa verið
gerðar undanfarnar vikur á Hót-
el Borg, einkum á veitingasal
hótelsins. Sú ákvörðun var tekin
að loka ekki hótelinu meðan
breytingamar væru gerðar held-
ur lofa gestum að fylgjast með
framkvæmdum og gefa ábend-
ingar.
I samtali við Morgunblaðið sögðu
þeir Rögnvaldur Olafsson fram-
kvæmdastjóri hótelsins og Auðunn
Ármannsson aðstoðar hótelstjóri að
fyrirmyndin að þessum breytingum
væri sótt til Evrópu og Skand-
inavíu. Stefnt væri að því að fá
fram létt yfirbragð þar sem öll þjón-
usta og afgreiðsla gengi fljótt og
vel fyrir sig. Þeir sögðu að nýi veit-
ingasalurinn væri að hluta til
dæmigert kaffihús með úrvali smá-
rétta og kaffítegunda en einnig
væri boðið upp á hádegishlaðborð
með heimilismat og kaffíhlaðborð
með lifandi tónlist.
Lögð hefur verið áhersla á að
draga fram upphaflegan virðuleika
hússins. Gylling í lofti hefur verið
kölluð fram á nýjan leik, útlit mat-
seðla hannað í stíl við hina boga-
dregnu glugga og boðið verður upp
á lifandi tónlist á eftirmiðdögum.
Þeir Rögnvaldur og Auðunn
kváðust mjög ánægðir með breyt-
ingamar og hvemig að þeim var
staðið. Sögðu þeir að í þær vikur
sem breytingamar hefðu staðið yfír
hefðu ábendingar gesta oft verið
teknar til greina og aðsókn að veit-
ingasalnum hefði farið stöðugt
vaxandi þrátt fyrir litlar sem engar
auglýsingar.
„Við viljum að þessi staður höfði
til allra enda vom bamastólamir
það fyrsta sem við keyptum,“ sagði
Auðunn að lokum.
Nítján ára finnsk stúlka með
áhuga á ferðalögum, bréfaskriftum
o.fl.:
Tiina Aflecht,
Laitiala,
16790 Manskivi,
Finland.
Finnsk kona, 26 ára, með áhuga
á ferðalögum o.fl.:
Leena Aflecht,
Laitiala,
16790 Manskivi,
Finland.
Einstæð 25 ára finnsk kona, sem
á ungan son, vill eignast pennavini
á íslandi. Hefur áhuga á útivem,
listum og tónlist:
Tuula Stranius,
Punkkerikatu 4 As 19,
53850 Lappeenranta,
Finland.
Setán ára finnsk stúlka með
áhuga á hundum, tónlist og íþrótt-
um:
Jaanika Blomster,
Aallonhuippu 5A19,
SF-02320 Espoo,
Finland.
Þrettán ára enskur piltur, leikur
á trompet og hefur áhuga á sögu
víkinganna, teikningu, íþróttum
o.fl.:
Sam Jones,
196 Cable Street,
London E1 OBL,
England.
Frá Bandaríkjunum skrifar 33
ára karlamaður með áhuga á sögu,
tónlist, bókalestri, póstkortum og
frímerkjum:
Jimmy McVey,
P.O.Box 719,
Garrison,
Texas,
U.S.A.
steinsnar með Flugleiðum
Vissirðu að Flugleiðir fljúga allt að þrisvar í viku til Færeyja?
Þessar sérstæðu eyjar er einkar forvitnilegt að sækja heim, til að kynnast grönnum okkar,
menningu þeirra og gestrisni, svo og náttúru landsins.
S Þér býðst flugið: ^
REYKJAVIK-FÆREYJAR-REYKJAVIK
PEX kr. 11.530
Þú átt einnig möguleika á hringflugi, með viðkomu á nokkrum stöðum:
REYKJAVÍK-FÆREYJAR-GLASGOW-REYKJAVÍK
(eða öfugt) Kr. 18240.
REYKJAVÍK-FÆREYJAR-BERGEN-REYKJAVÍK
(eða öfugt) Kr. 19.360.
REYKJAVÍK-GLASGOW-FÆREYJAR-BERGEN-REYKJAVÍK
(eða öfugt) Kr. 25.730.
Taktu þig til, Færeyjar eru skammt undan.
SD/S
FLUGLEIÐIR
--fyrir þig_
Miðað er við háannatíma, júní júlí, ágúst.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum.
FLUGLEIDIR
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25100