Morgunblaðið - 22.07.1987, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 1987
41
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Ólafur Eysteinsson tekur Gunnfaxa til kostanna. Ólafiir var elsti knapi mótsins og náði góðum ár-
angri. Hann náði 3. sætinu í 250 m skeiði, varð í 4.-5. sæti i A-flokki og í 11. sæti í B-flokki.
AlúÖarþakkir vil ég fœra öllum þeim, sem á
einn eÖa annan hátt glöddu mig á sjötugasta
afmœlisdegi mínum 3. júlí síÖastliÖnum.
GuÖ blessi ykkur öll fyrir aÖ gera mér þann
dag svo eftirminnilegan.
Þórður Kristjánsson.
Ég þakka af alhug öllum þeim sem glöddu
mig meÖ heimsóknum, gjöfum, símskeytum
og hlýju handtaki á sextugsafmœlisdaginn
minn 11. júlí sl.
LifiÖ heil.
Hermann Ragnar Stefánsson,
danskennari.
Hestaþing Mána í Keflavík:
Hestar frá Hvassafelli
sigruðu í A- og B-flokki
Keflavík.
HESTAÞING Hestamannafé-
lagsins Mána á Suðurnesjum fór
fi-am á svæði félagsins við Mána-
grund í júní og stóð mótið í tvo
daga. Fyrri daginn var gæðinga-
keppni og kappreiðar fóru fram
seinni daginn.
Það bar helst til tíðinda að hest-
ar frá Hvassafelli við Eyjafjörð
sigruðu í A- og B-flokki. Tinni sem
keppti í B-flokki fékk hæstu ein-
kunn sem gefín hefur verið á móti
hjá félaginu. Eigendur Tinna eru
Sigurður Kolbeinsson og Rúnar
Guðbrandsson og sýndi Sigurður
hestinn, en eigandi TVists sem sigr-
aði í A-flokki er Steinar Ragnars-
son.
Kappreiðamar tókust vel og náð-
ist ágætur árangur í flestum
greinunum. Sá fáséði atburður átti
sér stað í 150 metra skeiði að Hvin-
ur sem Erling Sigurðsson sat datt
á marklínunni en hvorki manni né
hesti varð meint af byltunni. Erling
var með öryggishjálm og taldi hann
að hjálmurinn hefði bjargað sér frá
höfuðmeiðslum. Hvinur sigraði í
þessari grein.
María Júlía Pálsdóttir sigraði í
unglingaflokki 12 ára og yngri á
Perlu 6606, fékk eink. 8,19. Önnur
varð Guðrún Hallgrímsdóttir á
Neista, fékk eink. 8,13 og í þriðja
sæti varð Þuríður Halldórsdóttir á
Hákon, hún fékk 7,78 í einkunn.
í unglingaflokki 13-15 ára sigr-
aði Hrönn Ásmundsdóttir á Eldi,
fékk 8,19 í einkunn. Bjami Stefáns-
son á Geisla varð annar með 8,02
og Jón Guðmundsson á Feyki varð
í þriðja sæti með einkunnina 7,97.
Tvistur, 6 v. rauðblesóttur frá
Hvassafelli í Eyjafírði, knapi Skúli
Steinsson, sigraði í A-flokki gæð-
inga. Tvistur fékk 8,10 í einkunn.
Eigandi hans er Steinar Ragnars-
son í Keflavík. í öðm sæti varð
Boði, 7 v. rauður frá Áshildarholti,
knapi Brynjar Sigurðsson, eigandi
Guðrún Lilja Sigurðardóttir,
Keflavík. Boði fékk 7,97 í einkunn.
í þriðja sæti varð Salome, 8 v. frá
Kvíabekk, með einkunnina 7,95.
Eigandi og knapi Viðar Jónsson í
Keflavík.
Tinni, 10 v. brúnn frá Hvassa-
felli í Eyjafírði, og Sigurður Kol-
beinsson höfðu nokkra yfírburði í
B-flokknum og fengu þeir 8,57 í
einkunn. Eldur, 10 v. rauður frá
Stóra-Hofí í Rang., varð annar með
einkunnina 8,26, knapi og eigandi
Þórir S. Ásmundsson. Þriðji varð
Vinur, 8 v. sótrauður, með 8,25 í
einkunn. Knapi var Ragnar Jón
Skúlason en eigandi Kristinn Skúla-
son.
Helstu úrslit í kappreiðunum
urðu þau að í 150 m skeiði sigmðu
Hvinur og Erling Sigurðsson á 16,6
sek. Glaumur og Jón P. Ólafsson
sigmðu í 250 m skeiði á 24,8 sek.,
Erlincr Sitnirðsson á Vnno yaprt onn.
ar á 25,3 sek. og í þriðja sæti varð
Ólafur Eysteinsson á Perlu, fékk
tímann 26,5 sek.
í 250 m stökki sigraði Gunnfaxi,
knapi Jón Guðmundsson, á 19,9
sek., í 350 m stökki sigraði Skand-
all á 27,1 sek., knapi Guðmundur
Jónsson. Nasi sigraði í 600 m stökki
á 47,5 sek.; knapi Ragnheiður E.
Jónsdóttir. I 300 m brokki sigraði
Trítill á 39,6 sek., knapi var Jóhann-
es Þ. Jónsson.
Mótsstjóri var Amoddur Tyrf-
ingsson, en Steinar Ragnarsson
hafði umsjón með kappreiðunum.
BB
Sigurður Kolbeinsson á Tinna
frá H vassafelli í B-flokkskeppn-
inni. Tinni fékk hæstu einkunn
sem B-flokkshestur heftir fengið
i gæðingakeppni hjá Mána.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Sognhátíð
Sumarhátíð Styrktarfélags
Sogns verður haldin á Sogni
um verslunarmannahelgina.
Hliómsveitin Carma oa fiöldi
landsþekktra skemmtikrafta.
Fjölmennum.
Stjórnin.