Morgunblaðið - 29.08.1987, Síða 46

Morgunblaðið - 29.08.1987, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1987 01908 Univarul Pr«u Syndlcate „ sag8> p'erofove'kjo- ek.ki upp draug hér innú." ást er. r,'v .. . að vera saman í öldurótinu. TM R*q. U.S. P«t Off.—all nghts resarvsd ° 1987 Los AnQeles Times Syndicate Hér gildir það að fólk borgar mér fyrir að spila ekki ... Hvaða bjáni er það sem sendir hingað steypubíl til að styrkja varnimar? HÖGNI HREKKVtSI 4 Þessir hringdu . . . Hraðamælingar á ómerktum bílum Móðir hringdi: „Ég vil gjaman beina þeirri áskorun til lögreglunnar að hún noti bíla sem ekki sést að eru lög- regjubflar við hraðamælingar. Öðru vísi ná þeir ekki ökuníð- ingum. Ég og fleiri íbúar í sama íbúðahverfi höfum tekið eftir því að ökuníðingar keyra eins og englar er merktir lögreglubflar eru við mælingar en taka upp gamla akstursiagið er mælingum lýkur. Lögreglan nær því líklega fæstum þeirra og jafnskjótt og hún hættir mælingum fellur allt í sama farið aftur. Ef ökuníðingar ættu það hins vegar á hættu að lögregluþjónar væru hvar sem er að mæla öku- hraða myndu þeir væntanlega hugsa sig um tvisvar áður en þeir stofna lífi og limum s^mborg- ara sinna í hættu. Mér þætti afar vænt um ef lög- reglan tæki þetta til greina og veit að ég tala fyrir hönd margra mæðra sem óttast um bömin sín í umferðinni. Ég hef talað um þetta við lögregluna og þeir hafa verið afskaplega almennilegir en segja að það margir hafí kvartað þegar þeir hafí reynt að mæla ökuhraða í ómerktum bflum að þeir hafí hætt því. Munum að slysin gera ekki boð á undan sér. Leigðu ót herbergi án þess að skoða það Guðrún Guðlaugsdóttir hringdi: Við hjónin pöntuðum herbergi á Hótel Stykkishólmi þann 6. ágúst með þriggja vikna fyrir- vara. Okkur var sagt þegar við pöntuðum að það gæti verið að við yrðum að dvelja úti í bæ og við gátum alveg sætt okkur við það. En herbergið sem við fengum var þannig að það var ekki hægt að bjóða gestum upp á það. Það var í gömlu húsi og við gátum til dæmis ekki lokað hurðinni al- mennilega, eins var með bað- herbergið, það var ekki hægt að loka því og ekkert heitt vatn þar. Rúmin voru tveir bekkir með þynnstu gerð af dýnu. Við erum bæði fullorðin og gátum iítið sofíð. Þegar við kvörtuðum við þá á hótelinu virtust þeir ekki einu sinni hafa skoðað herbergið og þykja okkur það ófyrirgefanleg vinnubrögð. Herbergið var að vísu hreint og við fengum ágætis mat á hótelinu og 900 krónu afslátt en okkur fínnst samt ekki hægt að leigja út herbergi sem ekki var búið að líta á áður.“ Hækkunin til að stækka pottinn Hákon Gunnarsson fram- kvæmdastjóri íslenskra get- rauna hringdi: „Mig langar að svara nafnlaus- um óánægðum getraunaþátttak- anda varðandi verðhækkun á getraunaröðum. Hún er gerð til að stækka pott- inn og gera vinninga veglegri. Margir hafa hringt og lýst ánægju sinni með þá ráðstöfun. Hvatning bréfritara um að landsmenn snúi sér að lottóinu í staðinn er undar- leg. Þar kostar hver röð 25 krónur en 10 krónur hjá getraunum. Ég læt landsmönnum eftir að meta líkur á vinningi." Minkar eiga rétt á betri meðferð Grétar Eiríksson hringdi: „Það var fyrir nokkrum árum að það þótti til tíðinda að nokkrir Akureyringar unnu það einstæða afrek að elta uppi ref á vélsleðum og drepa dýrið með því að aka yfir það. Þótti þetta svo vasklega að verki staðið að Morgunblaðið birti ýtarlega myndskreytta frétt þar sem þetta var talin hin mesta hetjudáð. Ekki voru allir lesendur blaðsins á einu máli um afrekið og létu vanþóknun sína í ljósi. Nú gerist það á miðvikudaginn að lesa má á annarri aðalfrétta- síðu blaðsins frétt með viðeigandi Ijósmjmd af þekktum minkabana eins og segir í fréttinni sem vinn- ur það einstæða afrek, að vísu með aðstoð annars manns að mér skilst, að elta uppi minkahvolps vesaling, króa hann af og vinna á honum með skóflu. Já, miklir menn erum við Hrólf- ur minn. Ég hygg að það hefði verið rétt af fréttastjóra blaðsins að hafna þessari afrekasögu, þó ekki væri nema af tillitsemi við þann sem afrekið vann þó svo að ef til vill sé það frétt í sjálfu sér að enn skuli vera til þeir er telja slíkan verknað til afreka. Öll dýr sem aflífa þarf skal deyða á snöggan og mannúðlegan hátt, svokölluð meindýr líka. Sé þess ekki kostur skal dýrið halda lffí. Menn skulu muna það að mink- urinn sóttist aldrei eftir landvist á íslandi heldur var honum boðið hingað af okkur sjálfum og á sama rétt á mannúðlegri meðferð sem önnur húsdýr, sem raunar öll dýr.“ Hvenær eru börn full- orðin hjá S VR? Björn Guðmundsson hringdi: „Mig langar að beina spumingu til forráðamanna SVR. Hvenær eiga böm að byija að borga full- orðinsgjald? Ég hef hringt í SVR en ekki alltaf fengið sömu svör. Getur það til dæmis verið að bam sem fætt er 15. maí 1975 og annað bam sem fætt er 15. september 1975 eigi að greiða mismunandi mikið fyrir hveija ferð næsta vetur? Þau fara bæði í tólf ára bekk. Mér skilst af sumum sem ég hef talað við innan SVR að þau eigi að greiða mismikið." Gullarmband fannst Gullarmband fannst í Austurbæn- um snemma í sumar. Eigandinn getur hringt í síma 671226. Gullkeðjan komst til skila Kona hringdi: „Mig langar til að koma þakk- læti til Velvakanda og konunnar sem auglýsti að hún hefði fundið gullkeðju. Ég hélt að ég myndi aldrei sjá keðjuna aftur en það er greinilega enn til heiðarlegt fólk á íslandi." Víkverji skrifar Víkveiji ók um Öldugötu á leið sinni til vinnu árla morguns fyrr í þessari viku og blasti þá við honum heldur ófögur sjón. Rusla- tunnur stóðu á gangstéttum framan við flest hús öðru megin götunnar, troðfullar margar hveijar þannig að drasl hafði oltið úr þeim. Þegar Víkveiji ók sömu götu nokkru síðar stóðu tunnumar þar enn. Vinnu- brögð þau sem viðhöfð em við sorpsöfnun í höfuðborginni hljóta að teljast gamaldags og vorkennir Víkveiji starfsfólkinu — það dröslar tunnum út á götu og síðan aftur á sinn stað. Fjöldi ára er síðan það var tekið upp á Akureyri að plast- pokar em settir í tunnumar og þeir síðan teknir úr þegar losað er. Sama er upp á teningnum á Selt- jamamesi og hugsanlega víðar. Þau vinnubrögð hljóta að teljast mun betri fyrir starfsfólk, þrifalegri, létt- ara er að bera pokana í stað þess að rogast með þungar tunnur. Hef- ur borgaryfírvöldum virkilega ekki dottið í hug að gera breytingu þama á? XXX ASeltjamamesi hafa í sumar staðið yfir lagfæringar á göt- um, og er Víkveija efst í huga Suðurstrandar-spottinn frá Eiðs- granda að Nesvegi, svo og kaflinn framan við Mýrarhúsarskóla eldri, þar sem bæjarskrifstofumar em til húsa. Lagfæringar á Suðurströnd vom svo sannarlega löngu tímabær- ar, og andaði Víkveiji því léttar þegar framkvæmdir hófust þar fyrr í sumar. En svo? Starfsmenn bæjar- ins hafa verið að dunda við þetta síðan og framkvæmdir gengið með hraða snigilsins. Enn hefur ekki verið lokið við að malbika kaflann, sem þó virðist ekki mikið mál. Hvað kaflanum framan við bæjarskrif- stofumar viðvíkur þá vom umferð- arhindranir settar þar upp, unnið að Iagfæringum í nokkra daga, en síðan ekki söguna meir. Enn standa hindranir á „sínum stað“ en starfs- menn bæjarins hafa ekki sést á staðnum í nokkra daga. Umferð er því aðeins hleypt á eina akrein á kafla. Hvemig væri að drífa í að klára þetta smotterí og koma um- ferð í eðlilegt horf á ný? Eða á þetta „skraut“ ef til vill að standa þama í vetur? egar Víkveiji las íþróttasíðu Morgunblaðsins á þriðjudaginn hélt hann að meinleg prentvilla hefði slæðst inn í frásögn af vali hóps leikmanna sem skipa ólympíu- landsliðið. Einn þriggja markvarða þar var Valsarinn Guðmundur Hreiðarsson. Guðmundur hætti um tíma í sumar að æfa með liði sínu, en er nú að vísu kominn í herbúðir Vals á ný. Markverðir 1. deildarlið- anna hafa staðið sig vel í sumar og því vakti þetta val furðu Víkveija. Þorsteinn Bjamason ÍBK og Guðmundur Baldursson, aðal- markvörður Vals, eru ekki gjald- gengir í liðið þar sem þeir hafa báðir leikið í heimsmeistarakeppni, en hvers eiga aðrir markverðir að gjalda sem leikið hafa á fullri ferð í sumar, menn eins og Þorfínnur Hjaltason hjá Völsungi, Baldvin Guðmundsson úr Þór, Halldór Halldórsson FH og Jón Örvar Víðis- maður? Var aldrei til umræðu að leyfa þeim að spreyta sig? Án þess að rýið sé kastað á Guðmundur Hreiðarsson, þá hljóta hinir að vera betur undir það búnir um þessar mundir að taka þátt í erfíðri bar- áttu á knattspymuvellinum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.