Morgunblaðið - 19.09.1987, Side 1

Morgunblaðið - 19.09.1987, Side 1
64 SIÐUR OG LESBOK 211. tbl. 75.árg. LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins ^ Opinber mynd frá keisarahöllinni Forseti Islands hjá Japanskeisara FRÚ Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, hitti Hirohito Japanskeisara að máli í gær í keisarahöllinni í Tókýó, þar sem myndin hér að ofan var tekin. Að loknum fundi þjóð- höfðingjanna sat forsetinn hádegisverðarboð Yasuhiros Nakasones, forsætisráðherra Japana. Frú Vigdís er í Japan vegna opnunar sýningarinnar Scandinavia Today. Þaðan mun hún fljúga á morgun til Frakklands, þar sem hún verður viðstödd opnun Islandsviku í Bordeaux. A-Þýskaland: Skotið á liðþjálfa Austur-Berlín, Washington, Reuter. BANDARÍSKUR yfirliðþjálfi, er var á opinberri eftirlitsferð í A- Þýskalandi í fyrradag, særðist er sovéskur hermaður skaut á her- bifreið hans. Barry liðþjálfi og menn hans voru á ferð í greinilega merktum heijeppa, er hópur sovéskra hermanna kom aðvífandi. Einn þeirra skaut sjö skot- um á jeppann og brot úr byssukúlu hrökk í Barry, sem særðist lítillega. Samkvæmt samningi hernáms- veldanna í Þýskalandi frá 1947 er Vesturveldunum leyft að fara í eftir- litsferðir um vissa hluta Austur- Þýskalands. Sovétmenn hafa svipuð réttindi í Vestur-Þýskalandi. Eduard Shevardnadze, utanríkis- ráðherra Sovétmanna, baðst í gær afsökunar á atvikinu. Hann sagði hins vegar að samkvæmt upplýsing- um, sem hönum hefðu borist, ættu báðir aðilar sök á skothríðinni. Sögulegt samkomulag risaveldanna: Fyrsti samningur um fækkun kjamavopna Waðhington, Reuter og AP. Bandaríkjamenn og Sovétmenn skýrðu frá því í gær að þeir hefðu komist að sögulegu samkomulagi um útrýmingu allra meðal- og skammdrægra kjarnorkueld- flauga risaveldanna. Samkomu- lagið verður undirritað á fundi leiðtoga ríkjanna síðar á haustinu. Þetta er i fyrsta sinn sem risa- veldin gera samning um að útrýma sérstakri tegund kjarna- vopna eins og hún leggur sig frá þvi kjarnorkuöld hófst fyrir rúm- um fjórum áratugum. Fyrri samningar hafa gert ráð fyrir frystingu eða takmörkunum á framleiðslu vopnanna. Þetta er einnig fyrsti samningur ríkjanna um afvopnunarmál og takmörkun vígbúnaðar í meira en áratug. „Það gleður mig að geta skýrt frá því að komist hefur verið að sam- komulagi um öll meginatriði samn- ingsins," sagði Ronald Reagan Bandaríkjaforseti á fréttamanna- fundi í Hvíta húsinu í Washington í gær að loknum þriggja daga viðræð- um utanríkisráðherra risaveldanna, þeirra Georges Shultz og Eduards Shevardnadze. Forsetinn sagði að ráðherramir myndu hittast aftur í Moskvu í lok næsta mánaðar til að ganga frá lausum endum í samn- ingnum og ákveða nákvæma dagsetningu leiðtogafundar, sem hann sagði myndu fara fram í Bandaríkjunum. Gorbachev Kreml- arleiðtogi og Reagan hafa hist tvisvar áður, í Genf árið 1985 og í Reykjavík á síðasta ári. Shultz, sem kom fram á fundinum með Reagan, sagði: „Öll grundvall- aratriði hafa verið leyst og eftir eru aðeins tæknileg vandamál, sem við erum sannfærðir um að við getum leyst. Á fréttamannafundi, sem Shev- ardnadze hélt í sovéska sendiráðinu í Washington, sagði hann að stjóm- völd í báðum ríkjum væm staðráðin í að samningurinn yrði undirritaður á þessu ári. Stjómmálaskýrendur telja að samningurinn hafi meiri pólitísk áhrif en hernaðarleg þar sem hann tekur aðeins yfir lítinn hluta eld- flaugaskotpalla risaveldanna. Samningaviðræður risaveldanna um fækkun langdrægra eldflauga standa nú einnig yfir, en þar telja menn erfiðara um vik að ná samn- ingum, þar sem slík vopn vega miklu þyngra en þau sem nú er samið um. Schultz viðurkenndi að samning- urinn, sem náðist í gær, hefði takmörkuð áhrif. „Það er mikil vinna framundan," sagði hann. „En þetta er byijun - mikilvæg byijun." She- vardnadze tók í sama streng. Bandaríska varnarmálaráðuneyt- ið, Pentagon, opinberaði í gær áætlanir um að hraða tilraunum með geimvamaáætlun Bandaríkja- manna, sem Kremlveijar hafa túlkað sem meiriháttar hindrun á veginum til samninga um langdrægar eld- flaugar. Vamarmálaráðuneytið sagði tilraunimar í samræmi við bann stórveldanna við gagneld- flaugakerfum frá 1972 (ABM- samninginn). Shultz sagði að hann og hinn sov- éski starfsbróðir hans hefðu „komist áleiðis“ í viðræðum sínum um ABM- samninginn. Shevardnadze sagðist hafa lagt til að ríkin kæmu saman Reuter Reagan Bandaríkjaforseti skýrir frá því hýr á svip að komist hafi verið að samkomulagi um útrým- ingu meðal- og skammdrægra kjarnavopna. til viðræðna um brot á samningnum, sem lengi hefur verið deiluefni. Þingmenn á Bandaríkjaþingi fögnuðu afvopnunarsamkomulag- inu, en vildu ekki spá um það hvort það yrði staðfest í þinginu. Til þess þarf tvo þriðjuhluta atkvæða. Sjá einnig ýtarlega frásögn og myndir á bls. 30-31 og „Létu boð berast ..." á bls. 2. San Francisco: Hommar mótmæltu komu Páls páfa San Francisco, Reuter. HOMMAR gerðu hróp að Jóhannesi Páli páfa þegar hann kom í gær til San Franc- isco og breytti engu um þótt hann blessaði og huggaði alnæmissjúklinga í þessari borg, sem stundum er kölluð höfuðborg homma í Bandarikjunum. Um 3000 hommar höfðu safnast saman við komu páfa og hrópuðu þeir að honum „páfí, farðu heim“ og „nasista-páfí“ og sögðust mundu halda mótmælunum áfram fram á föstu- dag þegar páfí fer til Detroit, síðasta áfanga- staðarins í ferðinni. Eftir komuna talaði páfi til alnæmissjúklinga og annarra, sem þjást af ólæknandi sjúk- dómum, tók í hönd þeim, faðmaði þá að sér og sagði, að guð færi ekki í manngreinarálit, heldur elskaði hann alla. Dan Tumer, sem bar- ist hefur við alnæmissjúkdóminn í fímm ár, sagði, að þetta hefði verið mjög blessunarrík stund. „Mér fannst ekki lengur sem ég væri óhreinn, heldur leið mér eins og kristnum manni í musteri guðs.“ Hommamir, sem hrópuðu ókvæðisorð að páfa, vom ekki á sama máli. Fyrir þeim er hann fulltrúi kirkju, sem þeir segja, að amist við hommum og umgangist sem úrhrök. Um 20% San Franciscobúa, sem era 750.000 tals- ins, era hommar og hafa þeir mikil pólitísk áhrif í borginni. Á föstudag fer páfi til Detroitborgar og þar R^utcr Páll páfi faðmar að sér alnæmissjúkling, Brendan O’Rourke. Hann er fjögurra ára gamall dreyrasjúklingur og sýktist við blóð- gjöf. mun hann ljúka Bandaríkjaförinni með ræðu um kristna trú og kapitalisma. Detroit er í hjarta mikil iðnaðarsvæðis, sem má muna sinn fífíl fegurri og er stundum kallað „Ryðbeltið“ í háði. Þar býr flöldi manna af pólskum ættum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.