Morgunblaðið - 19.09.1987, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
TRYGGIÐ ORYGGI YKKAR
ALLT FYRIR
ÖRYGGIÐ
Vn i U ; 1 Æ ■
Öryggisbelti, -blakkir, -hjálmar, -skór, -stígvél.
Heyrnarhlífar, andlitshlífar, -grímur, -síur og hanskar.
Viðurkenndur öryggis- og hlífðarbúnaður.
Myndlistarrispa
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Það er um margt glæsilegt hót-
elið, sem risið er upp við Sigtún
og hefur gjörbreytt götumyndinni.
Er ég leit þar inn á dögunum til
að skoða sýningu Péturs Friðriks
vakti það athygli mína hve vegg-
imir eru ríkulega prýddir málverk-
um.
Það eykur mjög á virðuleikann
innan dyra en þó með nokkrum
fyrirvara, sem ég vil vekja athygli
á. I anddyrinu er mjög stílhreint
málverk eftir Karl Kvaran og sóm-
ir sér prýðisvel og einstaka ágætar
myndir íslenzkra málara getur
einnig að líta. En það sem verður
mér að ásteytingarsteini er að á
veggjunum er heilmikið af útlend-
um málverkum, sem virðast vera
af verksmiðjutegundinni — gervi-
list, sem mögulegt er að kaupa
eftir almennum verðlistum enda
framleitt í ákveðnum tilgangi. Til
eru verksmiðjur sem framleiða
slíka list á færibandi í útlandinu,
og hún hefur ekkert með skapandi
hugsun að gera. Hins vegar taka
framleiðendumir traustataki ýmis
myndefni heimskunnra málara,
breyta þeim aðeins og fjölfalda svo
í þekkilegri grunnristri áferð,
þannig að víða er þetta vinsælla
en frummyndimar, svipað því að
lituð ull er víðast vinsælli uppruna-
lega litnum eða ullarvörur litaðar
með ekta náttúrulitum.
Nú er tilgangurinn alls ekki að
agnúast út í myndlistarsmekk
þeirra er hér ráða ferðinni, frekar
en t.d. forráðamenn Hótel Arkar,
en vinsamlega vísa til að mjög svo
vafasamt er að blanda þessu sam-
an. En meta ber mikils þegar keypt
er íslenzk myndlist inn á hótel,
einkum í nokkru úrvali svo sem
Þorvaldur Guðmundsson hefur
gert. Einnig ber að meta mikils
ef keypt er erlend myndlist, eink-
um ef um gilda og lifandi list er
að ræða.
Hafnargallerí
Tvær sýningar hafa undanfarið
gist Hafnargallerí, sem er á efri
hæð bókabúðar Snæbjamar í
Hafnarstræti. Nýlokið er mjög
þekkilegri sýningu á litljósmyndum
eftir Matthew James Driscoll,
sem eftir myndefnunum að dæma
er sannkallaður heimshomaflakk-
ari. Fram kom að myndasmiðurinn
hefur ákaflega næmt auga fyrir
hrífandi smáatriðum í tilverunni
og jafnframt fyrir hinu myndræna
í þeim — stundum er líkast sem
hann sé að mála með ljósmyndavél-
inni. Ég skoðaði sýninguna af
mikilli athygli í tvígang og hafði
dijúgan fróðleik af.
Þessa dagana hanga uppi níu
verk eftir unga listspím, Guð-
björgu Hjartardóttur að nafni,
og stendur sýningin til 19. sept-
ember. Um þá sýningu hef ég
næsta lítið að segja, nema að
stærsta myndin á sýningunni býr
jafnframt yfir mestum myndræn-
um tilþrifum. Einhvem veginn
koma myndimar mér þannig fyrir
sjónir að gerandanum liggi annað
hvort ekki mikið á hjarta eða að
myndimar gefí ekki rétta mynd
af raunverulegri getu hans.
Gunnar Kristinsson
Ég vil kvitta með nokkmm
línum fyrir boðskort sem ég fékk
á sýningu á Mokka-kaffi. Þar
hanga uppi um þessar mundir
nokkrar myndir eftir Gunnar
Kristinsson. Myndirnar komu mér
á óvart því að í þeim skynjaði ég
töluverð sálræn átök og um leið
glímu við myndflötinn. Víst er, að
þetta er átakamesta sýningin, sem
ég hef séð á þessum stað lengi,
en gæta skal þess að ég er ekki
fastagestur á staðnum né neinu
öðm kaffihúsi, svo að hér skal
nokkur fyrirvari hafður á.
Gunnar virðist gæddur góðum
myndrænum gáfum, og nokkrar
myndir á vinstri vegg, er inn er
komið, myndu sóma sér vel á meiri-
háttar samsýningum hér í borg. í
þeim er senn form- og litrænn
kraftur, og það má vera augljóst
að höfundinum liggur eitthvað
mikið á hjarta, sem vill bijótast
fram . ..
Rekstrarverkfræðingur
Rækjuiðnaðurinn - Grænlandi
Framleiðslufyrirtæki græn-
lensku heimastjórnarinnar -
KTU - sem hefur aðalbæki-
stöðvar sínar í Nuuk (Godt-
háb), hefur yfir að ráða 12
verksmiðjum sem allar eru stað-
settar á vesturströnd Græn-
lands. Verksmiðjurnar annast
fisk- og rækjuvinnslu. Á veiði-
tímanum vinna allt að 2.800
starfsmenn hjá verksmiðjunum
og árleg velta þeirra nemur u.
þ.b. 800 milljónum króna.
Verksmiðjurnar eru hver um sig
sjálfstæð bókhalds- og fjár-
hagseining.
/ hverri verksmiðju fyrirsig hef-
ur fyrirtækið komið fyrir tölvu-
stýrðum skýrslu- og stýrikerf-
um, bæði hvað varðar rekstrar-
og fjármálasviðið.
I sambandi við áframhaldandi stækkun fyrirtæk-
isins og framkvæmd fastákveðinna þróunaráætl-
ana er nú óskað eftir rekstrarverkfræðingi til
starfa í aðalskrifstofu fyrirtækisins i Nuuk.
Rekstrarverkfræðingurinn tekur þátt í yfirstjórn,
samhæfingu og eftirliti rekstrardeildarinnar í
samvinnu við rekstrarstjóra viðkomandi sviðs.
Rekstrarverkfræðingurinn er auk þess ráðgefandi
og tekur þátt í skipulagningu framleiðsluáætlana
verksmiðjanna og samhæfingu þeirra á milli. Auk
þessa hefur hann eftirlit með framvindu fjár-
hagsáætlunar.
Æskilegt er að umsækjandi hafi hagnýta undir-
stöðuþekkingu á fiskiðnaði, gjarnan rækju-
vinnslu, og þar að auki menntun sem t.d.
verkfræðingur eða matvælafræðingur. Auk þess
er lögð áhersla á fjármálaskilning.
Gert er ráð fyrir töluverðum ferðalögum í Græn-
landi.
Verkfræðingurinn þarf að geta tekið þátt í skap-
andi og virkri samvinnu með öðrum starfsmönn-
um fyrirtækisins á sjálfstæðan, hæfan og
ábyrgðarfullan hátt.
Þekking og áhugi á grænlenskri menningu og
þróun er kostur og áhersla er lögð á að viðkom-
andi hafi góða hæfileika til að aðlaga sig nýjum
aðstæðum.
Grænlensk náttúra hefur upp á margt að bjóða
og möguleikar á að stunda dýra- og fiskveiðar
eru einnig fyrir hendi.
Ráðningarkjör eru góð og greiðsla flutnings-
kostnaðar fyrir umsækjanda og fjölskyldu hans
er innifalin. Fyrir hverja 12 mánaða ráðningu er
veitt leyfisferð til islands fyrir starfsmanninn og
fjölskyldu hans. Látin er í té hæfileg íbúð.
Æskilegt er að hefja störf sem fyrst eða eftir
samkomulagi.
Nánari upplýsingar um stöðurnar fást hjá Ll M ES
Consulting A/S, sími 009 45 1 65 55 53.
Nánari viðtöl varðandi stöðurnar munu eiga sér
stað í Reykjavík.
Skriflegar umsóknir, á dönsku, sem litið verður
á sem trúnaðarmál, óskast sendar til:
LIMES
Consulting A/S
Tagesmindevej 2, DK-2820 Gentofte.