Morgunblaðið - 19.09.1987, Síða 23
23
ekki hægt að svara. Þetta hefur
bara þróast svona. Auðvitað hefur
þetta verið mikil vinna og fystu
árin var maður að vasast í þessu
nánast allan sólarhringinn. Ég hef
verið mjög heppinn með samstarfs-
fólk og nú hef ég framkvæmda-
stjóra yfir hverri deild, sem bera
ábyrgðina hver á sínu sviði. Ég
held fundi með þeim daglega, og
síðan hvílir ábyrgðin á þeirra herð-
um. Vinnuálagið á mér sjálfum er
því ekkert meira nú þótt umsvifin
hafi aukist, -enda eru ekki nema
þessir 24 tímar í sólarhringnum."
Þú lést einhvem tíma svo um-
mælt í viðtali að þú stefndir að því
að geta hætt að vinna 45 ára. Er
það enn takmarkið?
„Ég hef nú enn tíma til stefnu
til að taka ákvörðun um það. Að-
stæður gætu þá verið orðnar
breyttar. Annars held ég að menn
ættu ekki að taka svona ummæli
of alvarlega. Þessu var frekar sleg-
ið fram sem hugmynd."
Alíslensk hönnun
Nýja hótelbyggingin við Armúla
lætur enn sem komið er ekki mikið
yfir sér, enda eiga þar eftir að rísa
nokkrar hæðir. Þegar inn er komið
má hins vegar sjá að þar er mikil
bygging í smíðum, og getur þar að
líta hvemig nýi skemmtistaðurinn
er byggður, stall af stalli. Af götu-
hæð er komið inn á efri svalir, sem
mynda halfhring yfir dansgólfinu
og sviðinu. Búningsherbergi verða
í kjallara og þaðan geta skemmti-
kraftar og hljómsveit komið með
lyftu upp úr gólfi sviðsins. Raunar
hefur maður á tilfinningunni að hér
sé í byggingu leikhús eða ópera,
fremur en skemmtistaður.
Halldór Guðmundsson, arkitekt á
Teiknistofunni hf. í Ármúla 6, hefur
teiknað hina nýju hótelbyggingu og
á jafnframt heiðurinn af hönnun
skemmtistaðarins. Hann sagði að
Ólafur hefði sett fram ákveðnar
óskir í upphafi og svalahugmyndin
væri frá honum komin, en að öðm
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 '
leyti hefði hugmyndin þróast smám
saman í umræðum á Teiknistofunni
og milli þeirra Ólafs. „Við höfum
verið opnir fyrir ýmsum hugmynd-
um og ekkert feimnir við að breyta.
Hönnunin gæti því alveg eins tekið
breytingum alveg fram að opnun.
Það er engin fyrirmynd að þessum
skemmtistað eða sjálfu hótelinu
annars staðar í heiminum. Þetta er
alíslensk hönnun," sagði Halldór.
Hann sagði að þetta hefði verið
afar spennandi verkefni og hið
stærsta, sem hann hefði fengist við
í eipum áfanga.
Ólafur sagði að samkvæmt áætl-
un ætti nýi staðurinn að opna í
desember næstkomandi. Þar yrði
boðið upp á viðamiklar sýningar,
af áður óþekktri stærðargráðu hér-
lendis, með erlendum skemmti-
kröftum, jafnvel enn þekktari en
áður hafa komið fram á sviði hér
á landi. „Þetta veltur auðvitað mik-
ið á framkvæmdinni í upphafi, en
staðurinn sem slíkur býður upp á
sviðsetningu á sýningum í hæsta
gæðaflokki og stærð hans opnar
möguleika til að fá hingað topp-
skemmtikrafta erlendis frá,“ sagði
Ólafur.
Sv.G.
Teikning af nýja skemmtistaðn-
um, eins og arkitektinn Halldór
Guðmundsson hugsar sér hann.
Til vinstri má sjá hvemig lyftan
úr búningsherbergjum kemur
upp úr gólfi sviðsins.
Götumynd af Hótel íslandi, séð
austur eftir Armúla.
Þú þiggur tíu...og gott betur!
ii.l i:. rl.i ''