Morgunblaðið - 19.09.1987, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
Eina vopn Amnesty
International er
almenningsálitið
-segir Malcolm Tigerschiold leiðbeinandi hjá AI.
HÉR Á landi er staddur Sviinn
Malcolm Tigerschiold frá al-
þjóðaskrifstofu Amnesty Inter-
national. Hann er hér á vegnm
íslandsdeildar AI og leiðbeinir
á námskeiðum sem íslands-
deildin heldur nú um helgina,
19.-20. september og næstu
helgi, 26.-27. september. Morg-
unblaðið hitti hann að máli og
spurði hann um námskeiðið og
starfsemi alþjóðaskrifstofunn-
ar.
„A vegum skrifstofunnar starfa
um 250 manns, og skiptist starf-
semin aðallega í tvo hluta: annars
vegar söfnun upplýsinga, til dæm-
is um samviskufanga, og hins
vegar það starf, sem snýr að deild-
unum, skipulagningu baráttunnar
og hjálp við að byggja upp nýjar
deildir og að styðja við þær
gömlu" segir hann.
„Starf mitt er fólgið í því að
styðja við starfsemi deilda AI í
Evrópu. Ég er búinn að vera i AI
í 18 ár og þekki því starfið mjög
vel.“
Er hvað ætlar hann að kenna
á námskeiðinu? „Eg kenni ekki,
ég leiðbeini. Grunnurinn er starf
sjálfboðaliða, og tilgangurinn er
að hjálpa þeim að skilja betur
starfið, svo það nýtist betur.“
Námskeiðið er bæði fyrir byij-
endur og reynda. Byijendundum
er kynnt hvað AI er og til þess
eru notuð dæmi úr raunveruleik-
anum. Því aðalatriðið í starfsem-
inni eru fangamir og hvemig er
hægt að leysa mál þeirra.
Hinir reyndari eru látnir starfa
málefni, nú beinist t.d. athygli
okkar að S-Kóreu. Því eina vopn
Amnesty er almenningsálitið.
Morgunblaðið/Einar Falur
Malcolm Tigerschiold, sem leiðbeinir á námskeiði Amnesty Int-
ernational í Hlaðvarpanum um þessa og næstu helgi.
Hlutverk AI er ekki aðeins að
segja fólki hvað það á að gera,
heldur að aðstoða fólk við að gera
það sem það sjálft vill til hjálpar
öðmm. Aðalatriðið er að hæfíleik-
ar fólks njóti sín í starfínu, fólk
þarf ekki að vera vel menntað til
að vera með, það þarf aðeins að
hafa ánægju af því að starfa í
AI, sagði hann að lokum.
81!
'ii
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Unnið hefur verið að viðgerðum utanhúss á félagsheimiiinu Egiisbúð.
Neskaupstaður:
Endurbætur á Egilsbúð
Neskaupstað.
í SUMAR hefur verið unnið að
viðgerðum utanhúss í félags-
heimilinu Egilsbúð. Múrhúð
hefur verið lagfærð og húsið
klætt að utan með akryl-klæðn-
ingu. Þá eru að hefjast endiír-
bætur innanhúss á eldhúsi,
anddyri og veitingasal.
Áætlað er að hefja fljótlega fram-
kvæmdir við viðbyggingu vestan
núverandi veitingasalar og á þar
að vera bar og setustofa. Þaðan
verður gengið niður í nýjan veit-
ingasal sem áformað er að verði
einnig garðstofa. Sérinngangur
verður í nýju viðbygginguna svo
hægt verður að nota hana sem sjálf-
stæðan veitingastað, innangengt
verður þaðan í danssal. Gert er ráð
fyrir að hraða verkinu sem mest
svo rekstur í húsinu geti hafíst sem
fyrst, en hann hefur legið niðri að
mestu það sem af er árinu.
Eigendafélag Egilsbúðar hefur
nú að nýju tekið við húsinu, en
undanfarin ár hefur rekstur þess
verið á vegum bæjaryfírvalda og
gengið fremur illa.
— Ágúst.
FISKIÐN, fagfélag fiskiðnaðar-
ins, heldur fræðslufund í tengsl-
um við sjávarútvegssýninguna
sunnudaginn 20. september
næstkomandi. Fundurinn verður
í Holiday Inn við Sigtún og hefst
klukkan 13.00. Fiskiðn hefur að
megin markmiði að stuðla að
umbótum á sviði fiskiðnaðar.
Fræðslufundurinn verður settur
klukkan 13.10. Dagskrá fundarins
er annars á þessa leið:
13.10-13.40. Hraðlína fyrir
flakaframleiðslu og tenging við
Baader 180 P. Fyrirlesari Asgeir
Ragnarsson SH.
14.00-14.30. Flæðilína fyrir
flakaframleiðslu. Fyrirlesari Finn-
bogi Alfreðsson Framleiðni.
14.50-15.20. Notkun einkatölva
til að fylgjast með daglegri og viku-
legri framlegð. Fyrirlesarar Hörður
Jóhannsson Hraðfrystihúsi Kefla-
víkur og Pétur Isleifsson Tanga
Vopnafírði.
15.50-16.00. Notkun forrita við
gerð framlegðarspár miðað við
gefnar forsendur. Fyrirlesari Þor-
steinn A. Pétursson SH.
Umræður og fyrirspumir verða
eftir hvert erindi. Þátttökugjald,
með kaffíveitingum inniföldum, er
400 krónur. Allir sem áhuga kunna
að hafa eru velkomnir á fundinn.
Fréttatilkynning.
Ráðstefna um Island
í Cornell háskóla
CORNELL háskólinn í Ithaca í
Bandaríkjunum hélt ráðstefnu
um ísland í síðustu viku. Meðal
þeirra sem erindi fluttu á ráð-
stefnunni voru Ingvi Ingvason
sendiherra íslands í Banda-
rikjunum og dr. Finnbogi
Guðmundsson landsbókavörður,
sem er gestur Fiske safnsins i
Coraell um þessar mundir.
Ráðstefnan stóð yfír í tvo daga.
Hún hófst fimmtudaginn 10. sept-
ember með erindi Ingva Ingvasonar
sendiherra um ísland í nútímanum.
Dr. Finnbogi Guðmundsson flutti
næst erindi um hlutverk bókarinnar
í íslensku þjóðfélagi. Um kvöldið
voru sýndar kvikmyndir um ísland
í Uris bókasafninu.
Finnbogi flutti einnig erindi á
föstudeginum og fjallaði það um
verk Snorra Sturlusonar. Theodore
Andersson prófessor við Stanford
háskólanum fjallaði um túlkun ís-
lendingasagna og Marianne Kal-
inke prófessor við háskólanum í
Illinois flutti erindi um tengsl ís-
lands við meginland Evrópu á síðari
hluta miðalda.
Síðdegis hélt Peter Kahn prófess-
or við Comell háskóla fyrirlestur
um tvær íslenskar listakonur. Var
fyrirlesturinn fluttur í tenglsum við
sýningu sem nú stendur yfír í Jo-
hnson listasafninu á verkum Nínu
Tryggvadóttur og Louise Matthías-
dóttur. Sýningunni lýkur 25.
október nk.
Á meðan á ráðstefnunni stóð var
einnig sýning á íslenskum bók-
menntum í Olin bókasafninu þar
sem Fiske safnið er til húsa. Sýnd-
ar voru annars vegar bækur frá 15.
og 16. öld og hins vegar nýjar land-
kynningabækur. Allar bækumar
eru í eigu Fiske safnsins.
Að sögn Finnboga Guðmunds-
sonar var ráðstefnan vel sótt og
aðstandendur hennar ánægðir með
hvemig til tókst.
Lionessur undirbúa sölu.
Lionessur í Kópavogi
selja „heimilispoka “
KONUR í Lionessuklúbbnum meðal annars plastpoka, upp-
Ýr í Kópavogi ganga í hús í þvottabursta og fleira til heimilis-
Kópavogi nú um helgina, laug- ins.
ardag og sunnudag, og bjóða Allur ágóði af sölunni rennur
„heimilispoka" tii sölu. til líknarmála.
„Heimilispokamir" innihalda
NEMENDURMODELMYNt
0G DANS-NÝJUNGAR
JXfhending skírt&ina fer fram ídag
kl.13-16 á Hverfisgötu 46.
Skírteinaafhending fyrir Keflavík og Selfoss er sunnudaginn 20. sept.
I Keflavík, Sólbaösstofan Sóley, frá kl. 12-15.
Á Selfossi, Hótel Selfoss, frá kl. 17-20.