Morgunblaðið - 19.09.1987, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 19.09.1987, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 25 Náttúruvemdarfélag suðvesturlands: Náttúruskoðunar- ferð um suðurnes Sunnudaginn 20. september stendur Náttúruvemdarfélag Suðumesja fyrir ökuferð til kynningar á náttúru Suðumesja. Farið verður frá Norræna húsinu í Reykjavík kl. 9.00, frá Nátt- úmgripasafninu, Hverfisgötu 116 (gegnt Lögreglustöðinni), kl. 9.10, frá Sjóminjasafni ís- lands í Hafnarfirði kl. 9.20 og frá bamaskólanum í Vogum kl. 10.00. Áætlað er að koma aftur til Reykjavíkur um kl. 19.00. Stansað verður á nokkmm stöð- um til náttúmskoðunar, að öðm leyti fer fræðslan fram í bílnum. Fargjald verður 600 kr., frítt fyrir böm í fylgd með fullorðn- um. Allir em velkomnir. í þessari ferð gefst áhugafólki einstakt tækifæri til að njóta góðrar fræðslu um jarðfræði og lífríki Suðumesja. Eldstöðvar verða skoðaðar, farið verður í Jarðhitasvæðið við Reykjanesvita. fjöru, hugað verður að hvemig gróðurinn býr sig undir veturinn og litið verður eftir fuglum svo eitthvað sé nefnt. Margt kemur þátttakendum áreiðanlega á óvart. Leiðsögumenn verða: Haukur Jóhannesson jarðfræð- ingur, Eyþór Einarsson grasa- fræðingur og Erling Ólafsson dýrafræðingur. Sunnudaginn 11. október, - mun Náttúmvemdarfélag Suð- vesturlands fara mannvistar- minja- og söguferð um sömu slóðir og sunnudaginn 18. októ- ber verður aftur farin ferð þar sem fjallað verður um ýmis nátt- úmvemdar- og umhverfísmál á Suðumesjum. Lagt verður af stað í báðar ferðimar kl. 9.00 frá Norræna húsinu. (Frá NVSV) Starfsemi Norrænu lýð- fræðistofn- unarinnar kynntá Islandi FREDRIK Christensen, rektor Norrænu lýðfræðistofnunarinn- ar í Kungalv í Svíþjóð, er nú staddur hér á landi til þess að kynna starfsemi stofnunarinnar. Fredrik hefur meðal annars hitt að máli þá aðila er annast fullorð- insfræðslu á íslandi. Norræna lýðfræðistofnunin er miðstöð lýðfræðslu og fullorðins- fræðslu á Norðurlöndum og hefur það hlutverk að efla þessa fræðslu og leita nýrra leiða. Áhersla er lögð á að þátttakendur og fyrirlesarar á námskeiðum stofnunarinnar komi frá öllum Norðurlöndunum og í ákveðnum tilfellum einnig frá öðr- um löndum. Lýðfræðistofnunin nýtir sama húsnæði og Norræni lýðháskólinn í Kungálv og er ein af þeim 40 stofnunum sem falla undir norrænu menningarfjárlögin. í samtali við Morgunblaðið sagði Fredrik að á annan tug íslendinga hefðu tekið þátt í námskeiðum stofnunarinnar aðallega þeim er snertu uppeldisfræðslu. Með heim- sókn sinni hér væri hann að kynna íslendingum starfsemi stofnunar- innar, m.a. hefði hann átt fund með þeim er annast fullorðinsfræðslu hér á landi. Auk þess að kynna starfsemina væri hann að leita eftir hugmyndum að námskeiðum sem íslendingar kynnu að hafa sér- stakan áhuga á að sækja. Ein- hveijar hugmyndir hefðu komið fram og mætti sem dæmi nefna að áhugi virtist vera fyrir hendi að haldið yrði námskeið er fjallaði al- mennt um fullorðinsfræðslu og hvað hún fæli í sér. Fulltrúi íslands í stjóm Norrænu lýðfræðistofnunarinnar er Reynir G. Karlsson, deildarstjóri í mennta- málaráðuneytinu, en varamaður hans er Guðrún Halldórsdóttir, skólastjóri. Meðal þeirra námskeiða sem haldin verða á vegum stofnunarinn- ar í vetur má nefna að 12.-14. október verður námskeið um þróun uppeldisfræðslu, 2.-6. nóvember um rannsóknir, fagurfræði, fullorðins- fræðslu, 10.-11. nóvember um lýðræði, meðábyrgð og vald, 15.-20. nóvember um skáldskap og ritstörf og 23.-37. nóvember verður haldið námskeið um myndir sem kennslu- tæki. Höfóar til .fólksíöllum starfsgreinum! 3. Fjárfesting í HP 3000 er fjárfest- ing til frambúðar því stækkunar- möguleikarnir eru gífurlegir. Pú getur byrjað með tvo til þrjá skjái og fjölgað þeim í fleiri hundruð en þó nýtt áfram sama hugbúnað og jaðartæki. Hverjir eru stækkunarmöguleikar tölvunnar þinnar? Parftu að fleygja dýrmætum vél- og hugbúnaði efaðstæð- ur þínar breytast? 4. Tengimöguleikar HP 3000 eru einstakir. Sem dæmi má nefna PC tölvur, allar tegundir prentara, tímaskráningartæki, vigtar, tölvur annarra framleiðenda og x.25 gagnanet Pósts og síma. Ræður þín tölva við svo fjölbreytta tengimöguleika? 5. Öllum HP 3000 tölvukerfum fylgir rafhlaða (battery backup) sem tryggir að upplýsingar í vinnslu- minni detta ekki út við rafmagns- truflanir. Hvernig er þessu háttað á tölvunni þinni? Parf að byrja frá grunni aftur? 6. Hewlett-Packard er í samstarfi við flest stærstu hugbúnaðarfyrir- tæki landsins sem bjóða mikið úrval hugbúnaðar fyrir HP 3000 tölvur auk ráðgjafar. Par á meðal eru Próun hf, Verk- og kerfisfræði- stofan hf, Tölvuvinnsla og kerfis- hönnun hf og Hughönnun sf. Ertu ánægður með þann hugbúnað sem þér stendur til boða fyrir þína tölvu ? 7. Lágur viðhaldskostnaður og mikið rekstraröryggi HP búnaðar- ins eru löngu heimsþekkt. Einnig býður Hewlett-Packard mjög hag- kvæma kaupleigu. Hver er rekstrarkostnaðurinn við þitt tölvukerfi? Að fengum öllum þessum upplýsingum er valið þá nokkur spurning? Hewlett-Packard býðst nú til að taka IBM SY/34-36 tölvukerfi upp í við kaup á HP 3000 tölvusamstæðu. Hafðu samband og tryggðu þér góð skipti. Pú nýtur um leið góðs af þekkingu og þjónustu fagfólks í töl vuiðnaðinum. HEWLETT PACKARD HEWLETT-PACKARD á íslandi. - flókin tækni gerð einföld. P.S. Erum einnig til viðræðu um að taka aðrar fjölnotcndatölvur upp í HP 3000. Nú geta eigendur IBM System/34-/36 kvatt fortíðina með góðri samvisku! -Þökk sé HP 3000 tölvusmstæðunni. HP 3000 í stað gömlu tölvunnar, fyrir 1. nóvember Við auðveldum þér næsta skref í tölvuvæðingu fyrirtækisins með því að taka gamla tölvukerfið upp í við kaup á nýrri fullkominni HP 3Ö00 tölvusamstæðu. Þetta tilboð stendur til 1. nóvember n.k. Kveddu fortíðina og fáðu þér HP 3000 Á því leikur ekki vafi að um mjög hagstætt tilboð er að ræða, því HP 3000 er tölvubúnaður framtíðarinnar og stækkar með fyrirtækinu. Próunin er ör og afar skiljanlegt að tölvukaupendur séu á báðum áttum. Við bendum aðeins á eftirfarandi staðreyndir: 1. Gagnasafnskerfi HP 3000 er mjög víðtækt og býður bæði upp á net- og töflukerfi (Image og HPSQL). Með sérstökum fyrirspurnarmálum hefur notandinn auk þess aðgang að miklu magni upplýsinga án sér- stakrar forritunar. Er það hægt á þinni tölvu? 2. Með HP 3000 er hægt að fá fjórðukynslóðar-málið Transact sem stóreykur afkastagetu forritara og sparar þannig dýrmætan tíma og fjármagn. Að sjálfsögðu bjóðum við einnig upp á Fortran, Cobal, Pascal og RPG. Bjóðast þér þessir möguleikar á þinni tölvu?
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.