Morgunblaðið - 19.09.1987, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987
EITT OG ANNAÐ
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Haustlitir
Það er ekki ofsögum sagt af
fegurð náttúrunnar í kringum
okkur, hennar er hægt að njóta
allan ársins hring þó með misjöfn-
um hætti sé. Þegar að sumri lýkur
tekur við ný árstíð með margt sem
gleður. Litadýrð haustsins er mik-
il eins og allir vita, gróðurinn fær
á sig margbreytilega iiti, litrófíð
er í raun með ólíkindum og gleður
hugi þeirra sem kunna að njóta.
Nú þegar komið er fram yfír
miðjan septembermánuð standa
tré víða enn í fullum skrúða, það
er helst að lauf birkitijánna sé
búið að fá gulan lit á stöku grein.
Það er siður margra að taka
greinar úr garðinum þegar haust-
litimir hafa náð yfírhöndinni og
setja í vasa inn í stofu. Þar eru
þær til prýði um hríð en svo falla
laufín auðvitað af.
Til að lengja aðeins lífdaga
slíkra greina er reynandi að úða
laufblöðin með hárlakki og setja
greinina í vasa án vatns.
Réttar stellingar
Allir þeir sem komnir eru til
vits og ára skilja nauðsyn þess
að bera sig rétt að við vinnu sína.
En það er eitt að skilja og annað
að framkvæma. Góð vitneskja
getur svo sannarlega gleymst
þegar síst skyldi, það er oft ekki
fyrr en afleiðingar rangra vinnu-
stellinga fara að segja til sín að
reynt er að söðla um, taka upp
betri siði.
Svona á að ryksuga.
Þyngdin látin hvila sem næst
olnboga.
Reynandi er að úða hárlakki á
greinarnar.
Eftirfarandi myndir sýna, hvað
er rétt og hvað er rangt, og verða
vonandi til þess að vekja einhvem
til umhugsunar.
Bakið á að vera beint þegar
gengið er upp stiga (konan til
vinstri) og er sjálfsagt að reyna
að temja sér þá stellingu í staðinn
fyrir að vera kengbogin eins og
sést á þeirri fremri.
Munurinn á stellingunum til
vinstri og hægri á myndinni er
auðséður. Við ættum að taka þá
réttu til eftirbreytni næst þegar
ryksugan er tekin fram, halda
okkur svo við hana áfram.
Það er ekki sama hvemig hald-
ið er á innkaupapokum og öðru
því sem við erum að bera heim á
nær hveijum degi. Betra er að
skipta byrðinni í tvennt, halda á
henni í báðum höndum, svo ekki
hallist á, og nauðsynlegt er að
temja sér að hafa axlimar „afs-
lappaðar". Ef bera þarf eitthvað
á handlegg er betra að láta þyngd-
ina hvíla sem næst olnboganum,
þá tekur ekki eins í bakið og þeg-
ar haldið er á einhveiju neðar.
GRUNDFOS — réttu dælurnar.
|| ÍSLEIFUR JÓNSSON
Bolholt 4 • Símar: 36920 - 36921
Af hverju að gera sig ánægðan með næstbestu lausnina
þegar GRUNDFOS fann bestu lausnina fyrir meira en 30 árum?
Það er þess vegna sem frystihús, sláturhús og aðrir þeir
sem þurfa á öruggu vatnsrennsli að halda, hvort heldur er
að dæla köldu og heitu vatni eða sjó hafa valið GRUNDFOS
dælur undanfarna áratugi.
Vatn er lykillinn að lífinu og í nútíma fiskeldisstöðvum
eru dælurnar í rauninni hjartað.
Vandið valið - veljið aðeins það besta.
Samhliða sjávarútvegssýningunni í Laugardalshöll viljum við
minna á sérsýningu okkar á dælum og uppsetningu þeirra
auk fyrirlestra sunnudag, mánudag og þriðjudag kl. 10 og 14
að Hótel Loftleiðum (Kristalsal).
Hefurðu látið skrá þig?
Hafðu samband í síma 36921 eða í deild E 126 í Laugardals-
höll og tryggðu þér sæti.