Morgunblaðið - 19.09.1987, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 19.09.1987, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. SEPTEMBER 1987 63 KNATTSPYRNA / VESTUR—ÞYSKALAND Uerdingen sigraði Kaiserslautem 3:1 Atli ekki með — Lárus inn sem varamaður BAYER Uerdingen og Kaisers- lautern, lið Atla Eðvaldssonar og Lárusar Guðmundssonar, mættust í gær í þýsku 1. deild- inni. Uerdingen sigraði 3:1 á heimavelli sínum. Hvorki Atli voru í byrjunarliðinu, en Lárus kom inn á sem varamaður. Leikur liðanna var góður, en áhorfendur voru aðeins 8.000. Uerdingen byrjaði betur og sótti mjög stíft. Kunz skoraði fyrst fyrir heimamenn eftir að hafa einleikið gegn- um alla vömina. Eftir markið vökn- uðu leikmenn Kais- erslautern til lífsins. „Við áttum nokkur færi eftir markið, en síðan komu þeir mun meira inn í leikinn. Fengu nokkur færi, áttu meðal annars skot í stöng og jöfnuðu svo. Okkar strákar fóru bara á taug- um,“ sagði Atli í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Það var Friedmann sem jafnaði metin. En sænski landsliðsmaður- inn Robert Prytz kom Uerdingen yfir á nýjan leik í síðari hálfleik og Funkel gerði þriðja markið rétt fyr- ir leikslok; skallaði í mark eftir aukaspymu. Eftir sigurinn í gær færðist Uerdingen úr neðsta sæti deildarinnar upp í 13. sæti. „Það Frá Jóhannilnga Gunnarssyni ÍÞýskalandi HEIMALEIKIR UTILEIKIR SAMTALS Leikir u J T Mörk U J T Mörk Mörk Stig BREMEN 8 3 1 0 11 : 1 3 1 0 6 : 2 17: 3 14 1. FCKÖLN 9 3 1 0 7 : 2 2 3 0 5 : 2 12: 4 14 GLADBACH 8 4 0 0 8 : 2 2 1 1 6 : 8 14: 10 13 STUTTGART 8 3 0 1 12 : 3 1 2 1 6 : 8 18: 11 10 BAYERN 8 3 1 0 12 : 4 1 0 3 6 : ' 9 18: 13 9 NURNBERG 8 0 4 0 3 : 3 2 1 1 7 : 2 10: 5 9 KARLSRUHER 8 3 1 0 7 : 2 1 0 3 6 : 10 13: 12 9 HSV 8 2 1 1 13 : 10 1 2 1 6 : 10 19: 20 9 HANNOVER 96 8 2 1 1 7 : 6 1 1 2 6 : 8 13: 14 8 FRANKFURT 9 1 1 2 5 : 4 1 2 2 10 : 14 15: 18 7 SCHALKE 04 8 2 1 1 8 : 4 1 0 3 6: 14 14: 18 7 BOCHUM 8 1 1 2 7 : 5 1 1 2 3 : 5 10: 10 6 UERDINGEN 9 3 0 2 8 : 5 0 0 4 1 : 6 9: 11 6 LEVERKUSEN 8 1 1 2 4 : 7 0 3 1 4 5 8: 12 6 HOMBURG 9 2 1 2 9 : 11 0 1 3 1 6 10: 17 6 KAISERSL. 9 2 2 0 10 : 5 0 0 5 3 16 13 : 21 6 MANNHEIM 9 1 3 1 3: 5 0 1 3 3 9 6: 14 6 DORTMUND 8 1 1 2 5 : 6 0 2 2 0 5 5: 11 5 sýnir vel hve deildin er gífurlega mjög jöfn,“ sagði Atli Eðvaldsson. Kaiserslautern er hins vegar komið niður í þriðja neðsta sætið eftir tap- ið í gær. Hinn leikurinn í gærkvöldi var sögulegur. Waldhof Mannheim og 1. FC Köln gerðu markalaust jafn- tefli í Mannheim. Dómarinn sýndi gula spjaldið sex sinnum og það rauða einu sinni. Danski landsliðs- maðurinn Flemming Povlsen var rekinn af velli í fyrri hálfleiknum fyrir gróft brot. Dómurinn var þó mjög umdeildur. Köln er enn ósigr- að í deildinni það sem af er vetri. Einn leikur var í fyrrakvöld. FC Homburg sigraði Eintracht Frank- urt á heimavelli 5:2. KNATTSPYRNA / U-18 ARA LANDSDLIÐIÐ Tveir leikir á úti- velli í næstu viku LANDSLIÐIÐ skipað leikmönn- um 18 ára og yngri leikur tvívegis í Evrópukeppninni í næstu viku. Báðir leikirnir fara fram á útivelli, fyrst mætir liðið Póllandi á þriðjudaginn og síðan Belgíu á föstudaginn, 25. september. Liðið hefur áður mætt báðum þessum hér heima — tapaði 2:3 fyrir Belgum í vor og síðan með sömu markatölu fyrir Pólveijum á KR-vellinum á dögunum. Liðir hef- ur sýnt ágæta takta í leikjum sínum en tapað þeim á síðustu mínútun- um. Bæði Belgar og Pólveijar skoruðu sigurmörk sín í lokin. Þá hefur liðið leikið gegn Dönum í keppninni; tapaði 0:2 hér heima en leiknum ytra lyktaði með jafntefli, 1:1. Leikimir í ferðinni nú eru því þeir síðustu í keppninni hjá íslenska liðinu. Lárus Loftsson, landsliðsþjálfari, hefur valið hópinn sem mætur Pól- KNATTSPYRNA veijum og Belgum í næstu viku. Hann er skipaður eftirtöldum leik- mönnum. Markverðir: Sigurður Guðmundss., ...Stjömunni Kjartan Guðmundsson,......Þór Ak. Aðrir leikmenn: Þormóður Egilsson,.............KR Rúnar Kristinsson..............KR Steinar Adólfsson.............Val Gunnlaugur Einarsson,.........Val Guðbjartur Auðunsson........Fram Bjami Benediktsson,....Stjömunni ValdemarKristóferss., ...Stjömunni Ingólfur Ingólfsson,...Stjömunni Helgi Björgvinsson...........Fram Ámi Þór Ámason, ...........ÞórAk. Páll Gíslason,................Þór Ak. Ólafur Viggósson,......Þrótti Nesk. Haraldurlngólfsson, ...........ÍA Egill Öm Einarsson......Þrótti R. Fararstjóm í ferðinni skipa eftir- taldir: Lárus Loftsson, Sveinn Sveinsson, Jóhann Ólafsson, Agnar Amason og Birkir Sveinsson. Steinar Adólfsson úr Val skoraði bæði mörkin gegn Belgum á dögunum. Hann er einn þeirra sem fer til Pól- lands og Belgíu. Minningarieikur á Akureyri í dag Minningarleikur verður í dag um Óskar Gunnars- son, fyrrum leikmann Þórs á Akureyri, en hann lést í hittifyrra. Leikurinn verður á malarvelli Þórs í Glerárhverfí og hefst kl. 14.00. Það verða lið Þórs og Leiftur úr Ölafsfírði sem mætast, en Leiftur vann einmitt sigur í 2. deild á dögunum. GOLF Akraprjóns- mótiðá morgun Akrapijónsmótið, opna kvennamótið í golfi, verður haldið á morgun, sunnudaginn 20. september, á golfvelli Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Mótið er 18 holur höggleikur. Byijað verður að ræsa út upp úr kl. 11.00. Hægt er að skrá þátttöku í dag frá kl. 10.00 til 16.00 í síma 93-12711. .9S0 . srvi/ nii'‘n3.s\ nioc lsí:i FOLX UANDREI Jeliazkov, búlgarsk- ur knattspyrnumaður, sem leikur með Beerschot í Belgíu, var í gær dæmdur í keppnisbann til ársloka 1988 af belgíska knattspyrnusam- bandinu. Jeliazkov, sem er vamar- maður, var rekinn af velli í bikarleik í síðasta mánuði fyrir að lemja einn mótheija sinna og hrækja á dómar- ann! „Þetta er mikið áfall fyrir okkur. Hann er besti leikmaður sem leikur hefur með liði okkar í mörg ár,“ sagði Jacques Pellens, þjálf- ari Beerschot i samtali við frétta- mann Reuters fréttastofunnar í gær. Þjálfarinn sagðist telja þennan dóm allt of harðan. USTURLA Örlygsson körfu- knattleiksmaður sem leikið hefur með meistaraflokki Vals í úrvals- deildinni síðustu tvö árin hefur ákveðið að leika með UMFN í vet- ur. Sturla lék áður með UMFN áður en hann gekk til liðs við Vals- menn. UFORRÁÐAMENN UEFA, Knattspymusambands Evrópu, hafa ákveðið að lyfjaprófa leikmenn eftir einn leik að minnsta kosti í hverri umferð Evrópumótanna héð- an í frá. Fyrsta lyfjaprófið fór fram eftir leik Feyenoord frá Hollandi og Spora frá Lúxemborg á mið- vikudaginn. Frá þessu var skýrt í gær. Áður hafa leikmenn verið lyfjaprófaðir eftir úrslitaleiki á Evr- ópumótunum en þetta var í fyrsta skipti sem forráðamönnum félag- anna er ekki gert viðvart fyrr en með nokkura klukkustundar fyrir- vara. UBJÓRN Borg tenniskappinn sænski er væntanlegur til íslands í nóvember. Hann ætlar þó ekki að spila tennis hér á landi. Tilefnið er að fyrirhugað er að verslunin Sonja he§i sölu á Bjöm Borg-vörum og ætlar hann að kynna vörar sínar. UHALLDÓR Halldórsson, markvörður FH-inga í knatt- spymu, flyst senn norður til Sauðárkróks. Hann er lögfræðingur að mennt og hefur senn störf hjá yfirvaldinu á staðnum. Halldór leikur þó að öllum líkindum með FH-ingum í 2. deildinni næsta sum- ar, þar sem hann réð sig aðeins tímabundið norður, og kemur aftur suður næsta vor. Þess má þó geta að Baldvin Guðmundsson, sem staðið hefur í marki Þórs á Akur- eyri undanfarin ár, hefur verið orðaður við FH að undanfömu, en hann var í herbúðum félagsins áður en hann fór norður. UKARL HEINZ Rummenigge, sem leikið hefur með ítalska liðinu Inter Mílanó síðastliðin þrjú ár, mun leika með svissneska liðinu Servette næstu tvö árin. Gengið var endanlega frá samningum milli félaganna í gær, en áður hafði Rummenigge samþykkt flutning- inn. Rummenigge er 32 ára og hefur leikið 95 landsleiki fyrir Vest- ur-Þýskaland. UZOLA Budd hlaupakonan fráa mun taka þátt í 10 km hlaupi á Norður-írlandi um helgina. Hún hefur átt við meiðsli að stríða um nokkur skeið og hefur ekki hlaupið í stórmóti síðan á Evrópumeistara- mótinu I Stuttgart í fyrra. UÞRÖSTUR Guðjónsson hefur verið ráðinn þjálfari úrvalsdeildar- liðs Þórs á Ákureyri I körfuknatt- leik í vetur. Hann lék með liðinu um árabil, og þjálfaði það einnig um tíma áður. Þórsarar hafa misst fjóra leikmenn frá því í fyrravetur. Þar skal fyrstan nefna ívar Webst- er sem fór á ný til Hauka, Ólaf Adolfsson til Breiðabliks og Hólmar Ástvaldsson og Ágúst Guðmundsson sem ekki er ljóst hvar leika í vetur. Þeir þremenning- ar síðasttöldu voru við nám í MA síðastliðinn vetur, en útskrifuðust í vor og era á leið suður í skóla. En Þórsarar fá menn í staðinn. Gamla Minoi ttitLgaila iiuirl á,r. C kempanJón Már Héðinsson hefur tekið fram skóna að nýju og Hrafn- kell Túliníus kom frá Breiðabliki.- Þá höfum við heyrt að Ólafur Gottskálksson, sem lék f marki KA í knattspymunni í sumar, leiki jafnvel með Þór í körfunni í vetur. Hann lék áður með ÍBK körfubolta — og er mjög sterkur leikmaður. UDIEGO Maradona mun mæta yngri bróður sínum, Hugo Mara- dona, i fyrsta sinn í leik í itölsku deildinni á morgun. Diego leikur sem kunnugt er með ítölsku meist- urunum Napoli en Hugo leikur með Ascoli en þangað var hann lánaður frá Napoli. Þriðji bróðirinn leikur með spænska 2. deildarliðinu Granada. Sturla Örlygsson leikur Njarðvíkingum á ný í vetur. með UMANCHESTER United hefur ákveðið að kaupa ekki ítalska mark- vörðinn Gulliano Terraneo, en hann hefur æft með Manchester United á Old Trafford að undanf- ömu í von um að komast á samning. Terraneo er 32 ára að aldri, og það var fyrrum félagi hans hjá AC Mflanó, Ray Wilkins, sem einnig lék með United í nokkur ár, sem benti Alex Ferguson, stjóra, Un- ited á markvörðinn. Ferguson ákvað þó að bjóða ítalanum ekki samning. United leitar nú að reynd- um markverði, og hefur m.a. reynt að fá þá Renat Dasayev, landsliðs- markvörð Sovétmanna, og Jean- Marie Pfaff, belgíska landsliðs- markvörðurinn sem leikur með Bayem Miinchen í Vestur Þýska- landi. UENZO Scifohefur ákveðið að leika með belgíska landsliðinu í knattspymu gegn Búlgaríu í Everópukepninni í næstu viku. Hann lék ekki með liðinu gegn Hollendingum í vináttuleik í síðustu viku. Lið hans, Inter Mílanó á Ítalíu, lét hann ekki lausan þar sem belgíska sambandið neitaði að tryggja hann fyrir þá fjárhæð sem félagið krafðist. Scifo er einn af sjö leikmönnum Belga sem leika erlendis og hafa verið valdir í landsliðshópinn gegn Búlg- aríu í Soffíu í næstu viku. UAGANEFND UEFA mun koma saman til fundar á sunnudaginn og taka fyrir mál fjórmenninganna sem reknir voru útaf í liði Tirana frá Albaníu í Evrópuleiknum gegn Benfica á miðvikudaginn. Það hef- ur aðeins einu sinni áður gerst að Ijórir leikmenn úr sama liði hafí verið reknir útaf í Evrópukeppni. Leiknum lauk með sigri Benfica, 4;0. Ab Ki.ta; i:frf, ni >;> nntiVsRvRtRfitlrrtírfl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.