Morgunblaðið - 29.09.1987, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
7
Loðnuafli
kominn í
7 þúsund
tonn
FIMM skip eru nú byrjuð loðnu-
veiðar við miðlínuna milli íslands
og Grænlands norður af Húnaf-
ióa. Samtals hafa skipin nú
fengið tæplega 7.000 tonn.
Jón Kjartansson SU hefur landað
tvívegis, 1.100 tonnum í hvort
skipti, Orn KE er með tvær landan-
ir, samtals 1.500 tonn, Skarðsvík
SH hefur landað tvisvar, samtals
1.300 tonnum, Guðrún Þorkels-
dóttir hefur landað einu sinni 720
tonnum og Börkur NK einu sinni
1.270 tonnum. Kap II VE mun
væntanlega halda á miðin í dag.
Fjórar verksmiðrjur hafa hafið
bræðslu auk Krossanesverksmiðj-
unar á Akureyri, en það eru
verksmiðjurnar á Raufarhöfn, Þórs-
höfn, Eskifirði og Norðfirði.
Tekin með
ólögleg
veiðarfæri
ÁHÖFNIN á varðskipinu Tý stóð
Þórkötlu GK að togveiðum með
ólögleg veiðarfæri um hádegis-
bilið á laugardag. Skipið var þá
statt um það bil 8 sjómílur suður
af Eldey.
Að sögn Þrastar Sigtryggssonar
skipherra í stjómstöð Landhelgis-
gæslunnar mældust möskvar í
trollpoka 145 millimetrar en lög-
boðin möskvastærð á þessu veiði-
svæði er 155 millimetrar. Skipið var
fært til hafnar í Grindavík og málið
fengið rannsóknarlögreglunni í
Keflavík til meðferðar.
Að sögn Johns Hill lögreglufull-
trúa hefur skipstjórinn á Þórkötlu
játað brotið. Ekki er enn ljóst hve-
nær málið verður dómtekið. í
málum sem þessu eru afli og veiðar-
færi ekki gerð upptæk, einungis er
beitt sektum.
Yfirdýra-
læknir heim-
ilar slátrun
Selfossi.
YFIRDÝRALÆKNIR gaf á
sunnudag vilyrði fyrir því að
Sláturhúsið Vík hf. fengi slátur-
leyfi í haust að uppfylltum
ákveðnum skilyrðum um endur-
bætur á sláturhúsinu. Þetta
gerðist i lok fundar sem hann
átti með hagsmunaaðilum í Vík.
Á fundinum voru málefni Slátur-
hússins í Vík hf. rædd, en því var
synjað um sláturleyfi og það til-
kynnt fyrir um það bil mánuði. í
lok fundarins var skipuð viðræðu-
nefnd sem ræddi við Sigurð Sigurð-
arson yfirdýralækni og Aðalstein
Sveinsson héraðsdýralækni um
lyktir í málinu. í þeim viðræðum
lagði yfirdýralæknir fram lista yfir
úrbætur sem þyrftu að liggja fyrir
svo hann mælti með því við land-
búnaðarráðherra að ráðuneytið
veitti húsinu sláturleyfi.
Viðræðunefndin sem var skipuð
fulltrúum bænda og sláturhússins
samþykkti að verða við öllum ósk-
um yfirdýralæknis og fram-
kvæmdaatriði útlistuð í skriflegu
svari til hans.
Þess er að vænta að Sláturhúsið
í Vík hf. fái formlegt sláturleyfi í
þessari viku. Landbúnaðarráðherra
lét.þau ummæli falla á fundi í Vík
21. september síðastliðinn að slát-
urleyfi fengist ef meðmæli um slíkt
kæmu frá yfirdýralækni. Stjómend-
ur sláturhússins sögðust eftir
fundinn á sunnudag byrja strax á
því að gera þær endurbætur á hús-
inu sem þarf að gera og hefja
undirbúning slátrunar.
Sig. Jóns.
Rjúpnastofn-
inn sterkur
Rjúpur í lyngi í Húnvatnssýslu.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
RJÚPNAVEIÐI hefst 15.
október og er rjúpnastofninn
í vexti vestanlands en heldur
á undanhaldi á Norðausturl-
andi að sögn Arnþórs Garð-
arssonar líffræðings.
Breytingar eru svo litlar milli
ára að þær eru tæpast mark-
tækar og er stofninn því í
jafnvægi.
Amþór sagði að stofninn hefði
heldur vaxið síðustu fimm ár en
mjög hægt. „Ef fækkun er að ein-
hverju marki þá kemur það ekki
í ljós fyrr en á veiðitímanum þeg-
ar við sjáum aldurssamsetningu.
Menn vita ekkert um rjúpuna frá
því hún hverfur af varpstöðvunum
og þangað til hún kemur fram í
afla veiðimannanna," sagði Arn-
þór.
PHANTOM RED
Hún er heillandi. Brosandi umvefur hún sig
töfrum. Phantom red er liturinn hennar
vegna þess að í hverri konu blundar löngun
til að skapa örlitla ringulreið. Hún notar
Margaret Astor Ultra-soft varalit og
Ultra-diamant naglalakk nr. 59, ásamt
augnskugga nr. 40 og 41.
Phantom red er haustlínan ’87 frá Astor.
Varalitir og naglalökk nr. 55, 56, 57, 58,
59, 60.
Augnskuggar Single, nr. 40og41.
Augnskuggar Duo, nr. 32 og 33.
Augnblýantar,
Augnbrúnablýantar,
Kinnalitir, Cream Rouge,
nr. 94 og 95.
nr. 90 og 91.
nr. 21 og 22.
ÓGLEYMANLEGIR LITIR