Morgunblaðið - 29.09.1987, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
13
Vínartónlist
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Signý Sæmundsdóttir söng-
kona, Anna Guðný Guðmunds-
dóttir og Sigurður I. Snorrason
héldu tónleika þriðjudaginn 22.
september og þykir því tilhlýðilegt
að biðrja listamennina og lesendur
að afsaka hversu seint þessi um-
sögn birtist.
Tónleikamir hófust á tilbrigða-
verki eftir Wemer Sehulze sem
er íslendingum kunnur frá því er
hann starfaði hér í Sinfóníuhljóm-
sveitinni og vegna ýmissa þæg-
inda sem Islendingar hafa haft
af honum á liðnum árum. Til-
brigðaverkið er fyrir klarinett og
píanó, tilbrigði án stefs og ber
hvert tilbrigði nafn. Það fyrsta
heitir Dans hundraðfætlunnar, þá
kemur Hugleiðing og þriðja til-
brigðið nefnist Liljulag, unnið úr
íslenska jjjóðlaginu við Lilju Ey-
steins Asgrímssonar. Ekki er
verkið flókið í gerð en var mjög
vel leikið af Sigurði og Önnu
Guðnýju.
Það var þó ekki fyrr en í Grand
duo concertante eftir Weber sem
þau fengu tækifæri til að sýna
getu sína. Þrátt fyrir að Weber
hafí ekki verið Vínarbúi, var leik-
ur Sigurðar svo sérkennilega
stflhreinn upp á þann máta sem
líklegt er að Vínarbúum falli í
geð. Leikstfll Sigurðar er fólginn
í sérstakri tónun, þar sem ekki
er sífellt verið að breyta um styrk
frá tóni til tóns, heldur lögð
áhersla á stöðugleika, þannig að
hver styrkleikaflötur er hreinn.
Þetta kann að þykja nokkuð kald-
ur leikur, en er um leið stílhreinn
og á einkar vel við klassík og leik-
tækni-verk eins og Grand duo
Webers. Dúóinn er feikna glæsi-
legt verk og ekki síður erfítt fyrir
pianóið en klarinettið en samleik-
ur Sigurðar og Önnu var með
afbrigðum góður.
Seinni hluti tónleikanna var
helgaður Schubert og söng Signý
Seligkeit, Ganymed, Erster Ver-
lust, Mignons Gesang og Der
Zwerg en það lag hafði undirritað-
ur ekki heyrt áður. Dvergurinn
er feikna áhrifamikið lag og þar
var söngur Signýjar feikna góður.
Það er svo einkennilegt með sön-
glögin eftir Schubert, að flest
þeirra eru svo afgerandi lagræn
að nærri ekkert má annað gera
nema að tóna þau sem fallegast.
Dvergurinn er meðal þeirra
söngverka Schuberts sem halðin
eru dramatískum krafti. Nokkur
ágæt sönglög meistarans eru
einkar elskuleg og glaðleg og eitt
slíkt er Der Hirt auf dem Felsen
en í því söngverki leikur klarinett-
ið ýmsar stemmningar og þar
mátti heyra margt sérlega fallega
gert af listamönnunum þremur.
Signý Sæmundsdóttir hefur um
árabil stundað söngnám í Vínar-
borg og mun taka sitt lokapróf í
vor og þá hefja störf sem fullgild
söngkona. Hún er mjög efnileg,
vel menntuð, hefur mikla og fal-
lega náttúrurödd og þarf nú
aðeins að fá góð tækifæri til að
takast á við verkefni við hæfí, sem
líklega er helst að fínna á dra-
matíska sviðinu, t.d. í Wagner.
Anna Guðný Guðmundsdóttir, Signý Sæmundsdóttir og Sigurður
I. Snorrason.
Móðirin góð
HEH LOVEKOR HEKCHILD-
WHOWILL 8HE CHOOSE WHKN SHE’S..
Erlendar baakur
Jóhanna Kristjónsdóttir
The Good Mother
Útg. Pan Books 1987
Anna og Brian hafa verið gift í
nokkur ár. Hjónabandið hefur misst
lit sinn, svona smátt og smátt.
Kannski liturinn hafí frá upphafí
verið hálfmóskulegur. Þau eiga
dótturina Molly, þriggja ára gamla,
þegar þau ákveða að skilja. Það er
að frumkvæði Önnu, en Brian
kemst fljótlega á sömu skoðun. Þau
ganga frá málunum í mesta bróð-
emi og það liggur í augum uppi,
að Molly muni verða hjá móður-
inni. Tengsl þeirra em sterk og þó
að hún hafi'haft starf utan heimil-
is, við píanókennslu, hefur hún sinnt
telpunni af elsku og áhuga. Anna
hefur alltaf verið opinská og hisp-
urslaus, þegar uppeldismálin era
annars vegar og henni er sömuleið-
is mjög í mun að standa sig í
stykkinu sem fráskilin kona og
móðir.
Brian upplýsir að hann muni
flytja til annarrar konu um leið og
skilnaðurinn er fenginn. Anna fyl-
list afbrýði, þrátt fyrir að hún vill
sjálf ekki vera gift þessum manni
lengur. Þeim kenndum er vel lýst
og skilningur höfundar á viðbrögð-
um Önnu hin gleggsti.
Fyrstu mánuðir verða þeim
mæðgum erfíðir, en smám saman
fer lífið að komast í bærilegan far-
veg og það lítur út fyrir að Molly
muni ekki bíða neitt tjón á sálinni
vegna skilnaðar foreldranna og þess
sem á eftir kemur. Anna kynnist
Leo Cutter, listmálara og mikið og
hamslaust samband tekst með
þeim. Húnr skynjar nýjar hliðar í
samskiptum karls og konu, sem hún
hefur ekki upplifað áður. Það sem
betra er, Molly er sátt við Leo og
heimilislífið virðist áreynslulaust og
óþvingað.
Þar til sá granur kemur upp, að
Leo hafi misboðið baminu kynferð-
islega. Þá hefst mikill darraðar-
dans, baráttan um forræði
telpunnar, rannsókn á þeim at-
burðum, sem um er að ræða. Er
Brian að gera þetta til að hefna sín
á Önnu, eða er umhyggja hans fyr-
ir Molly það sem ræður gjörðum
hans? Og hver er afstaða Onnu til
Leos, þegar henni hefur verið sagt
hvemig atburðurinn bar að, sem
íjaðrafokinu veldur.
Móðurástin og vægi hennar ann-
ars vegar og svo ástin milli karls
og konu hins vegar. Þessu gerir
Sue Miller bara snjöll skil.
'A STAIÍTUNCI.Y POWERfTIL
AND MOVINO BOOK’
CÍJBttHV
Kápumynd
Lýsingar höfundar era býsna
magnaðar og þó hvergi ýktar. Sál-
arstfiðið sem Anna verður að heyja
er trúverðugt og áhrifaríkt. Niður-
staðan á málinu er höfundi samboð-
in og í réttu samhengi við framgang
sögunnar.
KULDASKOR
STERKIR OG ÞÆGILEGIR
BALLETT KLASSISKUR BALLETT
Kennsla hefst 1. október.________
Nemendur athugiö: Afhending skírteina á morgun,
miðvikudaginn 30. september.
Upplýsingar í síma 72154.
Félag ísienskra listdansara.
BRLLET5KÓU 5IGRÍÐRR RRmflnn
SKÚLAGÖTU 32-34
STÓR RÝMINGARSALA
Ath.: 10% staðgreiðsluafsláttur af öllum nýjum vörum meðan á rýmingarsölunni stendur,
Gunnar Asgeirsson hf.
Suðurlandsbraut 16 '2?91-691600