Morgunblaðið - 29.09.1987, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
19
Norræna myndlistarbandalagið:
Gestavinnustofur settar á stofn á Norðurlöndum
Jón Sigurðsson
„Fréttamenn Bylgjunn-
ar eru ekki einir á báti
í þessari tegund vinnu-
bragða. Því er þessi
grein ætluð sem
víðtækari skilaboð til
fjölmiðlamanna — eins
konar tilraun til að ná
sambandi við þá, „sem
vinna þar sem mengun-
in er“ líka. Mengun í
fréttaflutningi er þeim
um skæðari en önnur
mengun, að hún verður
ekki þvegin af eða þrif-
in upp. Hún sest að í
hugskoti fólks sem
ranghugmyndir og býr
til óánægju þar sem hún
var fyrir. Hún af-
skræmir hugmynda-
lieim almennings um
mannlífið í landinu.
Hún telur almenningi
trú um að það samfé-
lag, sem við búum í sé
verra en það er.“
Dr. Freyr Þórarinsson
Doktor í
jarðfræði
NÝLEGA varði Freyr Þórarins-
son, jarðeðlisfræðingur, doktors-
ritgerð við Colorado School of
Mines í Colorado í Bandaríkjun-
um. Doktorsritgerð Freys fjallar
um nýja aðferð til þess að túlka
mælingar á viðnámi jarðar í tölvu
og heitir á ensku. „A program
to interpret roving dipoie surv-
eys with a conductive plate
model".
Freyr Þórarinsson er fæddur í
Reykjavík 25. júní 1950, sonur
Sigríðar Theodórsdóttur og Þórar-
ins Guðnasonar. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MH 1970 og B.Sc. frá
HÍ 1975. Hann starfaði á Orku-
stofnun til 1981 en fór þá til
framhaldsnáms í Bandaríkjunum
lauk M.Sc. frá CMS 1984 en hefur
síðan unnið að doktorsritgerð sinni.
Freyr Þórarinsson er giftur Kristínu
Geirsdóttur bókasafnsfræðingi og
eiga þau tvo syni. Hann starfar nú
á eigin vegum í Reykjavík.
AÐALFUNDUR Norræna mynd-
listarbandalagsins var haldinn
hér á landi í byrjun september.
Bandalagið er nú að koma upp
gestavinnustofum á Norðurlönd-
um fyrir norræna myndlistar-
menn. í tengslum við fundinn var
einnig haldin ráðstefna um
myndlist í fjölmiðlum, en í niður-
stöðum frá henni hvetur banda-
lagið norrænar sjónvarpsstöðvar
til að auka umfjöllun sína á
myndlist.
Sjónvarpsstöðvamar eru hvattar
til að auka skipti á dagskrárþáttum
sem fjalla um myndlist og að auka
og lengja unna þætti og fréttaút-
sendingar sínar um myndlist. Þá
eru ráðamenn einnig hvattir til að
auka fjárframlög og bæta aðstöðu
til gerðar myndbanda um myndlist-
armenn til dreifíngar á Norðurlönd-
um.
Eitt af verkefnum bandalagsins
að undanförnu er uppbygging á
gestavinnustofum um Norðurlönd-
in. Þar fá norrænir listamenn að
búa og vinna, kynnast listalífinu á
hverjum stað, listamönnum, gallerí-
um, listaskólum og verkstæðum.
Ein slík gestavinnustofa er á Is-
landi, í Hafnarborg í Hafnarfírði.
Norræna myndlistarbandalagið
var stofnað árið 1945, en hlutverk
þess hefur verið að kynna norræna
myndlist á Norðurlöndum og á al-
þjóðlegum vettvangi. Fyrsta
samnorræna myndlistarsýningin á
vegum bandalagsins var haldin árið
1946. Síðan þá hefur bandalagið
staðið fyrir bæði hópsýningum og
einkasýningum auk fjórtan stórra
samsýninga.
Aðild að Norræna myndlistar-
bandalaginu eiga ísland, Danmörk,
Noregur, Svíþjóð, Finnland og Sa-
maland, en auk þeirra áttu Færeyj-
ar, Aland og Grænland fulltrúa á
aðalfundinum. A aðalfuhdinum var
kjörinn nýr formaður, Gunnar Bay
frá Danmörku, en fráfarandi form-
aður er Thorstein Rittun frá Noregi.
Suðurveri og Hraunbergi
yrjandi?
Ertu í góðu formi?
Þarftu að fara í megrun?
I ogtKtti+a*
tímfZm
\j5B er flohkutinn fprir þig.
I
íii> A< <♦> V «
LÍKAM5RÆKT OG MEGRUH
Fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem haafa öllum.
2.KERFI
FRAMHALD5FLOKKAR
Lokaðir flokkar. Þyngri tímar, aðeins fyrir vanar.
3.KERFI
RÓLEGIR TÍMAR
Fyrir eldri konur, eða þær sem þurfa að fara varlega.
4.KEKFI
MEGRUHARFLOKKAR
aukakiloi
5.KERFI
FYRIR UHGAR OG HRE55AR
Teygju — þrek —jazz.
Eldfjörugir tímar með
léttri jazz-sveiflu.
Hýjar peruríöllum jömþum
ávallt ífararbroddi
tforqun-, oG Kx/ólutimar ....
Suðurveri, sími 83730 Hraunbergi, sími 79988