Morgunblaðið - 29.09.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
23
Doktor í jarðfræði
AIESEC:
Samnorræn keppni í
stjórnun fyrirtækja
BJÖRN Gunnarsson varði 1.
júlí sl. doktorsritgerð í jarð-
fræði við John Hopkins-
háskóla í Maryland-fylki í
Bandaríkjunum. Ritgerðin
nefnist „Petrology and pe-
trogenesis of silicic and int-
ermediate lavas on a
propagating oceanic ridge.
Studies on SW-Torfajökull and
Arnarfell
bauð best
í Austur-
landsveg
Hekla central volcanoes, sout-
h-central Iceland".
Doktorsritgerðin fjallar um
bergefnafræði; um myndun og
þróun á kísilríkum hraunkvikum
innan tveggja virkra eldstöðva-
kerfa á Islandi, Torfajökuls og
Heklu. í ritgerðinni er meðal ann-
ars sýnt fram á mikilvægi endur-
uppbræðslu á eldri ummyndaðri
jarðskorpu til myndunar á kísilríku
bergi innan stórra eldstöðvakerfa
á Islandi og almennt á úthafs-
skorpu.
Bjöm Gunnarsson er fæddur í
Reykjavík árið 1957, sonur Gunn-
ars Á. Bjömssonar húsasmíða-
meistara og konu hans, Marin
Ingibjargar Bjamadóttur. Bjöm
lauk BS-prófí í jarðfræði frá Há-
skóla íslands árið 1980 og vann
um skeið að jarðfræðirannsóknum
hér heima áður en hann fór út til
Bandaríkjanna til framhaldsnáms.
Dr. Björn Gunnarsson
í nóvember næstkomandi hefur
Bjöm rannsóknarstörf á vísinda-
stofnuninni Califomia Institue of
Technology í Kalifomíu-fylki í
Bandaríkjiinum. Bjöm er giftur
amerískri konu, Maria-Victoria
Gunnarsson.
ALÞJÓÐLEG samtök viðskipta-
og hagfræðinema, AIESEC,
stendur að samnorrænni keppni
í fyrirtælqasljórnun sem hefst
23. október næstkomandi. A hin-
um Norðurlöndunum hefur þessi
keppni verið haldin síðastliðin
fjögur ár og nú taka Islendingar
þátt í henni í fyrsta sinn.
Keppnin fer þannig fram að í
hveiju fyrirtæki koma saman 2-5
starfsmenn og mynda þannig eitt
lið sem rekur ímyndað fyrirtæki.
Tíu slík lið mynda einn samkeppnis-
markað sem þau keppa á. Fleiri en
eitt lið frá hveiju fyrirtæki geta
tekið þátt í keppninni.
Liðin taka ákvarðanir um helstu
þætti sem hafa áhrif á afkomu fyr-
irtækjanna, svo sem verð, hráefnis-
kaup, fjárfestingar, markaðssetn-
ingu og vinnuaflsnotkun. Það
fyrirtæki vinnur sem nær mestum
hagnaði yfir fimm tímabil, en á
hvert tímabil má líta sem eitt ár í
sögu fyrirtækisins. Tvö efstu liðin
fara síðan til Bergen í Noregi í
apríl á næsta ári og keppa þar um
Norðurlandameistaratitilinn.
Keppnin er hugsuð sem þjálfun
í ákvörðunartöku fyrir stjómendur
fyrirtækja og um leið sem skemmti-
leg tilbreyting. Hún fer fram í
gegnum bréfaskriftir og getur hvert
keppnislið komið sér saman um
hvar það hittist. Akvörðunartaka
liðana tekur 2-3 klukkustundir einu
sinni á hálfsmánaðar fresti. Skrán-
ingu keppenda lýkur 7. október
næstkomandi.
ARNARFELL hf. í Skagafirði
átti lægsta tilboð í lagningu 7,2
km kafla á Austurlandsvegi, frá
Mýri að Hofi. Tilboðið er 11,1
milljón kr. sem er 73% af kostn-
aðaráætlun Vegagerðar ríkisins.
Tíu verktakar buðu í verkið, og
voru þijú þeirra undir kostnaðar-
áætlun. Hæsta tilboðið hljóðaði upp
á 18,3 milljónir kr., en kostnaðar-
áætíun var 15,2 milljónir.
Guðrún Helgadóttir, rithöfundur
Fundur FEF
í kvöld:
Vilja einstæð-
ir foreldrar
vera einir?
„Vijja einstæðir foreldrar vera
einir“ er viðfangsefniefni al-
menns fundar Félags einstæðra
foreldra I Skeljanesi 6 í kvöid,
þriðjudag 29.september. Fundur-
inn hefst kl 9. Guðrún Helgadótt-
ir, rithöfundur, flytur erindi þar
sem hún veltir málinu fyrir sér.
Að erindi Guðrúnar loknu verða
umræður um efnið, og settir verða
á laggimar umræðuhópar, sem ósk-
að er eftir að skili ályktunum á
aðalfundi FEF eftir rúman mánuð.
Félagsmönnum er velkomið að
taka með sér gesti og nýir félagar
eru velkomnir, segir í fréttatilkynn-
ingu. Næsti fundur verður svo um
miðjan október og þá tekið fyrir
„Fjölskyldan og fjölmiðlar." Minnt
er á að menn komi stundvíslega á
fundinn í kvöld.
Sanítas
sPöðMgsókv