Morgunblaðið - 29.09.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
33
Bæjarstjórn Akureyrar:
Efnt til samkeppni um mótun
Ráðhústorgs og Skátagils
Verðlaunafé allt að 900.000 kr.
Súlnafell ÞH 361 i Slippstöð Akureyrar í gær. Skipið kemur til heima-
hafnar, Þórshafnar, fyrir næstu helgi.
Skjöldur SI til Þórshafnar:
Breytingarnar á
Stakfellinu gerðu
kaupin möguleg
AKUREYRARBÆR efnir nú til
samkeppni um skipulag og mót-
un Ráðhústorgs og Skátagils.
Skilafrestur tillagna er til 26.
nóvember nk.
Tilgangur samkeppninnar er að
fá fram hugmyndir um mótun og
frágang svæðisins í samræmi við
það hlutverk, sem því er ætlað í
skipulagi bæjarins. Samkeppnis-
formið hefur verið valið vegna þess
hve mikilvægt er talið að leita eftir
snjöllustu lausnum á verkefninu
með tilliti til þess að verið er að
skapa umgjörð fyrir mannlíf í hjarta
miðbæjarins og ákveða veigamikla
drætti í ásýnd Akureyrarbæjar,
segir í útboðslýsingu.
Heildarverðlaun í samkeppninni
eru allt að 900.000 krónum, þar
af verða fyrstu verðlaun ekki lægri
en 500.000 krónur. Að auki er dóm-
nefnd heimilt að veija 200.000
krónum til innkaupa á tillögum.
Formaður dómnefndar er Finnur
Birgisson skipulagsstjóri Akur-
eyrar, en aðrir tilnefndir af Akur-
eyrarbæ eru: Árni Steinar
Jóhannsson garðyrkjustjóri Akur-
eyrar og Tómas Ingi Olrich
menntaskólakennari. Þeir dóm-
nefndarmenn sem skipaðir hafa
verið af Arkitektafélagi Islands eru:
Björn Kristleifsson og Sigríður Sig-
þórsdóttir sem bæði eru arkitektar.
í lýsingu segir að sú mynd sem
miðbær Akureyrar hafi á sér í dag
eigi fyrst og fremst rætur að rekja
til skipulags sem samþykkt var
1927 eftir tillögu þáverandi skipu-
lagsnefndar ríkisins. Þar var
ákveðin lega og lögun Hafnarstræt-
is, Skipagötu og Ráðhústorgs,
kveðið á um hæð og gerð bygginga
á þessu svæði, kirkjunni valinn
staður o.s.frv. Þótt ýmislegt færi á
annan veg en ætlað var í skipulagn-
ingu, var stuðst við það í marga
áratugi og ekki ráðist í gerð nýs
heildarskipulags fýrir miðbæinn
fýrr en á áttunda áratugnum.
Nýtt miðbæjarskipulag, sem
samþykkt var og staðfest fyrrihluta
árs 1981, gerði m.a. ráð fyrir þeirri
nýjung að Hafnarstræti norðan
Kaupvangsstrætis og Ráðhústorg
skyldu gerð að göngugötu eða
göngusvæði með mjög takmarkaðri
bifreiðaumferð. Fljótlega var ráðist
í að breyta Hafnarstræti í göngu-
götu norður að Ráðhústorgi.
Haraldur V. Haraldsson arkitekt
annaðist hönnun götunnar í sam-
ráði við skipulagsnefnd bæjarins og
var framkvæmdum lokið haustið
1983 og gatan þar með komin í
núverandi mynd.
Á fundi þann 21. apríl sl. ákvað
bæjarstjórn Akureyrar að viðhafa
samkeppni um næsta áfanga breyt-
ingarinnar, þ.e. mótun Ráðhústorgs
og Skátagils, en það opnast út í
Hafnarstræti og um það liggur
mikilvæg gönguleið, sem tengist
miðbæjarsvæðinu.
SKJÖLDUR SI 101 frá Siglu-
firði, sem nú hefur hlotið nafnið
Súlnafell ÞH 361, verður af-
hentur nýjum eigendum sinum á
mánudag. Útgerðarfélag Norð-
ur-Þingeyinga keypti skipið af
ísafold hf. frá Siglufirði á 125
milljónir króna. Nýju eigendurn-
ir yfirtaka eldri skuldir skipsins
sem nema um 90 milljónum
króna og mismunurinn er tekinn
út úr rekstri Stakfellsins, sem
einnig er í eigu útgerðarfélags-
ins og breytt var í frystiskip í
vor.
„Mikill styrr stóð út af breyting-
um Stakfellsins á sínum tíma á
Þórshöfn og menn ekki á eitt sáttir
um ágæti þeirra. Hinsvegar er nú
óhætt að segja að breytingamar á
Stakfellinu hafa gert kaupin á
Skildi SI möguleg. Frá því að Stak-
fellið hóf veiðar þann 7. júní sl. sem
frystiskip, er aflaverðmæti þess
orðið 83 milljónir króna sem er fylli-
lega aflaverðmæti ísfiskskips á
heilu ári,“ sagði Grétar Friðriksson
framkvæmdastjóri Útgerðarfélags
Norður-Þingeyinga í samtali við
Morgunblaðið.
Útgerðarfélag Norður-Þingey-
inga er I 52% eigu Kaupfélags
Langnesinga, 23% eigu Þórshafnar-
hrepps, 23% eigu Hraðfrystistöðvar
Þórshafnar og 2% eigu Svalbarðs-
og Sauðaneshreppa. Súlnafell hefur
undanfarna daga verið í Slippstöð
Akureyrar þar sem verið er að
mála það og lagfæra. Búist er við
að það verði komið til heimahafnar
um næstu helgi. Skipið er 232 tonna
stálskip, byggt í Noregi árið 1964,
en endurbyggt á Siglufírði 1984.
Það hefur 1.300 tonna kvóta og er
skipinu ætlað að afla hráefnis fyrir
hraðfrystistöð Þórshafnar og Fisk-
iðju Raufarhafnar á meðan Stakfell
verður alfarið rekið sem frystiskip.
„Næg atvinna hefur verið á Þórs-
höfn í sumar þrátt fyrir að Stak-
fellið hafi verið gert að frystitogara,
en nú held ég að allir hljóti að sjá
að sú ákvörðun átti fullan rétt á
sér,“ sagði Grétar að lokum.
Séð yfir Ráðhústorg og Skátagil er gilið, sem liggur efst i vinstra
horni myndarinnar.
Fjöltefli Jóhanns Hjartarsonar:
8 ára Akureyringnr
gerðijafntefli
JÓHANN Hjartarson stórmeist- þá tefld 11. umferð. Á sama tíma
ari tefldi fjöltefli á Akureyri sl. á morgun fer 12. umferð fram og
laugardag og tóku 29 manns lokaumferðin verður tefld á föstu-
þátt i því. Jóhann vann 25 þeirra dag og hefst hún kl. 13.00. Um
og gerði fjögur jafntefli við þá kvöldið verða mótsslit og verð-
Kára Elisson, Gylfa ÞórhaUsson, launaafhending. Frídagur er hjá
Boga Pálsson og 8 ára gamlan keppendum á fímmtudag, en þá
Akureyring Hafþór Einarsson. um kvöldið kl. 20.00 verður efnt
Skákþingi íslands verður fram til hraðskákmóts, sem er öllum
haldið í dag kl. 17.00 og verður opið.
NÝTT OG BETRA
SÚLNABERG
Fjölbreytt úrval heitra og
kaldra rétta
Opið frá kl. 8.00-20.00
alla daga
Hótel KEA