Morgunblaðið - 29.09.1987, Page 43
AUK M. 9.197/SlA
T
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
43
Morgunblaðið/Bjami
Verðlaunahafarnir í samkeppni Marska um besta sjávarréttinn. Til vinsti er Michael Jón Clarke sem
hlaut 3. verðlaun, Margrét Þórðardóttir, sem hlaut 1. verðlaun, er í miðið en til hægri er Hrafnhildur
Sigurðardóttir sem hlaut 2. verðlaun.
Samkeppni um besta sjávarréttinn á vegum Marska:
Notaðu FIPiALOÍf
og fitan ferljjggfc
Fæst í apótekinu
Vaxtarræktin - Nóatún 17 - Sími 19900
Sigurvegarinn átti 3 af 10
sjávarréttum í úrslitum
Á ANNAÐ hundrað uppskriftir
bárust í samkeppni um sjávar-
rétti sem Marska á Skagaströnd
efndi til í samvinnu við DV. Þeg-
ar dómnefnd hafði borið saman
bækur sinar og bragðlauka var
niðurstaðan sú að Margrét Þórð-
ardóttir hreppti fyrstu verðlaun-
in fyrir réttinn: „Innbakaðar
fiskkökur sækonungsins1*. Alls
hlutu 10 réttir verðlaun og
Margrét átti einnig tvo af þeim
réttum sem lentu í 4-10. sæti.
Dómnefndin í samkeppninni var
skipuð Onnu Bjarnason blaða-
manni, dr. Einari Matthíassyni
matvælaefnaverkfræðingi, Hilmari
B. Jónssyni ritstjóra, Úlfari Ey-
steinssyni veitingamanni og Stein-
dóri R: Haraldssyni framleiðslu-
stjóra hjá Marska.
Margét Þórðardóttir hlaut fyrstu
verðlaun eins og áður sagði en hún
fékk einnig 4.-10. verðlaun fyrir
rétti sína „Skjól í hörpuskel" og
„Pönnukökur Júpíters". Önnur
verðlaun hlaut Hrafnhildur Sigurð-
ardóttir fyrir kalda rækjusúpu og
þriðju verðlaun hlaut Michael Jón
Clarke fyrir „Sjávarperlur". Þeir
sem hlutu 4.-10 verðlaun auk
Margrétar voru Sigurlína Jónsdótt-
ir, eiginkona Michaels, fyrir
„Expres umslög", Margrét K. Þór-
hallsdóttir fyrir „Sá einfaldi",
Jóhanna A.H. Jóhannsdóttir fyrir
„Góðan sjávarrétt“, Rannveig Þórð-
ardóttir fyrir „Fylltar bitabollur“,
og Þórir S. Helgason fyrir „Hörpu-
disk og rækjur fyrir §óra“. Höfund-
ar uppskrifta skiluðu þeim inn undir
dulnefni.
Margrét Þórðardóttir er ekki
óvön viðurkenningum fyrir mat-
reiðslu þótt hún hafí að eigin sögn
aldrei lært þá list, utan að hafa
tekið tvö námskeið í barnaskóla.
Margrét sagðist í samtali við Morg-
unblaðið hafa gaman af að breyta
til við matreiðslu og hún sagðist
hafa prófað sig áfram með þá rétti
sem hún sendi í keppnina, með því
að búa þá til nokkrum sinnum.
Margrét starfar sem skrifstofu-
maður í hálfu starfi hjá Vita og
hafnarmálastofnun og sækir nú
tölvunámskeið á kvöldin. Hún sagð-
ist því ekki hafa mikinn tíma til
matreiðsluiðkunar dags daglega en
notaði helgamar til þess.
Marska var stofnað árið 1986
og hefur síðan framleitt sjávarrétti
svo sem Sjávarréttaböku og Rækj-
urúllur. Alls framleiðir verksmiðan
nú fimm sjávarrétti og er verið að
undirbúa framleiðslu á ýsu og
rækjurúllum til útflutnings. Sam-
keppnin um besta sjávarréttinn, en
svo var samkeppnin kölluð, var að
sögn Heimis L. Fjeldsted fram-
kvæmdastjóra Marska, liður í þróun
nýrra rétta en hugsanlegt er að
verðlaunaréttimir verði frámleiddir
hjá verksmiðjunni.
GOLFEFNI
K R I
N G L U N