Morgunblaðið - 29.09.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
45
Úr egypsku myndinni, Hinn sjötti dagur.
HINN S JÖTTI
DAGUR
Hinn sjötti dagur (Le Sixiéme
Jour). Frakkland/Egyptaland,
1986. Leiksljóri: Youssef Cha-
hine sem einnig gerði handritið
eftir sögu Andrée Chedid.
Framleiðandi: Misr Internation-
al Films/Lyric International.
Kvikmyndataka: Mohsen Nasr.
Aðalhlutverk: Dalida, Mohsen
Mohieddine og Maher Ibrahim.
Fulltrúi Egyptalands á kvik-
myndahátíðinni í ár er tragí-
kómíska myndin Hinn sjötti dagur
(Le Sixiéme Jour), vægast sagt
undarleg samsuða af harmi og
gamni, dansi og söng, langdregin
vissulega og stefnulaus í meira
lagi en samt athyglisverð mynd.
Nafnið vísar til þess að eftir sex
daga frá því sjúklingur veikist í
kólerufaraldri mun ljóst hvort hann
lifír veikina af eða verður henni
að bráð. Sannarlega ekki huggu-
legt sögusvið en það sem kemur á
óvart þegar líða tekur á myndina
er að hún fjallar alls ekki um kól-
erufaraldur og hörmungarnar af
hans völdum. Það er aðeins bak-
grunnur að heldur flflalegum
eltingaleik alvörulauss grallara við
sér eldri konu.
Það er tvennt sem persónur
myndarinnar hata meira en annað
og það eru Bretar og Kóleran.
Myndin á að gerast árið 1947 þeg-
ar Bretar voru enn með herlið í
Egyptalandi og kólerufaraldur
gengur yflr landið. Aðalpersónum-
ar eru lítill drengur sem veikist
af kóleru, amma hans, sem reynir
að koma honum undan nk. kóleru-
lögreglu til Alexandríu (fólki er
veitt verðlaun fyrir að segja til
kólerusjúklinga sem fluttir eru
burtu), afi hans sem liggur lamað-
ur í rúminu og grallarinn sem
verður yfir sig ástfanginn af ömm-
unni og eltir hana hvert sem hún
fer í heldur vonlausri baráttu til
að vinna hug hennar og hjarta.
Leikstjóri myndarinnar, Youssef
Chahine, fæddist í Alexandríu,
gekk í enskan skóla og hélt síðan
til Bandaríkjanna að læra leiklist
og kvikmyndagerð. Hann er greini-
lega mjög hrifinn af bíómyndum,
kvikmyndahús gegnir miklu hlut-
verki í fátækrahverfinu sem
myndin gerist að nokkru í, fræg
kvikmyndaleikkona býr í hverfinu,
sterk og mikilúðleg aðalkvenpers-
ónan, sem söng- og leikkonan
Dalida leikur, fer í bíó og grætur
undir egypskum rómans.
Chahine virðist líka hrifinn af
söngleikjaforminu ameríska og
Gene Kelly því hann lætur sig ekki
muna um að setja tvö söng- og
dansatriði í myndina sína, sem erf-
itt er að sjá að eigi heima í henni.
Á svipstundu er leiksviðið, en
myndin er að miklu leyti tekin í
kvikmyndaveri, orðið skrautlega
upplýst dansstúdíó þar sem grall-
arinn hermir nokkur amerísk
dansatriði (m.a. Singing in the
Rain).
Chahine, sem er einn af kunn-
ustu kvikmyndaleikstjórum
Egyptalands, virðist blanda saman
tveimur hefðum í egypskri kvik-
myndagerð, þjóðfélagsraunsæi og
léttu söngleikjaforminu. Það er
erfltt að sjá annað en að það
skemmi hvort fyrir öðru i þessu
tilviki. Dalida er aftur frábær, svip-
mikil og mögnuð leikkona, sem
ekki er líklegt að táraðist í bíó.
Sigurður Tyrfingsson annar eigandi Knattborðsstofunnar sf.
Knattborðsstofa í Skipholti
NÝ billjard-stofa hefur verið
opnuð í Skipholti 50b i Reykjavík
og ber hún heitið Knattborðsstof-
an sf.
Eigendur Knattborðsstofunnar
sf. eru Sigurður Tyrfíngsson og Jón
Ingi Hákonarson. Auður A. Olsen
innanhússarkitekt hannaði stofuna.
Knattborðsstofan er opin alla
virka daga kl. 09.00-23.30 og um
helgar kl. 11.00-23.30.
Vilja esperanto í skólana
ÁTTUNDA landsþing Islenskra
esperantosambandsins var hald-
ið á Hótel Sögu dagana 5.-6.
september mánaðar. Þar var
meðal annars skorað á mennta-
málaráðuneytið að kanna
möguleika á því að kynning á
esperanto verði fastur þáttur I
kennslu á skyldunámsstigi.
Hundrað ár eru liðin frá birtingu
alþjóðamálsins esperanto.
Þingið hófst með tónleikum, þar
sem Sigrún Eðvaldsdóttir lék á fíðlu
við undirleik Selmu Guðmundsdótt-
ur. Síðan flutti gestur þingsins,
breski málfræðingurinn dr. John
C. Wells, erindi á esperanto um
hundrað ára afmæli alþjóðamálsins.
Hann er einn kunnasti esperanto-
fræðingur á okkar dögum og utan
esperantohreyfingarinnar þekktur
fyrir rannsóknir sínar á enskum
framburði og rit um þau efni. Að
loknu þinginu flutti hann erindi í
boði Heimspekideildar Háskólans,
mánudaginn 7. þessa mánaðar, um
ókosti enskrar tungu sem alþjóða-
máls.
I erindi sínu á landsþinginu ræddi
dr. John C. Wells um árangur, sigra
og ósigra esperantohreyfíngarinn-
ar. Hann sagði að á ráðstefnu
tölvufræðinga í Edenborg nú fyrir
skömmu hefði komið fram að við
rannsóknir á tungumálum til að
nota við tölvuþýðingar úr einu máli
á annað hefði esperanto reynst
heppilegast mála sökum þess hve
það er reglulegt og rökrétt.
Þá flutti Ami Böðvarsson stutt
erindi um tungumálamisrétti og
benti meðal annars á að tveir aðilar
við samningaborð eða í kappræðum
njóta ekki sama réttar ef annar fær
að nota móðurmál sitt en hinn verð-
ur að tala erlent mál.
Einnig var sagt frá alþjóðaþingi
esperantista sem haldið var í Var-
sjá í Póllandi nú í sumar, en þátttak-
endur þar voru um 6000 hvaðanæva
úr heiminum, í fyrsta skipti all-
margir úr Afríku. Loks var ýmislegt
til skemmtunar, meðal annars
fluttu nokkrir ungir esperantistar
leikþátt.
Á þinginu fóru einnig fram aðal-
fundarstörf, rætt var um námskeið,
bókaútgáfu og annað í starfsemi
Islenska esperantosambandsins
næstu tvö árin. Formaður sam-
bandsins til næstu tveggja ára var
kjörinn Hallgrímur Sæmundsson,
en aðrir í stjórn eru Árni Böðvars-
son ritari, Jón Bragi Björgvinsson
gjaldkeri, Jón Hafsteinn Jónsson,
Loftur Melberg, Steinunn Sigurðar-
dóttir og Þórarinn Magnússon.
PRÓFESSOR Rögnvaldur Hann-
esson flytur opinberan fyrirlest-
ur á vegum viðskiptadeildar
Háskóla Islands. Fyrirlesturinn
fer fram í Odda, stofu 101,
fimmtudaginn 1. október og
hefst kl. 17.15. Fyrirlesturinn
nefnist Stjórnun fiskveiða: mark-
mið og leiðir.
Prófessor Rögnvaldur Hannes-
son stundaði framhaldsnám í físki-
hagfræði við Háskólann í Lundi,
Svíþjóð, og Háskólinn í Bresku
Kólumbíu í Kanada. Doktorsprófí
lauk hann frá Lundi árið 1974. Að
námi loknu hefur Rögnvaldur gegnt
stöðum háskólakennara við Háskól-
Loks var samþykkt ályktun sem
segir að sambandið mælist til þess
við menntamálaráðuneytið að það
taki til íhugunar möguleika á því
að kynna esperanto eftir föngum í
skólum, og verði slík kynning fastur
þáttur í kennslu á skyldunámsstigi.
Einnig kemur þar fram að Islenska
esperantosambandið sé reiðubúið til
samvinnu um slíka kynningu, til
dæmis með gerð kynningamáms-
efnis sem gæti tengst samfélags-
fræði.
Oll fundarstörf, umræður og fyr-
irlestrar fóru fram á esperanto. Um
þessar mundir eru að hefjast nokk-
ur námsTceið í málinu, bæði fyrir
byrjendur og framhaldsnemendur.
ana í Trömsö, Bergen og Verslunar-
háskólanum í Bergen. Frá 1983
hefur hann verið prófessor í fiski-
hagfræði við Verslunarháskólann í
Bergen.
Rögnvaldur hefur gefíð út tvær
bækur, doktorsritgerðina „Ec-
onomics of Fisheries: Some Probl-
ems in Effíciency", sem út kom
1974 og kennslubókina „Economics
of Fisheries: An Introduction", sem
kom út 1978.
í fyrirlestrinum í Odda fjallar
Rögnvaldur um markmið fískveiði-
stjómunar og þær aðferðir við
fiskveiðistjóm sem líklegastar em
til að ná þeim markmiðum.
Fyrirlestur um
markmið o g leiðir
í fiskveiðistjómun
Takið eftir!
Skráning í bókina „íslensk fyrirtæki 1988" stendur
nú yfir. í henni er að finna helstu upplýsingar um
starfandi fyrirtæki alls staðar á landinu.
Ert þú búin(n) að senda okkur nýjar og breyttar
upplýsingar um fyrirtæki þitt?
íslensk fyrirtæki - ómissandi uppsláttarrit í 17 ár.
íslensk
fyrirtæki
1988
ÍSICNSH
..míðTííKl
4
íslenskfyrirtæki 1986
Frjálstframtak
íslensk fyrirtæki, Ármúla 18, 108 Reykjavík. Sími (91) 82300