Morgunblaðið - 29.09.1987, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
55
Tillaga um endurnýjun í Alþýðu-
bandalaginu:
Þingmenn sitji aðeins
3 kjörtímabil í senn
DRÖG að tillögu um endumýjunarreglu þingmanna og sveitarstjóm-
armanna Alþýðubandalagsins vora lögð fram á miðstjómarfundi
flokksins um helgina. Þar var gert ráð fyrir að þingmenn og sveitar-
stjóraarmenn geti aðeins setið þijú heil kjörtímabil eða 12 ár í einu
fyrir flokkinn. Ef þessi regla verður samþykkt á næsta landsfundi
gæti það þýtt að aðeins tveir þingmenn Alþýðubandalagsins hefðu
kjörgengi fyrir flokkinn í næstu Alþingiskosningum.
Kristín A Ólafsdóttir formaður mið- hluti í nýju ljósi út frá mjög miklum
stjómar Alþýðubandalagsins sagði
að langt væri síðan byijað var að
ræða um endumýjunarreglu á
framboðslistum flokksins fyrir Al-
þingis- og sveitarstjómarkosningr
og í raun hefði henni verið hreyft
á síðasta landsfundi. Um þetta
væm skiptar skoðanir en sú hug-
mynd nyti samt mikils stuðnings
sama endumýjunarregla, sem gildir
um aðrar trúnaðarstöður flokksins
nái til alþingsmanna og sveitar-
stjómarmanna. Kristín sagði síðan
að þótt þessi regla yrði samþykkt
á næsta landsfundi væri hægt að
hugsa sér einhvem aðlögunartíma
þar til hún kæmi til endanlegrar
framkvæmdar en tilvonandi flutn-
ingsmenn tillögunnar myndu skoða
það.
Kristín sagði þennan miðstjóm-
arfund hafa verið undirbúningsfund
fyrir landsfundinn. Þar hefði aðal-
lega verið rætt um efnahags og
atvinnumál, og umræður verið frjó-
ar, opnar og leitandi. „Fólk finnur
að það er þörf á að skoða ýmsa
breytingum í atvinnumáium, td. í
sjávarútvegi. Þama var einnig rætt
mjög leitandi um eignarform á at-
vinnufyrirtækjum og hvemig
lýðræði helst tryggt ma. í atvinnu-
lífínu," sagði Kristín. Hún sagði
síðan að á grundvelli þessara um-
ræðna og skýrslu efíiahags- og
atvinnumálanefndar, sem skipuð
var á síðasta landsfundi, yrðu unn-
in drög að ályktunum fyrir lands-
fundinn.
Kristín sagði formannskjörið í
flokknum ekki hafa verið á dagskrá
fundarins þótt hún efaðist ekki um
að það hefur verið á dagskrá í
umræðum á göngum og auðvitað
ríkti mikil spenna þegar slíkt væri
í aðsigi. „Ég vona þó að formanns-
kjörið verði ekki til að yfírskyggja
það pólítíska starf sem þarf að
vinna á næsta landsfundi því það
er mjög mikilvægt að ákveðin end-
umýjun á pólítískum lausnum
Alþýðubandalagsins eigi sér stað,“
sagði Kristín A Ólafsdóttir.
Iðntæknistofnun:
Námskeið um örygg’-
ismál á vinnustöðum
Grunnnámskeið um öryggismál á vinnustöðum verður hald-
ið á vegum Vinnueftirlits ríkisins og Iðntœknistofnunar í
samvinnu við Danska vinnuumhverfissjóðinn dagana 30. sept-
ember og 1. október nk. Námskeiðið er ætlað stjórnendum,
öryggisfulltrúum, verkstjórum og þeim sem annast innkaup
og skipulagningu hjá fyrirtækjum og stofnunum.
Markmið námskeiðsins er að Kennsla á námskeiðinu stendur
auka fæmi þátttakenda til að í tvo daga, en þriðja daginn, 2.
tryggja öryggi og góðan aðbúnað
á vinnustað. Viðfangsefni nám-
skeiðsins em m.a. skipulagning
öryggismála, áhrif vinnuumhverfís
á heilsu og líðan, hönnun vinnuað-
stöðu, loftræsting og hitastig,
tæknileg hjálpargögn og greining á
orsökum slysa.
október, verða heimsóknir á vinnu-
staði sem þátttakendur ráða hvort
þeir notfæra sér. Kennt verður í
húsi Iðntæknistofnunar að Keldna-
holti, þar sem allar nánari upplýs-
ingar fást.
(Úr fréttatilkynningu)
SÉRVERSLUN MEÐ BORÐBÚNAÐ í 29 ÁR
Metsölublaó á hverjum degi!
HRINGFERÐ UM LANDIÐ
VOLVO FLiO 6X4 SÝIMIIMGARBÍLL
Volvo FL 10 6x4 leggur upp í hringferö um landið
í dag. Fullbúinn sýningarbíll meö palli og
sturtum, svefnhúsi, 299 ha. túrbínuvél og milli-
kæli (intercooler). Komiö, skoöiö og reynsluakið.
Volvo Pento og Hiob
Sölumenn Volvo Penta bátavéla og Hiab
skipakrana veröa meö í förinni. Notiö tækifæriö
og leitið upplýsinga um verö, gæöi og nýjungar.
Nánar auglýst daglega í
ríkisútvarpinu Rás 1 og 2.
Bílasími 985-25241
SKEIFUNNI 15,
SlMI: 91-691600 691610