Morgunblaðið - 08.11.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐj SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1987
45
þessa stórkostlegu Alpamynd sem
nefnist „Dent de Midi". í Sviss mál-
aði hann líka andlitsmyndina af
eðlisfræðingnum Auguste Forel,
sem sýnir vald listamannsins á sál-
fræðilegum mannamyndum. Þá var
komið að Berlín. O.K. - eins og hann
var jafnan kallaður þegar hér var
komið - komst
í innsta hring þeirra sem gáfu út
framúrstefnutímaritið „Der Sturm“.
í Berlín málaði hann myndimar
„Flóttinn til Egyptalands", „Kross-
festingin" og „Uppgötvun".
Eftir heimkomuna til Vínarborgar
árið 1911 hitti Kokoschka fljótlega
ástina sina miklu í liflnu, Ölmu
Mahler. Sama ár hafði hún misst
sinn fræga eiginmann, Gustav
Mahler. Alma var ástríðufull og fög-
ur kona, sem margir karlmenn féllu
fyrir. Fyrsta leynda ástin hennar -
áður en hún hitti Gustav Mahler -
var Gustav Klimt. Seinna giftist hún
arkitektinum Walter Gropiusi og þar
á eftir skáldinu Franz Werfel. Sam-
band O.K. og Ölmu varð að sam-
felldum árekstrum sem að lokum
leiddu til algers skilnaðar. En á hát-
indi þessa ástaræfintýris málaði
Kokoschka sitt frægasta verk,
„Stormbrúðurin". Það er 180x220
sentimetrar að ummáli og er nú i
Basel. Svisslendingar eru svo stoltir
af þessu verki að þeir hafa aldrei
fengist til að lána það úr landi til
sýningar. Það sýnir elskendur í báti,
sem öldumar bera að himneskri sjáv-
arströnd, en í raun er báturinn þegar
brotinn. Ólmar öldumar túlka storm-
asama ást þeima tveggja, en um
leið „skipstapann" sem þau kunna
himnamir opnuðust og vatnselgur-
inn svall og hann var eins og Nói í
flóðinu."
Eins og Nói lifði hann áfallið af.
Þrátt fyrir það barst sá orðrómur
um Vínarborg að hann væri fallinn.
Alma var enn með lykilinn að vinnu-
stofunni hans og lét ekki á sér standa
að hreinsa allt út úr henni. Seinna
sakaði Kokoschka hana um að hafa
látið unga listamenn úr vinahópi
hennar ljúka við hálfkláraðar teikn-
ingar og málverk og verk af því
tagi komu fram á listaverkamarkað-
inum. Alma Mahler-Werfel neitaði
snarlega og alfarið áburði síns fyrra
elskhuga, og reyndi að afhjúpa hann
í útgefnum endurminningum sínum.
Þannig lauk þessari miklu ást.
Kokoschka vildi helst gleyma.
Hann ferðaðist í eirðarleysi um
heiminn eins og Pétur Gautur. Af-
rakstur þessara ára eru stórkostleg-
ar myndir af borgum og landslagi í
Norður Afríku og Miðausturlöndum.
1931 dró hann sig í hlé í litla húsinu
sínu í Liebhartstal. Óveðursský
hrönnuðust á hinn pólitíska himin.
Þá hélt Kokoschka til Prag, þar sem
hann hitti Oldu Palkovsku, gáfaða,
glæsilega og fallega konu, sem varð
trúfastur förunautur hans til æfí-
loka. í fallega húsinu sínu í Ville-
neuve við Genfervatn gætir hún enn
þann dag í dag arfsins, sem eigin-
maður hennar lét eftir sig.
Hjónunum tókst að ná síðustu
flugvélinni til London áður en þýski
herinn marseraði inn í Prag. Nú
hófust erfíð ár í útlegð. Til að hafa
ofan í þau bakaði Olda, eldaði og
seldi tékkneska sérrétti. Árið 1947
KRISTUR HJÁLPAR HUNGRUÐU BÖRNUNUM. SVARTLIST-
ARMYND FRÁ 1945-46.
að siá fyrir. O.K. ferðaðist með Ölmu
til Italíu, þar sem hann dró upp
margar mjmdir af Dolomitafjöllun-
um og málaði myndina „Tre Croci".
Kynni hans af verkum Tintorettos
gaf sköpunargáfu listamannsins nýj-
an drifkraft og nýtt sjónarhom.
Varð þessi óhamingjasama ást
hans eða einfaldlega hvatir þessa
Péturs Gauts listanna sem rak hann
til að gerast sjálfboðaliði í stríðinu
1915? Ekki leið á löngu þar til hann
særðist í Galiciu, og var fluttur nær
dauða en lífi af vígstöðvunum. Á
þeim tíma skrifaði Paul Westheim,
vinur hans frá Berlínardögunum:„
Þama lá hann vafínn skyndiumbúð-
um, á leið af vígstöðvunum í opnum
jámbrautarvagni sem skrölti yfir
landið, með ekkert ofan á sér annað
en himininn, alsettan skýjum á dag-
inn og stjömum á nóttinni, aleinn
með sjálfum sér, með þessu sem
nefnist líf og með honum sem gefur
lff. Bókin opin, eins og á dómsdegi
þegar hver dáð er fram dregin til
að verða metin. Skýin hrönnuðust,
varð Kokoschka breskur ríkisborg-
ari, en hann gleymdi aldrei upprana
sínum f Austurríki. Árið 1949 sneri
hann aftur til Vínarborgar, stofnaði
„Schule des Sehens" (Skóla fyrir
sjáendur) í Salzburg, og tók aftur
upp austurrískan ríkisborgararétt.
Áður en Vínaróperan var opnuð aft-
ur, málaði hann þetta nýuppgerða
stórkostlega Óperahús, og gerði
leiktjöldin fyrir sýningu á Töfra-
flautu Mozarts fyrir Listahátíðina í
Salzburg.
Oskar Kokoschka lést 22. febrúar
1980, 94 ára að aldri. En gegnum
verk sín horfir hann enn á okkur
og sér djúpt inn í okkur - með viður-
kenningu, hvatningu, áminningu, en
líka, f þessum andans þurrki, með
vonarboða...
(Samantekt úr grein sem birtist í
nýútkomnu myndskreyttu bindi
af „The Artists of classical Mod-
emism in Austria". - E.Pá.)
NÝJASTI
FJÖLSKYLDU-
MEÐLIMURINN!
40 ára reynslá
á íslandi
d0g
Sogkrafturinn
stillanlegur, allt
að 1200 W, eða
alsjálfvirkur
B08
Allir fylgi-
hlutir í vélinni
sps
Tengjanleg við
teppahreinsara
dC»
Lág bilanatíðni,
ótrúleg ending
HOLLAND ELECTRO
SÖLUAÐILAR:
Hafnarfjörður: Rafha - Kaupf. Hafnf
Kópavogur: Rafbúðin, Auðbrekku
Reykjavik: BV-búsáhöld, Hólagarði -
Kaupstaður I Mjódd - Gos hf„ Nethyl -
Rafvörur, Langholtsvegi 130 - Ljós & orka
- Búsáhöld & gjafavörur, Kringlunni -
JL-húsið hf. - Rafbraut, Bolholti 4
Mossfellsbær: Mosraf
Akranes: Trésmiðjan Akur
Borgarnes: Kaupf. Borgfirðinga
Ólafsvik: Versl. Vik
Stykkishólmur: Húsið
Búöardalur: Kaupf. Hvammsfjarðar
Patreksfjöröur: Kaupf. V-Barðstrendinga
Bolungarvik: Versl. Einars Guðfinnssonar
isafjörður: Vinnuver
Hólmavik: Kaupf. Steingrímsfjarðar
Borðeyri: Kaupf. Hrútfirðinga
Hvammstangi: Kaupf. V-Húnvetninga
Blönduós: Kaupf. Húnvetninga
Sauðárkrókur: Kaupf. Skagfirðinga
Ólafsfjörður: Vers. Valberg
Akureyri: Kaupf. Eyfirðinga, Raftækni, Rafland
Húsavik: Kaupf. Þingeyinga
Kópasker: Kaupf. N-Þingeyinga
Raufarhöfn: Kaupf. N-Þingeyinga
Þórshöfn: Kaupf. Langnesinga
Vopnafjöróur: Kaupf. Vopnfirðinga
Neskaupstaður: Kaupf. Fram
Eskifjörður Pöntunarfélag Eskifirðinga
Egllsstaðir Kaupf. Héraðsbúa
Seyðisfjörður: Kaupf. Héraðsbúa
Reyðarfjörður: Kaupf. Héraðsbúa
Fáskrúösfjörður Kaupf. Fáskrúðsfirðinga
Höfn: Kaupf. A-Skaftfellinga
Kirkjubæjarklaustur: Kaupf. Skaftfellinga
Vlk i Mýrdal: Kaupf. Skaftfellinga
Vestmannaeyjar: Kjarni
Hvolsvöllun Kaupf. Rangæinga
Rauðalækur: Kaupf Rangæinga
Hella: Kaupf. Þór
Þykkvibær: Versl. Friöriks Friðrikssonar
Flúðir: Versl. Grund
Selfoss: Kaupf. Arnesinga
Hveragerði: Bygg.v.versl. Hveragerðis
Njarðvik: Kaupf. Suöurnesja, Samkaup
Keflavik: Versl. Stapafell
Flísar Flísar Flísar Flísar Flísar Flísar Flísar Flísar
Glæsilegar flísar á gólf og veggi
Dúkalandi við Grensásveg
fæst ótrúlegt úrval forkunnar fallegra flísa á gólf og
veggi. I eldhúsið, á baðherbergið, í stofuna
"Hjá okkurná
gæðin í gegn"
og á ganginn. Flísar í mörgum
stærðum, gerðum og litum
á ótrúlega góðu verð.
Dúkaland
Grensásvegi 13
sími 91-83577 og 91-83430
Við styðjum
Ólympíunefnd
íslands