Morgunblaðið - 22.11.1987, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
„Hugmyndir um þróun
ffllaiKframa...“
Spjallað við sr.
Heimi Steinsson
framkvæmda-
stjóra Þingvalla-
nefndar og
landslagsarki-
tektana Einar E.
Sæmundsen og
Reyni Vilhjálms-
son um drög að
skipulagi í þjóð-
garðinum á
Þingvöllum
-
Morgunblaðið/Ól.K.Mag.
Horft yfir Vellina. Mannfjöldinn fylgist með hátíðahöldunum 1974.
Morgunblaðíð/Ól.K.Mag.
Úr Almannagjá á 11 hundruð ára afmœlishátíðinm 1974.
Eins og kunnugt er fól
Þingvallanefnd
landslagsarkitektunum Reyni
Vilhjálmssjmi og Einari E.
Sæmundssen að gefa tillögur
um skipulag
Þingvallasvæðisins og skiluðu
þeir drögum að slíku skipulagi
ásamt greinargerð til
nefndarinnaríjanúar 1987.
au plögg voru síðan
endurskoðuð og lögð
fram að nýju í júlí í
sumar til kynningar
eftir að Þingvallanefnd
hafði yfirfarið þær og fallist á þær
fyrir sitt leyti.
Tillögumar voru auglýstar þá
og þess farið á leit að umsagnir
um þær og ábendingar bærust til
framkvæmdastjóra Þingvalla-
nefndar, sr. Heimis Steinssonar,
en skilafrestur rann út 1. nóvem-
ber síðastliðinn.
Nokkur blaðaskrif og umræður
á opinberum vettvangi hafa orðið
í tilefni draganna og til að forvitn-
ast nánar um viðbrögðin voru
höfundamir og framkvæmdastjór-
inn teknir tali.
í samtali við þá kom í ljós að
um 20 umsagnir og ábendingar
höfðu borist frá ýmsum aðilum,
sumar jákvæðar, aðrar neikvæðar,
þær fyrmefndu þó fleiri. Þess utan
hefðu nokkrir komið athugasemd-
um og ábendingum á framfæri
símleiðis og þær voru skrifaðar
niður.
Þess ber þó að geta að Náttúru-
vemdarráð, Ferðamálaráð og
þingflokkar höfðu ekki skilað end-
anlegu áliti þegar þetta er skrifað.
Gerð aðalskipulags fyrir þjóð-
garðinn á Þingvöllum hefur verið
til umræðu í Þingvallanefnd allt
frá því um 1980, en fjárveiting til
verkefnisins fékkst fyrst 1985.
Um leið var komið á samráði
nefndarinnar og skipulagsstjómar
ríkisins og þess utan hafa stofnan-
ir og ráð sýnt málefni Þingvalla
áhuga.
Stórbrotin náttúra og sagnhelgi
staðarins skipa Þingvöllum alveg
sérstakan sess í hugum íslend-
inga, reyndar svæðið allt og
Þingvallavatn meðtalið.
í inngangi greinargerðarinnar
sem fylgir þessum tillögum þeirra
landslagsarkitektanna gera þeir
ýtarlega grein fyrir aðdraganda
skipulagsvinnunnar og gildi henn-
ar og sfðan er stutt yfírlit jrfír
vinnutilhögun.
Næsta kafla, sem heitir For-
rannsóknir, er skipt í 20 liði. Fyrst
eru talin atriði sem gefínn var