Morgunblaðið - 22.11.1987, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
37
um fleiri tónlistarhátíðir og tónlist-
arkeppni, m.a. Þýskalandi haustið
1988 og í Kanada vorið 1989, þar
munu aðallega atvinnumannakórar
syngja. Það var auðheyrt að Þor-
gerður hefur hug á að þiggja það
boð.
Gekk helst baksundin
Þorgerður var spurð hvort verk-
efnavalið hefði breyst á síðustu
árum. „Já, við ráðum við viðameiri
og erfiðari verkefni nú en áður.
Eftir að framhaldskórinn kom til
held ég lengur í fólkið og það lærir
meira og nýtur meiri þjálfunar."
Þorgerður var innt eftir því hvort
hún teldi að nýliðamir, sem hún
fengi í Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð, þ.e.a.s. nemendakórinn,
væru tónlistarlega séð betur undir-
búnir, nú heldur en áður. Þorgerður
taldi að hærra hlutfall nemendanna
nú á dögum hefði notið einhverrar
tónlistarfræðslu. „Þetta þykir ekki
eins íjarstæðukennt eins og áður.
Þegar ég var bam og unglingur þá
fór maður í felur með fiðlukassann
og gekk helst baksundin til að vera
ekki barin niður af alls konar
hrekkjusvínum. Og þegar maður fór
á kóræfíngar dró maður hettuna
niður fýrir nef. Núna er þetta öðru
vísi, krakkamir geta komið með
fíðlu- eða sellókassann í skólann
og engum þykir það tiltökumál. Það
sem er líka öðmvísi hjá ungu fólki
í dag er að það hefur úr miklu
meiru að velja, framboðið er mun
meira, freistarinn er í miklu fleiri
gervum í dag en áður. Allar auglýs-
ingamar hrópa: Komdu hingað,
farðu þangað, gerðu þetta, gerðu
hitt. Þetta var ekki svona fyrir tutt-
ugu ámm. Það þarf sterk bein til
að gera eitthvað sem þarf að hafa
fyrir. Til að fá eitthvað út úr kór-
starfí þarf að leggja á sig gífurlega
mikla vinnu. En stefnan í dag er
að gera allt og hafa sem minnst
fyrir því. Þú færð það með því að
borga í peningum og skrúfa frá
tökkum. Það em ekki allir sem
skilja fullnægjuna og ánægjuna við
það að syngja eitt lítið lag og ljóð.
Krakkamir eyða kannski fleiri
klukkutímum í hverri viku í heilt
ár að syngja sama lagið, sem e.t.v.
tekur ekki nema tvær mínútur í
flutningi, en alltaf koma þau aftur,
í vondum veðmm, eiga eftir lexíum-
ar fyrir næsta dag og alls konar
skyldur og kvaðir kalla. En þau
koma og æfa og æfa.“
Galdur er ekki nóg
Nú velta margir fyrir sér þegar
þeir sjá og heyra kór og stjómanda
hans flytja fallegt verk, hve mikið
af þessu em góðar raddir, hve mik-
ið er þjálfun, hve mikið er stjóm
og tækni og hve mikið er hreinn
galdur? „Til að ná árangri þarf
þetta allt að koma til. Ögunin,
menntunin. Viljinn er mjög stórt
atriði, einnig það að geta gleymt
sjálfum sér. Og svo er það þessi
stóra spuming um galdurinn. Þú
getur ekki gert þetta bara með
galdri, en galdurinn þarf að vera
fyrir hendi og hann er þetta óskil-
greinanlega." Fulltrúi Morgun-
blaðsins spurði Þorgerði hvort það
myndi ekki tmfla galdurinn ef hún
væri t.d. að kvefast. „Ég reikna
með því, en það getur fleira komið
til, t.d. ef einhver annar er að fá
kvef eða er í vondu skapi, þá hefur
það áhrif á mig og ég hef áhrif á
aðra. Þetta er svo mikið samspil."
Má Morgunblaðið spyija, hvenær
heyrðir þú í Hamrahlíðarkómum
og vissir að þú værir með góðan
kór? „Það er ekki auðvelt að svara
þessu, ég veit ekki hvort mér fínnst
hann alltaf svo góður." „En fólk
sér það stundum að þú ert ánægð,
þú hefur náð einhveiju sem þú
stefndir að.“ „Það færi allt í vask-
inn ef kennarinn væri með stöðugan
óánægjusvip. Ég er alltaf að reyna
að bæta við og gera betur og allt
kórfólkið mitt með mér.“
Wollstone-
craft o g
Godwin
Erlendar bækur
Siglaugur Brynleifsson
Mary Wollstonecraft: A Short
Residence in Sweden, Norway
and Denmark and WilUam God-
win: Memoirs of the Author of
The Rights of Woman. Edited
with an Introduction and Notes by
Richard Holmes. Penguin Books
1987.
Mary Wollstonecraft er kunnust
fyrir bók sína „A Vindication of the
Rights of Woman", sem kom út
1792. Þessi bók vakti mikla at-
hygli og er eitt höfuðrit þeirra, sem
börðust fyrir og beijast fyrir kven-
réttindum. Höfundurinn var róttæk,
var altekin hugmyndafræðum
frönsku stjómarbyltingarinnar og
starfaði framan af sem bamfóstra
og einkakennari, stofnaði skóla og
fyllti flokk róttækustu höfunda,
sem þá voru í London, Paine, Blake,
Godwin. Hún var í París á stjómar-
byltingarárunum og kynntist þar
Gilbert Imley, Bandaríkjamanni og
eignaðist með honum barn. Þau
kynni urðu til þess að hún tókst á
hendur þá ferð til Norðurlanda, sem
hún lýsir í þessari bók sinni. Síðar
giftist hún William Godwin og
þeirra dóttir var Mary Shelley. Hún
lést 1797.
Gilbert Imley rak skipaútgerð á
þessum ámm í blóra við hafnbann
Englendinga. Skip hans fluttu
bannvömr frá Eystrasalti til Frakk-
lands og þaðan vömr norður. Eitt
þessara skipa hvarf, hlaðið dýmm
málmum. Imley sendi því Wolls-
tonecraft til Norðurlanda, til þess
að upplýsa skipshvarfið.
Bók hennar em 25 bréf skrifuð
á norðlægum slóðum, lýsingar á
kjömm manna og háttum og eink-
anlega náttúmlýsingar. Hvergi er
minnst á aðalerindið, enda var það
leyndarmál. Þessar lýsingar höf-
undar em mjög vel skrifaðar og
lýsandi. Þetta var einstakt ferðalag
að því leyti að kona skyldi takast
slíka ferð á hendur, alein og óstudd.
Þessi bók hefur ekki verið hingað
til talin til merkari ferðasagna, en
það er hún og ætti að verða sem
flestum kunn.
William Godwin var heimspek-
ingur og rithöfundur. Var mjög
róttækur og stóð í deilum um stjóm-
mál. Kunnusta rit hans er „An
Enquiry Conceming Political
Justice", 1793. í því boðar hann
stjómleysisstefnu sem er reist á
skynseminni. Sambúð þeirra Wolls-
tonecrafts var skammæ, en það
vom áður kunn hvort öðm. Það
varð honum mikið áfall, þegar kona
hans dó af bamsföram og hann
reisti henni verðugan bautastein
með þessum minningum um hana.
Bókin kom út 1798.
Godwin telur að „Wollstonecraft
hafí talið sig beijast fyrir því að
helmingur mannkjmsins öðlaðist
jafnrétti og nyti réttlætis. Hún
krafðist þess að konur yrðu leystar
undan því ánauðaroki, sem hefði
frá fyrstu tíð valdið því að þær
vom varla flokkaðar til manna og
oft taldar fremur til skepnanna,
vart skynsemi gæddar vemr ...
Konan var þræll karlmannsins,
kúgaðar af feðmm, eiginmönnum
og bræðmm og í lágstéttunum
álitnar hver annar búsmali, sálar-
lausar og réttlausar ...“
Godwin skrifar um að höfundur
the „Rights of Woman" hafí skrifað
bókina á sex vikum, þessvegna
megi margt fínna að uppbyggingu
og stíl ritsins, vegna tímaleysis, en
aftur á móti sé réttlætiskennd og
glöggskyggni höfundarins ótvíræð.
mivlIM STERKI TOWW
- fær stöðugt meiri hljómgrunn.
Ástæðurnar eru augljósar.
SPRED LATEX er ný
og endurbætt innan-
hússmálning meö
25% gljástigi en var
áður 15%.
SPRED LATEX er
vatnsþynnanleg akrýl-
málning, afar slitsterk
og auöveld í þrifum.
Þess vegna notar þú
hana þegar þú málar
eldhúsið, baöiö og
ganginn eða aðra fleti
sem mikiö mæöir á.
SPRED LATEX
'yWótUusi. oktylMUk bi iwHwðóf
Iö fttlMQdnMtowogtwðfHKW*#
SPRED LATEX fæst í
10 staðallitum en
litamöguleikarnir eru
margfalt fleiri.
- innan þinna veggja HARPA
lífinu lit.
AUKhl. 111.1t/SlA