Morgunblaðið - 22.11.1987, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
41
GRÖSIN GÓÐ
Bókmenntir
Erlendur Jónsson
ÁSTA GRASALÆKNIR. Atli
Magnússon skráði. 158 bls. Bóka-
útg. Örn og Örlygnr hf. 1987.
Margur er í þessari bók kvaddur
til vitnis um lækningamátt lyfjanna
hennar Ástu grasalæknis. Og allir
bera henni söguna á einn veg. Eft-
ir að aðra þraut úrræði var leitað
til Ástu. Hún kunni við hveiju ráð.
Og sjúkljngamir fengu bót meina
sinna. »Ég á Ástu mikið upp að
unna,« segir ung kona. »Ég hef svo
oft leitað til Ástu Erlingsdóttur og
það með svo góðum árangri að ég
get ekki efast um að hún ræður
yfír lyfjum og aðferðum, sem bjarga
algjörlega,« segir bóndi á Snæfells-
nesi. Aðrir vitnisburðir eru á sömu
lund. Og meðal þeirra, sem vitni
bera, er bæði hversdagsfólk og fyr-
irmenn.
Sjálf lætur Ásta lítið yfir sér.
Hún er hógværðin sjálf. »Hún hefur
kynnst gleðinni og sorginni í sínum
margvíslegustu myndum. En í frá-
sögn hennar sjálfrar verður það í
sjálfu sér allt gott. Það er hennar
lífsviðhorf.«
Ásta nam grasalækningar af föð-
ur sínum, Erlingi Filippussyni. En
grasalækningar eru reyndar æva-
fomar. Vísindalegar lyflækningar
byggjast að nokkra á grasalækn-
ingum svo munurinn er ekki eins
gagnger og menn kynnu að ætla.
Lyf og lauf era orð af sömu rót.
Fram kemur í bók Ástu að lækn-
ar veiti lækningum hennar þegjandi
samþykki þó þeir vísi ekki beint til
hennar. Þeir neita því ekki að í lyfj-
um hennar geti verið fólgin heilsu-
bót. Það væri líka fásinna að vísa
fortakslaust á bug reynslu kynslóð-
anna. Síst af öllu væri það vísinda-
legt!
Lækningar sínar tengir Ásta í
og með við dulræn áhrif. »Mér hef-
ur alltaf fundist sem vinveitt öfl
væra mér til aðstoðar og styrktar
og léttu undir með mér í þessari
viðleitni við að hjálpa öðram.«
Hvert sektin leiðir
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Tore Hamsun: Rhapsody in Blue
Útg. Norsk Gyldendal 1987
SEKTARKENNDIN er rithöf-
undum áleitið umhugsunarefni.
Hvað vekur hana og hvert getur
hún leitt okkur? Er þessi tilfínning
svo mögnuð að hún geti orðið svo
sterk, að hugsun um vondan verkn-
að verði fyrir okkur raunveruleiki.
Hversu skal litið á hugrenninga-
syndimar með þetta í huga. Vekja
þær líka sektarkennd, svo að við
foram ef til vill að trúa á okkar
eigin sekt. Þar með er kenndin orð-
in hluti af þessum raunveraleika.
Og jafn eyðileggjandi.
Tore Hamsun tekur þetta við-
fangsefni í nýjustu skáldsögu sinni,
sem var að koma á markaðinn á
dögunum. Þetta er þriðja skáldsaga
hans, en sú fyrsta Mannen fra ha-
vet kom út fyrir fáeinum áram.
Áður hafði Tore Hamsun skrifað
bók um föður sinn, skáldjöfurinn
Knut Hamsun og séð um útgáfur
á bréfum hans og ýmsum óbirtum
ritgerðum.
Hér segir frá rithöfundinum Sten
Sunde. Hann er um fertugt og í
nokkram metum. En sálarókyrrðin
hijáir hann og með áranum hefur
hann orðið einrænn og afskiptalít-
ill. Hann er kvæntur Evelyn og
hann á vininn Henrik Beck.
Sunde hefur verið sér til hress-
ingar á taugahæli og kemur óvænt
heim kvöld eitt. Þá er konan að
gamna sér með vininum, Henrik og
Sunde fer af vettvangi, án þess að
þau verði hans vör.
Þama er sem sagt hinn klassiski
þríhymingur lifandi kominn.
Nokkra síðar ferst Henrik, trúleg-
ast er að hann hafí verið drepinn.
Og hver er þá sennilegur sökudólg-
ur. Náttúrlega kokkállinn.
En málið er að sjálfsögðu flókn-
ara en svo. Og þó að hann játi sekt
sína eftir langa mæðu er nánast
víst, að hann hefur ekki komið
nærri verknaðinum.
Þama er Tore Hamsun sem sagt
kominn að vangaveltunum um sekt-
ina/sektarkenndina. Það er degin-
um Ijósara, að Sunde hugsaði um
að drepa Henrik. Og með því að
hugsa það, fer hann að lifa sig inn
í heim sektarinnar og telur allar
stundir, að hann beri ábyrgðina
þótt málið upplýsist seint og um
síðir.
Heilabrot höfundar um þetta era
forvitnileg, en brotalömin í sög-
unni, að mínum dómi liggur í daufri
persónu Sundes. Einsemd hans, ein-
angranarþörf og angist nær aldrei
í gegn. Vinátta hans og Henriks
verður aldrei trúverðug, hvað þá
að hún nái því að hafa á mann þau
áhrif, sem ætla má að vaki fyrir
Hamsun. Samskipti Sundes og Eve-
lyn eiginkonu era með sama marki
brennd.
Þar með glatar sagan harmi
sínum og það skiptir mann fjarska
litlu máli, hvað um Sunde verður.
Finna má hvað Hamsun ætlaði með
þessari bók og það er forvitnilegt.
En það tekst ekki hér að mínu viti.
Merkilegra drauma getur hún einn-
Asta gerir hvoragt: að miklast
af eigin framkvæði sé kveða upp
áfellisdóma yfír öðram. Hún er ekki
að guma af lækningum sínum þó
hún láti meðal annars hafa þetta
eftir sén »Ég dylst þess ekki að ég
er nokkuð stolt af því að hafa get-
að forðað fjölda fólks frá skurðað-
gerðum, stundum frá því að verða
að ævilöngum öryrkjum, með þess-
ari gömlu kunnáttu.«
Eins og skrásetjarinn segir verð-
ur »allt gott« í frásögn Ástu. Saga
hennar er því mest í einum lit: björt-
um. Einhveijum kann að þykja sem
skuggana vanti í frásögn hennar,
hið ljósa fái ekki notið sín sem
skyldi vegna þess að það beri ekki
við dökkan bakgrann. Allt virðist
starf Ástu hafa gengið nokkuð
snurðulaust. Svipað er í stóram
dráttum að segja um lffsahlaupið
almennt. Þó bregður þar fyrir
skuggum. En Ásta kvartar ekki.
Þó ævi hennar hafí ekki alltaf verið
dans á rósum lætur hún það ekki
aftra sér frá að rækja það hlutverk
sem hún hefur kjörið sér.
En hún gerist jafnan fáorð þegar
drepið er 'eitthvað sem á móti blés.
Mótlætið, sem hún hefur vafalaust
mátt þola til jafns við aðra, verður
henni ekki tilefni til að rekja harma
né segja átakasögu og enn síður
að varpa sök á annað fólk. Það
gustar ekki af þessari bók.
Nú kyimum vid Ijúffenga lambakjöts-
rétti í hádeginu á sunnudögum
S„nnudagur22.»®»*®^
29- a«*emh7~
mum Um*™ZZ™nSsaká'
ms6su-
____ «
Sunnudag**' ð sveppum,
& GráfíVcjunomais.
^bakaðiÍS'öf de*e®*^
____ HoltsOómaís. '
MBtHS
tta
Málarar - málarar
Sérstakur kynningaraf sláttur til málara út
nóvember á BETT, MILLTEX og VITRETEX
Kymiid ykkur kjörin.
Málningarver ksmið j a Slippf élagsins,
Dugguvogi 4, Reykjavík, sími 91-84255.
Opið í dag og alia daga vikunnar kl. 11-20
Timifyriris
Rarnmíslcnsk isbúð með
alþjóðlegu yflrbragðl
AUtaf ferskar isnýjung-
ar, m.a.:
• fssamlokur úr ný-
bökuðum súkkulaðl-
_ bltakökum.
• Ávaxtabar með 18
tegundum af ferskum
ávöxtum og hnetum.
• MJúkis úr vél með
jarðaberja-, banana-.
vanlllu-, plparmlntu-
eða súkkulaðlbragðl,
sett saman elns og þú
vllt.
ÍSHÖLLiN
Komið og kynnist nýjum
meiriháttar hamborgara
og djúpsteiktum fiski.
Þess virði að bragða.
Pizzastaður f Kringlunni.
Ljúffengar pizzur ó staön-
um eöa til að taka með
heim.
Fyllt subbs,
bakaðar kartöflur
m/fyllingu
og salati.
Kwtuáy fned
Orvals
lcjúklingar
Kínverskur
matur, karrý
og
súrsætar
sósur.
*