Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 42
 42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 GOODYEAR RÚTU-OG VÖRUBÍLADEKK G LÍNAN — STÁL RADIAL BYGGÐ TIL AÐ ENDAST _ G 291 G 124 G 186 G 167 LEIÐANDI í VERÖLD TÆKNIÞRÓUNAR HJÓLBARÐA jl ÍLaugavegi 170-172 Simi 695500 GOODVYEAR ÞINGBREF Sverfur að sveitum Hefur byggðastefnan brugðizt? Með hækkandi sól síðastliðið vor boðuðu Byggðastofnun og Samband íslenzkra sveitarfélaga tíl ráðstefnu um byggðamál. Áhugi sveitarstjórnarmanna var ekki meiri þá en það, að hætta varð við ráðstefnuna vegna ónógrar þátttöku. Þráðurinn var siðan tekinn upp að nýju í haustskuggunum. Nú var ráðstefnunni gefin yfir- skriftin: Hefur byggðastefnan brugðizt? Og viti menn. Aðsókn var með fádæmum mikil. Milli 170 og 180 sveitarstjórnarmenn, viðsvegar að af landinu, flykkt- ust til Selfoss dagana 13. og 14. nóvember sl. til að fjalla um þessa tímabæru spurningu. I „Ari fróði segir í íslendingabók, að svo hafi (og) spakir menn_ sagt, að á sex tigum vetra yrði ísland albyggt, svo að eigi væri meir síðan. Landið hefur því verið í byggð frá fyrstu tíð þótt dreifíng búsetu um landið hafí tekið miklum breyting- um. Tuttugasta öldin hefur verið tími umbrota í þessu efni með þétt- býlismyndun og mikilli fækkun starfa í landbúnaði...“. Þannig komst Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, að orði í inngangi ávarps til ráðstefnunnar. Allt frá því að ísland varð full- byggt „á sex tigum vetra“ við mót níundu og tíundu aldar, og fram yfír síðastliðin aldamót vóru búvör- ur [landbúnaður] lifíbrauð þjóðar- innar, með og ásamt sjófangi, er útvegsbændur færðu að landi. Á morgni 20. aldarinnar bjuggu enn 73% þjóðarinnar í sveitum. Síðan hafa orðið miklar atvinnulífs- og þjóðlífsbreytingar. Tækni- og vélvæðing hefðbundinna atvinnu- vega, landbúnaðar og sjávarútvegs, með og ásamt stóraukinni fag- þekkingu starfsstétta, leiddi til síaukinnar framleiðslu með sífækk- andi starfsfólki. Þéttbýli myndast með nýjum starfsgreinum - og fer vaxandi eft- ir því sem líður á öldina. Hverskonar þjónustu óx fískur um hrygg. Nú búa aðeins um 9% þjóðarinnnar í sveitum landsins. Miklir fólksflutningar eiga sér enn stað í landinu. Fólk leitar úr sveitum í þéttbýli og frá kauptúnum og kaupstöðum til höfuðborgar- svæðisins. II Tæknivæðing og hagræðing hafa leitt til stóraukinnar framleiðni í landbúnaði. Búvöruframleiðslan er meiri, betri og fjölbreyttari í dag en nokkru sinni fyrr. Engu að síður hefur dregið allnokkuð úr sölu bú- vöru vegna breytinga í fæðuvali fólks. Seljendur hefðbundinnar bú- vöru hafa hvergi nærri haldið hlut sínum í þessu efni. Innlend verðbólga, langt umfram verðbreytingar á búvörumörkuðum erlendis, hefur allt að því útilokað búvöruútflutning. Verðbólgan 1971-1983 var mesti skaðvaldur íslenzks landbúnaðar á 20. öldinni. III Guðmundur Stefánsson, land- búnaðarhagfræðingur, sagði á Selfossráðstefnunni, að framleiðsla mjólkur í næstu framtíð yrði um 104 milljónir lítra á ári. „Á venjulegu fjöldskyldubúi er ekki lengur tiltökumál að hirða 25-35 kýr“ sagði hann, „og á slíku búi má auðveldlega framleiða Úr umferðinni í Reykjavík fimmtudaginn 19. nóvember 1987 Árekstrar bifreiða: 37, þrátt fyrir gott veður. Hins vegar var sól lágt á lofti. í einu tilviki varð slys. Gangandi vegfarandi varð fyrir bíl á mótum Nóatúns og Hátúns kl. 14.22. Hann var fluttur með sjú- krabifreið á slysadeild. Radarmæling: 22 ökumenn kærðir og þar á meðal var kært fyr- ir 103—105 km/klst. hraða á Kringlumýrarbraut. Um Miklubraut var ekið með 100 km/klst. hraða. Um Elliðavog með 98 km/ klst. hraða. Um Kleppsveg með 88—96 km/klst. hraða. Um Höfðabakka með 86—89 km/klst. hraða. Um Hverfísgötu með 82—85 km/klst. hraða. Um Suðurgötu og Hringbraut 81 og 82 km/klst. hraða. Stöðvunarskyldubrot: 7 ökumenn kærðir. Klippt voru númer af tveim bifreiðum vegna vanrækslu á að færa til skoðunar. Kranabifreið fjarlægði 12 bifreiðir fyrir ólöglega stöðu. Þrír ökumenn voru grunaðir um ölvun við akstur og tveir fund- ust réttindalausir í fímmtudagsumferðinni. Samtals 65 kærur fyrir brot á umferðarlögum. Frétt frá lögreglunni í Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.