Morgunblaðið - 22.11.1987, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
43
STEFÁN FRIÐBJARNARSON
Þarf ekki nema 450.000 vetrarfóðraðar kindur til að metta
islenzka kindakjötsmarkaðinn, 8.500 tonn á ári?
100-120 þúsund lítra mjólkur ár-
lega. Það þarf því ekki nema um
eitt þúsund slík bú til að framleiða
það magn sem von er til að seljist."
í dag eru mjólkurframleiðendur
milli 1.800 og 1.900 - og hefur þó
fækkað á sl. áratug um talsvert á
annað þúsund.
IV
Landbúnaðarhagfræðingurinn
sagði að líkur stæðu til enn frekari
samdráttar í kindakjötsframleiðslu.
Orðrétt sagði hann:
„Ef gert er ráð fyrir að hún verði
um 8.500 tonn á ári, má segja að
til þeirrar framleiðslu þyrfti
450.000 vetrarfóðraðar kindur, en
það svarar til um 1.000 fjöl-
skyldubúa með 400-500 kindur.
Nú eru sauðfjárbú, lítil og stór,
á íjórða þúsund. Þeir bændur sem
hafa lífsviðurværi sitt að umtals-
verðu leyti af sauðfjárrækt eru
örugglega yfir 2000.“ Þessar tölur
segja okkur töluvert um líklega
framvindu mála á næsta áratugn-
um.
V
Sem betur fer eru líka ljósir
punktar í landbúnaðardæminu:
* Loðdýrarækt er í örum vexti.
Loðdýrabú verða hátt á þriðja hund-
rað á næsta ári.
* Fiskeldi hefur og vaxið fiskur
um hrygg. í ár eru starfandi nærri
60 fiskeldisstöðvar. Hugsanlega
geta bændur snúið sér í allnokkrum
mæli að fiskeldi [bæði einyrkja-
stöðvum og samstarfsstöðvum] sem
og að betri nýtingu vatnafiska.
* Ferðamannaþjónusta í sveitum
fer og vaxandi. Þeirri „hliðarbú-
grein" er nú sinnt á um 100 býlum.
Hinsvegar gætir offramleiðslu
bæði í alifugla- og svínarækt. Ekki
er líklegt að störfum fjölgi í þeim
starfsgreinum á næstunni. Sama
máli gegnir um grænmeti, bæði
ylrækt og annað og garðávaxta-
ræktun.
VI
Landbúnaður, hagur hans og
framtíð, er ekki sérmál bænda
einna. Selfoss, fundarstaður
byggðaráðstefnunnar, er talandi
dæmi um það, hvem veg þéttbýli,
atvinna og afkoma fólks í kaup-
stað, tengist landbúnaðinum og
nærliggjandi sveitum. Selfossbær
er að stærstum hluta grein á meiði
landbúnaðar.
Sama máli gegnir um nágranna-
þéttbýli: Hveragerði á aðra hönd,
Hellu og Hvolsvöll á hina. Reyndar
einnig um Egilsstaði eystra, Búð-
ardal vestra og Blönduós nyrðra,
svo fáein dæmi af mörgum séu
nefnd. Höfuðstaður Norðurlands,
Akureyri, stendur öðrum fæti til-
veru sinnar í landbúnaði, það er
iðnaði og verzlun í tengslum við
hann. Þannig mætti lengur telja.
Það þéttbýli er vandfundið sem
skarast ekki hagsmunalega (að ekki
sé nú talað um menningarlegan
bakgmnn eða ætta- og fjölskyldu-
bönd) við sveitir landsins og sjávar-
pláss.
Við getum deilt og karpað enda-
laust um flest milli himins og jarðar.
Það breytir hinsvegar ekki þeirri
staðreynd að ef leki kemst í eina
lest þjóðarskútunnar varðar málið
skipshöfnina alla.
Forsætisráðherra lauk ræðu sinni
á byggðaráðstefnunni með þessum
orðum:
„Ríkisstjómin mun gera sitt til
að skapa skilyrði fyrir íslendinga
til að búa í landinu, í sátt við sjálfa
sig og í sátt við landið."
Megi henni vel takast í þeirri og
annarri jákvæðri viðleitni.
VELflVERKSTfEÐI
SKLSVHNEUÖRNSSOItHE
SKEIÐARASI — 210 GARÐABÆ — SIMAR 52850 & 52661
□ Tengiblokkir fyrir ventla sem
einfalda mjög vökvalagnir.
□ Hönnum og setjum upp
vökvakerfi.
VIÐ FRAMLEIÐUM
Togvindur 5, 7,10,12 eða 16
tonna splittvindur eða
sambyggðar vindur með
sjálfvirku vírastýri, handvirkt
eða sjálfvirkt autotroll
vírmælar. Autotroll með
litaskjá.
Grandaravindur. 3 til 12
tonna með hraöslökun.
Gilsvindur, Bakstroffuvindur
akkerisvindur og m.fl.
Möguleiki á fjarstýringu og
sjálfvirkum bremsum á
allar vindur.
Samofinn hugbúnaður
SYMPHOIMY
FJölbreytt námskeið í hinum vinsæla hugbúnaði
Symphony sem býður upp á mikla möguleika í
skýrslugerð.
Efni námskeiðsinsereftirfarandi:
LelSbeinandi:
★
★
★
★
★
★
★
Vinnuumhverfi Symphony.
Ritvinnsia.
Töflureiknir.
Gagnagrunnur.
Teiknivangur.
Samskiptakerfi.
Verklegaræfingar.
Eiríkur Þorbjörnsson,
tœknifrœöingur
Tími: 24.-27. nóvember kl. 17-20.
Innritun í símum 687590 og 686790
VR og BSRB styðja sína félaga til þátttöku ó námskeiðinu.
Borgartúni 28
Laxveiðijorð i Dalasyslu
Jörð á Skarðsströnd ertil sölu ef viðunandi tilboð
fæst. Jörðinni fylgir 30% veiðiréttur í laxveiðiá
ásamt nýuppgerðu íbúðarhúsi með 4 svefnher-
bergjum, stofu, baði, snyrtingu og eldhúsi.
Svefnaðstaða er fyrir 12 manns. Húsið er fullbúið
húsgögnum. Rafmagn, vatn og sími er í húsinu.
Stórt ræktað og girt tún er á jörðinni.
Á landareigninni eru silungsvötn og kjörin aðstaðá
til gæsa- og rjúpnaveiða. Gott berjaland.
Allar upplýsingar varðandi jörðina verða gefnar í
síma 38674.
lúnda af bestu
gerð og sérstaklega
fallegur frágangur.
Wmm
m
E
kta silkisatín,
undurmjúkt og létt
Náttúruefni sem
„andar“.
kósíður og
G0B AUGLYStNGAÞJÖNUSTAN - SIA
Gjöfin heraior
Pósthússtræti 13, sími 22477,
í hjarta Reykjavíkur á horni Pósthússtrætis og Kirkjustrætis.