Morgunblaðið - 22.11.1987, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 22.11.1987, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 51 ískaldur blús f Ég er nýr baukur Samvinnu- bankans og kem fyrir jólin. Ég er fæddur og uppalinn á ís- landi en það á eftir að skíra mig. Viljið þið krakkar vera svo vænir að láta ykkur detta í hug eitthvert skemmtilegt nafn handa mér. Sendið það síðan á þessum seðli til Samvinnu- bankans, Bankastræti 7, 101 Reykjavík. JHVAÐ AEGAÐ HEITA? Blús Árni Matthíasson Albert Collins hefur áður verið getið hér, enda er hann ein skærasta stjarna Chicago- blúsins í dag. Albert hefur verið lengi að og ekki alltaf hlotið umbun sem erfiði; hann hefur verið tónlistarmaður i fjörutíu ár, og sina fyrstu blússveit jtofnaði hann 1947. Líkt og aðrir góðir blúsarar fæddist Albert á bóndabýli, en það var í Texas en ekki Mississippi. Það var 1932 og 1939 flutti fjöl- skyldan til Houston. Þar gekk Albert í skóla hvar hann átti þess kost að læra á píanó. Píanóið var og aðalhljóðfærið þar til eitt sinn í snjóatíð að píanókennarinn komst ekki i píanótfmana. Albert hefur sagt frá því að þá hafí hann heyrt Boogie Chillen með John Lee Hooker í útvarpinu og það hafí orðið til þess að hann hafí farið að reyna við blúsinn á gítar sem til var í húsinu. Frændi hans gaf honum síðan ódýran gítar og kenndi honum að stilla gítarinn á þann hátt sem Albert hefur haldið til dagsins í dag og markað þann- ig sérstöðu sína sem gítarleikara. Fyrsta blússveitin var tríó sem stofnað var 1947, eins og áður sagði. Sveitin sú lék á knæpum og klámbúlum í Huston í nokkur ár, en 1949 varð sfðan sveitin The Rhythm Rockers til og lék á ýms- um stöðum í Houston og nágrenni. Með The Rhythm Rockers lék Albert jafnt á gítar sem orgel, en orgelinu var stolið og eftir það hélt hann sig við gítarinn. Á þess- um árum var hann að móta gítastflinn sem hann er þekktastur fyrir, hinn „kalda" gítarleik. Ahrifín komu úr ýmsum áttum, en einna helst frá frænda hans Lághtnin’ Hopkins, Pee Wee Cray- ton, Clarence Gatemouth Brown og T-Bone Walker; allir Texas- búar og allir f fremstu röð blús- gítarleikara. 1958 tók Albert upp sitt fyrsta lag, leikna lagið The Freeze eftir Fenton Robinson. Það lag varð til þess að honum bauðst samningur við stórt hljómplötu- fyrirtæki og á þess vegum tók hann upp fleiri lög sem öll báru frekar kuldaleg nöfn; Defrost, Sno-Cone og Frosty m.a. Ekki fór mikið fyrir söng í lögunum, enda Collins lítið gefínn fyrir slíkt. Um 1960 flutti hann til Kansas City þar sem hann tók upp plötur fyrir 20th Century Fox, en þeim var ekki dreift af áhuga af hálfu fyrirtækisins. 1967 gerði Albert plötusamning við Imperial útgáfu- fyrirtækið og tók upp plötur sem best er að gleyma, enda vildu plötufyrirtæki ekki sjá blús um þær mundir; þau vildu danshæfa soultónlist. 1972 virtist sem það væri að rofa til og Albert gerði samning við Bill Szymcyk og ný- stofnað útgáfufyrirtæki hans. Ur því varð þó ekki nema ein plata, en á henni matti heyra að hann var kominn á sporið aftur. Szymcyk fór á hausinn 1974 og Albert tók ekkert upp næstu árin. Hann hélt þó áfram að leika opin- berlega og var eftirsóttur til tónleikahalds. 1978 var Bruce Iglauer að leita að blúsleikurum fyrir hið nýja fyrirtæki sitt, Alli- gator, og hann gerði samning við Albert. Þá starfaði Albert með hljómsveit sinni sem kallaðist The Icebreakers. Þar í var margur snjall hljóðfæraleikari, þ. á m. saxófónleikarinn snjalli A.C Reed. Ifyrsta platan fékk heitið Ice Pick- ing og hún var valin blúsplata ársins 1979. Þar með var Albert Collins aftur kominn á skrið og síðan hafa komið frá honum sjö plötur á vegum Alligator. Ein þeirra með þeim Johnny Copeland og Robert Cray. Hér á landi hefur fengist Charlyplatan Ice Cold Blues, sem á eru nokkur lög frá Imperial árunum. Á plötunni er ekkert sem kalla mætti fyrirtak, en þó er þar að fínna nokkur leikin lög sem eru yfír meðallag. Þeir sem áhuga hafa á Albert Collins ættu þó frek- ar að reyna að næla sér f einhveija af Alligatorplötunum sem Sonet hefur gefíð út á Bretlandi og fáan- legar eru hér. Ein þeirra er hans nýjasta plata, Cold Snap, en á henni er hann ekki með The Icebreakers. Með honum eru þó fyrsta fíokks hijóðfæraleikarar og þeirra á meðal hinn snjalli jassorg- elleikari Jimmy McGriff. Albert sýnir á sér allar sínar bestu hliðar á plötunni sem gítarleikari og kemst einnig betur frá söngnum en oftast áður. Önnur plata sem benda má á er Grammyverðlauna- platan Showdown!, en á henni leika þeir listir sínar lærifaðirinn og sveinamir, þeir Albert Collins, Robert Cray og Johnny Copeland. Johnny Copeland lærði af Alb- ert á seinni hluta sjötta áratugar- ins, en Cray ákvað að verða blústónlistarmaður eftir að hafa séð Albert Collins á tónleikum 1971 og byijaði á að læra utanað flest lög sem Albert hafði tekið upp. Það er mikið um gítarstæla á Showdown!, svo mikið að mörg- um blúsáhugamanni þykir nóg um. Allir komast þeir vel frá sínu, en Collins þó einna best. Cray er þó besti söngvarinn og hans fram- lag er skemmtilega fágað miðað við stöðugar flugeldasýningar hinna. Showdown! er dæmigert fyrir nútíma Chicagoblús og á henni er tónlist sem ætti að höfða ekki sfður til rokkáhugamanna en blúsara. Krakkar athugið! Að frestur til að skila inn nöfnunum er til 6, des Dómnefndin sem velur besta nafnið er fólk á öllum aldri. Fyrir nafnið sem valdið er fær svo hinn heppni vegleg verðlaun. Ef svo vill til að fleiri krakkar en einn eru með verðlaunanafnið, þá verður dregið úr þeim hópi keppenda en hinir fá aukaverðlaun. Nafn ....... Heimilisfang Staður Sími Klippið hér >4 ws/Nvmtovaa
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.