Morgunblaðið - 22.11.1987, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987
55
Svarthvítar minningar
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Þorvaldur Þorsteinsson:
HUNDRAÐ FYRIRBURÐIR. Út-
gefandi höfundur 1987
í Hundrað fyrirburðum eru text-
ar og myndir eft'r Þorvald Þor-
steinsson. Hann hefur sent frá sér
nokkrar bækur, kunnust þeirra er
Skilaboðaskjóðan (1986). Eftir
bókaskrá að dæma eru Hundrað
fyrirburðir þriðja bók hans á þessu
áLri, hinar hef ég ekki séð.
Þorvaldur Þorsteinsson er að því
ég best veit einnig myndlistarmað-
ur. í Hundrað fyrirburðum eru 50
svarthvítar ljósmyndir af málverk-
um og vatnslitamyndum eftir hann
frá tímabilinu 1973-1987. Hérverð-
ur ekki lagður dómur á þær, enda
ekki í verkahring undirritaðs og þar
að auki er ólíklegt að birting þeirra
í þessari bók sé annað en veikur
endurómur þeirra í frumgerð.
En það eru svarthvítu minning-
amar, skráðar 1983-1987, sem
lítillega verður vikið að.
Hér eru einkum á ferðinni
bemskuminningar frá Akureyri,
skrifaðar í bamslegum stíl og bless-
unarlega lausar við endurskoðun
fullorðinsára. Dregnar eru fram
myndir augnabliksins og þess gætt
að þær spegli hug bamsins, skynjun
þess og mat á umhverfinu. A einum
stað segir svo:
„Þegar við fórum til Ólafsfjarðar
þurftum við alltaf að fara með
Drang af því að Múlavegurinn var
ekki kominn. Og alltaf varð ég sjó-
veikur. En einu sinni fómm við með
fiskibátnum Stíganda til Ólafsfjarð-
ar og af því að veðrið var svo gott
varð ég ekkert sjóveikur. Þess
vegna varð Stígandi uppáhaldsskip-
ið mitt. Svo þegar hann fórst
mörgum árum seinna fannst mér
ég næstum því hafa komist í hann
krappan að hafa verið um borð í
skipi sem núna var á hafsbotni."
Önnur og ekki síðri ferðasaga
hljóðar svo:
„Þegar pabbi keyrði útaf á
Vaðlaheiðinni af því að hann leit
aftur í sætið til okkar Margrétar
systur kom bíll sem hjálpaði okkur
upp á veginn aftur. Lítil stelpa í
bflnum kom út og gaf mér kara-
mellu og ég reif hana upp með
tönnunum og spýtti karamellubréf-
inu langt og fast út úr mér til þess
að hún vissi að við pabbi værum
harðir af okkur þó á móti blési."
Það er semsagt líf hversdagsins
sem Þorvaldur Þorsteinsson sækir
innblástur í. Skrásetning hans er
þess eðlis að hann gerir ekki alltaf
greinarmun á því sem getur talist
verðugt frásagnarefni og hinu sem
er veigaminna. í best skráðu minn-
ingunum á hann erindi við lesendur,
en ég býst við að mörgum þyki
hann stundum hafa frá litlu að
segja.
Kostur er einlægni í ætt við frem-
ur næfan lífsskilning, en líklegt er
að hér sé vísvitandi stefnt að því
Jóhann Hjálmarsson
Birgir Svan Simonarson:
STORMFUGLAR. Ljóð 1987.
Gefið út á kostnað höfundar,
Hafnarfirði 1987.
Ljóð Birgis Svans Símonarsonar
fjalla einkum um daglegt líf, störf
á sjó og við sjó. Stormfuglar eru
sjöunda ljóðabók hans.
Flest Ijóð Stormfugla geta kallast
sjómannaljóð. Þau gerast á sjónum
eða lýsa sjómönnum í landi eða með
hugann við land. Þetta eru bein-
skeytt ljóð, raunsæ og opinská.
Skáldið talar tæpitungulaust. Þann-
ig lýsir hann sjómannslífinu í
Bakborðsmönnum:
vanrækja
tilfinníngaskylduna
harkan sex
á norðlægum breiddum
orð þeirra
köld og hörð
lábarðir hnullúngar
þeir vanrækja
tilfinníngaskylduna
bráðna hægt
einsog borgarís
strandaðir í konufaðmi
Birgir Svan leggur áherslu á
myndmál og persónugervingu í
hversdagsljóðum sínum. Með þeim
hætti forðar hann ljóðunum frá að
vera aðeins frásagnir úr lífi sjó-
manna. í Heimkomu, upphafsljóði
Stormfugla, eru bláir brimskaflar í
farteski sjómannsins og leiguvagn-
ar borgarinnar eru mærðarlegir
skrautfiskar í keri. Ljósastauramir
stinga saman nefjum og sjópokinn
er leikmunur sem drukknir sviðs-
menn hafa glatað. Húsin líta
sjómanninn heimkomna homauga.
í Leiksviði er sjómönnunum líkt við
risavaxna brekkusnigla á öldufaldi.
í Siglíngu em öldumar leðurklædd-
ir pönkarar á skynvillulyfjum og
vindurinn tröllaukinn vanviti sem
sloppið hefur úr gæslu.
Þessi ljóð em ákaflega misjöfn.
Meðal þeirra bestu er að mínum
dómi Hlið í hafi:
Vinsælasta námskeiö okkar fjallar um notkun tölva
við upplýsingaöflun og telexsendingar
Dagskrá:
• Grundvallaratriöi tölvusamskipta
• Modem, gagnanet og gaanabankar
• Tölvutelex og upplýsingakerfi
• Flutningur gagna milli olíkra tölva
• Islenskir gagnabankar og búnaður
Dag og kvöldnámskeið
.. , , , .. . . , Halldór Kristjánsson
Næstu námskeió hefjast 1 .desember verkfræ6ing'r '
■ varkf ræftibiánustan
Grensásvegi 13, síml 68 80 90 einnig um helgar
Þorvaldur Þorsteinsson
að túlka hugmyndaheim bamsins.
Hundrað fyrirburðir era hvað sem
öðm líður óvenjuleg bók og vakti
áhuga undirritaðs lesanda.
Bláir brimskaflar
Bókmenntir
Birgir Svan Símonarson
hann skyggndist
um hlið dauðans
nú drýpur ekki af honum
varir bláar sem Qólur
andlitið hvítt sem drif
orð okkar
ílla gerð
apamir bölva
i búri sinu
vindurinn blæs
upp kviku
Þetta ljóð er til marks um hve unnt
er að segja mikið í fáum orðum og
hve vel fer á því að hnitmiða. Birgi
Svan hættir til mælsku og hrúgar
þá stundum upp of mörgum mynd-
um. Dæmi er Landlega sem að öðra
leyti er ljóð sem vitnar um hug-
kvæmni skáldsins.
Stormfuglar er ein þeirra bóka
sem hefðu grætt á strangara vaii
efnis, ljóðunum hefði að ósekju
mátt fækka. En það er margt gott
að segja um Stormfugla eins og
fleiri bækur Birgis Svans Símonar-
sonar. Ég get til dæmis ekki stillt
mig um að birta að lokum heilræði
sem orðið hefur hið prýðilegasta
ljóð og kallast einfaldlega Ljóð:
að breyta heiminum
með ljóði
er líkt því
að stöðva hraðlest
með berum höndum
slíkt er aðeins
á færi skálda
Fýrirhaí
liMIS
iMiitaiogur
^ á. eld:a"
Élarislciiiii
jóliJin
ÉÍP
Hvar sem íslendingar eru niöurkomnir á jarökringlunni
gera þeir ætíö sitt besta til aö skapa þjóðlega stemningu á jólunum.
Ekkert er jafn nauösynlegt við myndun þeirrar stemningar eins og
ekta íslenskur jólamatur.
Við hjá SS bjóðumst til að annast umstangið fyrir þig
og senda jólamatinn til vina og venslamanna erlendis. Þú kemur bara
til okkar í SS-búðirnar, tínir kræsingarnar í körfuna og stingur
jólakortinu með - við sjáum svo um afganginn.
Og nú er eins gott að flýta sér ef enginn á að fara í jólaköttinn.
Allt sem á að fara með flugi til Evrópu þarf að vera tilbúið í síðasta lagi
17. desember og síðasta skip til Evrópu fer 1. desember.
Flugpóstur til N-Ameríku þarf að vera tilbúinn 11. desember.
Gleymum ekki þeim, sem þurfa að dvelja fjarri heimaslóðum um
hátíðirnar - sendum þeim hangikjöt í pottinn!
AUSTURVEfíl — GLÆSIBÆ — HAFNARSTRÆTI — VIÐ HLEMM