Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 22.11.1987, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 57 önnur dýramynd: Kettir, gerðir með stenslum og þekjulK af Emu Erlendsdóttur sem er sex ára. Þessi mynd varA tll eftir helmsókn á Kjarvalsstaði á góðviðrisdegi. Myndin er eftir Sigurrós Jóhannsdóttur, 11 ára. Þegar hópurinn sett- ist við vinnuborðlð í skólanum máttu nemendur ráða hvernig þeir kæmu þeim áhrifum til skila sem þeir höfðu orðið fyrir þennan dag, og þetta er það sem Sigurrós sá. Þar sem óargadýrin búau heitir þekkt barnasaga sem Hrafnhildur Gunn- laugsdóttir fákk þýdda á fslenzku tll að lesa fyrir nemendur sína og síðan áttu þeir að gera efninu skil f myndum. Þessi óvættur er eftir Magnús Fr. Ólafsson. 8-10 ára nemendur, talið frá vlnstri: Ingólfur Vignir Ævarsson, Gauti Kjartan Gfslasom, Theódóra Sigurðar- dóttir, Ragnheiður Bogadóttlr og Danfel BJarnason. / - leg námskeið árum saman og þau eiga miklum vinsældum að fagna. „Staðreyndir tala sínu máli um það að mjög misjafnlega er staðið að myndmennt í skól- um landsins," heldur Bjarni áfram. „Á landinu eru milli 220 og 230 grunnskólar en í ein- ungis um fjörtíu af þessum skólum munu lærðir mynd- menntarkennarar vera starf- andi í vetur. Þetta segir sína sögu enda held ég því fram að mikið skorti á að listrænum greinum sé sinnt sem skyldi í skólakerfinu enda þótt lög kveði á um að svo skuli gert. Á meðan ástandið er ekki betra á þessu sviði en raun ber vitni væri skaði að því að hætta starfsemi af þessu tagi.“ Það kom fram í samtölum við nemendur í barnadeildinni og kennara þeirra, Hrafnhildi Gunnlaugsdóttur, að aðsókn að námskeiðunum stafar í mörgum, ef ekki öllum tilvikum, af því að ónóg eða jafnvel eng- in kennsla í myndmennt er í boði í þeim skólum sem þessj ungmenni stunda nám í. í tveimur efstu bekkjum grunn- skólans er myntmennt val- grein, en hjá ýmsum skólamönnum mun nú vaxandi áhugi á því að listrænar náms- greinar á borð við tónlist og myndmennt verði kjarnagrein- ar þannig að svo þroskavæn- leg iðja sé ekki forréttindi þeirra ungmenna sem búa við hagstæð skilyrði, svo sem þau að eiga foreldra sem gera sér grein fyrir gildi þeirra í mótun einstaklingsins og uppeldi. Þegar myndir krakkanna sem sækja námskeiðin í Mynd- listar- og handíðaskólanum eru skoðaðar vaknar sú spurning hvort þær beri vott um þrosk- aðra myndskyn en almennt gerist um myndir barna á þess- um aldri. „Ég held að óhætt sé að halda því frarn," segir Hrafn- hildur, „enda hafa þessir krakkar fengið meiri tilsögn en þeir sem einungis nýta sér þá tilsögn sem er í boði í grunn- skólanum. Hér er lögð áherzla á efnismeðferð og sjálfstæð vinnubrögð, en einnig og ekki síður öguð og markviss vinnu- brögð. Við störfum í fjórum hópum sem skiptast eftir aldri. Yngstu börnin eru sex ára og þau elztu fimmtán ára. Þessir fjórir aldurshópar eru að sjálf- sögðu misjanflega langt komnir í þroska og hæfni, en þó vinna þeir iðulega út frá sama þema. Sem dæmi um það má nefna að um þessar mundir erum við að vinna að myndskreytingum í tengslum við Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. „Vegna þessa verkefnis höf- um við verið að kynna okkur efni Mannréttindayfirlýsingar- innar og ræða það, og á myndunum má líka sjá að börnum verða fyrir áhrifum af þvi sem þau sjá og heyra í fjöl- miðlum." Spurningu um það hvort mikil áherzla sé lögð á teikningu á þessum námskeið- um svarar Hrafnhildur á þá leið að svo sé ekki nema hjá elztu börnunum. „Aðaláherzla er lögð á það að nemendurnir kynnist efnum og litum og eig- inleikum þeirra. Að öðru leyti læra þeir mest á því að skoða." TEXTI: ÁSLAUG RAGNARS MYNDIR: ÞORKELL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.