Morgunblaðið - 22.11.1987, Side 64

Morgunblaðið - 22.11.1987, Side 64
KRINGLUNNI í M I 6 8 9 4 0 0 ÞykkvaíœjM Þar vex sem vel er sáð! SUNNUDAGUR 22. NÓVEMBER 1987 VEM) í LAUSASÖLU 55 KR - • ♦ * ju m - m !< • * *.* ’ * ♦ - * # * » #•# - W9- • • | . • m ' r* * \ m' f|- . • «• pflwSfeM' 1 1£ - -Étk * ‘1 | “ * 9 * • • ip- Morgunblaðið/RAX Ys og þys borgarlífsins Nú i fimmtu viku vetrar þegar aðeins er mánuður í vetrarsólstöður og rúmur mánuður til jóla er ekki beint vetrarlegt um að litast á landinu. Veðrið er eins og á vori. Myndin var tekin í rigningarsudd- anum í Lönguhlíðinni í fyrradag. Ef grannt er skoðað sjást nokkrir jólasvein- ar á gangstéttinni hægra megin götunn- ar. Þar voru á ferð krakkar úr einhveijum skóla borgarinnar að lifga upp á tilveruna. Hiti 2,7 stignm undir meðal- lagi í október ÚRKOMA i Reykjavík og ná- grenni var helmingi minní í september en í meðalári sam- kvæmt upplýsingum frá Veður- stofunni. Hiti í september mældist nálægt meðallagi en i október var hann 2,7 stigum und- ir meðallagi. „Hægviðrið undanfamar vikur veldur því að fólki fínnst haustið hafa verið gott, en samkvæmt veð- urskýrslum er það ekki svo,“ sagði Adda Bára Sigfúsdóttir veðurfræð- ingur á Veðurstofunni. „Ef septem- ber er talinn með haustinu þá var mjög þurrt í september og var úr- koman innan við helming þess sem er venjulega," sagði Adda Bára. Þorsteinn Pálsson á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins: Hvetur til sameiningar sjálfstæðismanna á ný Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir í ræðu á fundi flokksráðs Sjálfstæðisflokksins á Selfossi í gær, að hann teldi það megin- markmið og höfuðverkefni að sameina sjálfstæðismenn á ný í einum flokki. Þorsteinn Pálsson sagði, að það hefði ekki verið skoðanaágreiningur, sem leiddi til klofnings Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu kosningar og stofn- unar Borgaraflokksins og þess vegna hlytu sjálfstæðismenn að einsetja sér að tengja saman á ný það fólk, sem lengi hefði átt hugsjónalega samleið. Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði í ræðu sinni, að „fyrrum fé- lagar okkar segist skuldbundnir fólki úr öðrum flokkum eftir kosn- ingabardagann og þær skuldbind- ingar hindri áform af þessu tagi. Um það ætla ég ekki að deila. En sjálfstæðismenn geta ekki til lengri tíma veikt sameiginlega krafta sina vegna skuldbindinga við fólk úr öðrum flokkum." Þorsteinn Pálsson sagði, að sjálf- stæðismenn gætu ekki og vildu ekki gera flokk sinn að verzlunar- vöru til þess að ná þessu markmiði, en sjálfstæðismenn allir saman og hver fyrir sig þurfí að bera þetta undir samvizku sína og sannfær- ingu. Þá sagði formaður Sjálfstæð- isflokksins, að atburðir ársins hefðu snert dýpstu tilfínningar þeirra, sem lengi hafí starfað sameiginlega í þágu sjálfstæðisstefnunnar. „En ekkert okkar má þó láta reiði, sár- indi eða vonbrigði koma í veg fyrir, að við stefnum ótvírætt að því marki að sameina undir einu merki alla þá, sem áfram vilja vinna að þjóðlegri umbótastefnu, atvinnu- frelsi og einstaklingsfrelsi, svo sem við höfum gert og munum gera.“ Sjá ræðu Þorsteins Pálssonar í heild á bls. 24-25. Ullarnefnd til Sovét- ríkjanna ÞRIGGJA _ manna samninga- nefnd frá Alafossi hf. og Ullar- iðnaði Iðnaðardeildar Sambandsins fer um helgina til Moskvu til að semja um útflutn- ing á ullarvörum til Sovétríkj- anna fyrir næsta ár. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi fyrirtæki taka sameiginlega þátt í þessum sölusamningum. íslenskir ullarframleiðendur telja sig þurfa nú að ná fram umtals- verðri verðhækkun í Sovétríkjun- um, bæði til að mæta verðfalli Bandaríkjadalsins og hækkunum á ullarverði. Samkvæmt opinberum skýrslum hafa Sovétmenn undan- farin ár keypt hér ullarvörur á umtalsvert lægra verði en kaupend- ur á Vesturiöndum og sá mismunur hefur vaxið milli ára sovéskum kaupendum í hag. Meðalútflutningsverð á ullar- peysu til Sovétríkjanna á samnings- árinu, sem er að ljúka, hefur verið 14 dollarar, meðan meðalverðið til kaupenda á Vesturlöndum hefur verið um 27—28 dollarar. Fjárhagsstaða sveitarfél- aga óhagstæð um milljarð SIGURGEIR Sigurðsson bæjar- stjóri á Seltjaraamesi og for- maður Sambands íslenskra —^fveitarfélaga kveðst áætla að fjárhagsstaða sveitarfélaga í landinu verði neikvæð sem nemur um það bil einum milljarði króna á yfirstandandi ári. Þar af leið- andi nægi áætlaður 700-750 milþ'ón króna tekjuauki sveitar- félaga af 6,7% innheimtuhlutfalli útsvars á næsta ári ekki til að ~ vega upp á móti tapi þessa árs. „Þetta var það sem við mátti búast eftir allt umtalið," sagði Sig- urgeir Sigurðsson, „fjármálaráðu- neytið beitti miklum þrýstingi til að halda hlutfallinu niðri og því er ekki að leyna að niðurstaðan hefði getað verið verri. En ef eitthvað fer úr- skeiðis á næsta ári er ábyrgð félagsmálaráðherra mikii." Sigur- geir sagði að fjárhagsstaða sveitar- félaganna væri nú slæm. Þau hefðu saétt sig við lága prósentu á þessu ári til að spilla ekki þjóðarsáttinni. „Við vildum ekki að sveitarfélögum yrði kennt um að ekki tækist að hemja verðbólguna. Þjóðhagsspá gerði ráð fyrir um það bil 10% verð- bólgu, hún er að minnsta kosti tvöfalt hærri. Samkvæmt spám áttu launahækkanir að nema 14-16% en frá október ’86 til október ’87 nem- ur hækkunin 35-37%.“ Sagði Sigurgeir að allt benti til að fjár- hagsstaða sveitarfélaganna væri óhagstæð um náiægt einn milljarð króna á yfírstandandi ári. Þessa mynd tók Oddný Eiriksdóttir þegar bóndi hennar, Ásgeir Heiðar, kom heim með tvö hundruð rjúpur og eina tófu. Hundur- inn Rex, sem aðstoðar húsbónda sinn við veiðar, situr ánægður hjá. Skaut 200 rjúpur og eina tófu „ÉG náði tvö hundruð rjúpum fyrir norðan og bætti einni tófu við á Holtavörðuheiði á heimleið- inni,“ sagði Ásgeir Heiðar, fengsæll veiðimaður úr Garða- bæ. Hann sagði að mikið væri af ijúpu núna og einnig hefði tófu fjölgað mjög síðustu árin. Ásgeir sagðist hafa gengið 3-4 daga á fíall og veitt vel. „Ég vil ekki gefa upp hvar ég náði ijúp- unni, ég læt nægja að segja að það hafi verið fyrir norðan," sagði Ás- geir, sem hefur stundað veiðar í 15 ár. Á leiðinni heim náði Ásgeir að skjóta ref og „batt þannig enda- hnút ágóða veiðiferð", sagði hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.