Morgunblaðið - 30.12.1987, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987
Leit að krabbameini í rístli og endaþarmi haldið áfram:
Krabbamein fannst hjá
þremur og forstig þess hjá
8 manns eftir frumkönnun
Fyrr á þessu ári lauk fyrstu könnun á skipulegri leit að æxlum
í ristli og endaþarmi á vegum Krabbameinsfélags íslands.
Undanfarið hefur verið til umræðu hjá félaginu að halda slíkri
leit áfram og er nú ákveðið að endurtaka leitina hjá sama hop
og áður. Áform voru uppi um að fjölga þátttakendum en hætt
við af fjárhagsástæðum. Anna Pálsdóttir meinatæknir og As-
geir Theódórs læknir hafa stjórnað leitinni og greina þau frá
helstu niðurstöðum og ástæðum þess að farið var út í þessa
krabbameinsleit. Fyrst rekja þau forsögu málsins.
mm
Morgunblaðið/Bjami
Ásgeir Theódórs og Anna Pálsdóttir hafa stjórnað frumkönnun
Krabbameinsfélagsins við leit að krabbameini í ristli og enda-
þarmi. Nú er ákveðið að halda þessari leit áfram.
-Meginverkefni Krabbameins-
félagsins er að standa fyrir leitar-
starfsemi og hefur ieitin að
krabbamieni í leghálsi og brjóst-
um þegar sannað ágæti sitt og
leitt til greiningar fyrr og betri
lækningar. Árið 1981 var skipuð
nefnd þriggja iækna til að kanna
möguleika á nýrri krabbameins-
leit. Meðal þess sem kom til greina
var leit að krabbameini í lungum,
blöðruhálskirtli og maga, en að
vandlega athuguðu máli lagði
nefndin til að leit að krabbameini
í ristli og endaþarmi yrði vaiin,
en það er þriðrja algengasta
krabbameinið hér á landi hjá körl-
um og konum. Stjóm Krabba-
meinsfélagsins ákvað að fara að
ráðum nefndarinnar og var skipuð
sérfræðinganefnd sem skyldi
ákveða fyrirkomulag könnunar-
innar í stómm dráttum.
Hvemig fór svo þessi könnun
ffam?
Náði til 6 þúsund
manns
-Ákveðið var að könnunin
skyldi ná til 6 þúsund einstakl-
inga, karla og kvenna á aldrinum
45 til 70 ára, jafnmargra úr hveij-
um aldurshópi. Um leið og
frumkönnunin hófst var skrifað
til heimilis- og heilsugæslulækna
og þeim skýrt frá tilgangi könnun-
arinnar og þeir beðnir að sinna
því fólki sem ekki átti þess kost
að vera með og leitaði því til
þeirra. Framlag Oddfellowstúk-
unnar Þormóðs goða gerði það
að verkum að hægt var að heíj'a
frumkönnunina fyrr en ella.
Gögn ásamt leiðbeiningum vom
send til 5.800 einstaklinga á höf-
uðborgarsvæðinu, 100 til fólks á
Egilsstöðum og 100 til íbúa í
Bolungarvík. Svömn var best á
Egilsstöðum 66%, í Bolungarvík
51% og 39% á höfuðborgarsvæð-
inu. Starfsfólk fyrrgreindra
heilsugæslustöðva var afar hjálp-
legt og lagði sig fram um að fá
sem mesta svömn í könnuninni.
Viðunandi svörun?
Ásgeir og Anna segja að í sam-
bærilegum könnunum erlendis
hafi svömn verið allt frá 9% uppí
70% og ekki liggi ljóst fyrir hvað
veldur þessum mun. Fólk er mis-
munandi vel upplýst um þennan
sjúkdóm og þau telja að auka
megin svömn með meiri fræðslu.
Þau segjast einnig hafa orðið vör
nokkurrar feimni varðandi
krabbamein í ristli og endaþarmi
einkum hjá yngri karlmönnum.
Hveijar em svo helstu niður-
stöðumar að lokinni fmmkönnun?
-Af þeim 2.357 manns sem
sendu sýni reyndust 46 vera með
blóð í hægðum. Krabbamein
greindist hjá þremur þeirra og
forstig þess, þ.e. góðkynja æxli
hjá átta manns. Æxlin vom fjar-
lægð með skurðaðgerð ef um
krabbameinsæxli var að ræða en
með speglunartæki ef þau vom
góðkynja. Til öryggis er gerð hjá
þessu fólki ristilspeglun með
reglulegu millibili.
Það er að okkar mati góður
árangur að tekist hefur að koma
í veg fyrir þróun illkynja æxlis-
vaxtar, krabbameins, hjá þessu
fólki. Hinu má þó ekki gleyma
að um það bil 3.600 manns svör-
uðu ekki könnuninni en í þeim
hópi gætu leynst hlutfallslega
jafiimargir með krabbamein og
forstig þess.
Óþekktar orsakir
Ásgeir var spurður um orsakir
og batahorfur:
-Orsakir krabbameins í ristli
og endaþarmi em ekki þekktar
en ýmislegt bendir til þess að
mataræði skipti máli. Mikil neysla
dýrafitu, sykurs og trefjasnauðrar
fæðu getur verið varasöm. Á
síðari ámm hafa meðfæddir
áhættuþættir orðið mönnum ljós-
ari.
Batahorfur fara eftir því á
hvaða stigi sjúkdómurinn greinist.
Ef hann er staðbundinn og æxlið
lítið em batahorfur mjög góðar.
Sé meinsemd stærri og útbreidd
má beita geislum og lyfjameðferð
eftir skurðaðgerð.
Hvers vegna leit að blóði í
hægðum?
-Byijunareinkenni krabba-
meins í ristli og endaþarmi em
mjög óljós og er meinið því oft
komið á alvarlegt stig þegar það
finnst. Flestir fá við og við hægða-
tregðu, niðurgang og svo fram-
vegis, sem er yfírleitt merki um
minniháttar meltingartmflanir.
Ástæða er til að gefa eftirfarandi
einkennum gaum séu þau lang-
varandi eða gera vart við sig hvað
eftir annað:
Breytingu á hægðavenjum,
blóði í hægðum, slappleika og
megmn og vaxandi kviðverkjum.
Ymsar aðferðir hafa verið
reyndar til að finna þetta krabba-
mein og forstig þess áður en það
kemst á alvarlegt stig. Leit að
blóði í hægðum, sem ekki sést
bemm augum, er nú viðhöfð
víðast hvar. Aðferðin er einföld
og ekki mjög kostnaðarsöm.
Að f inna krabbamein
Nú er ákveðið að halda áfram,
en af hveiju er sami hópurinn
kallaður aftur?
-Eins og áður segir er ekki
hægt að stækka hópinn af fjár-
hagsástæðum. Með því að leita
aftur hjá sama hópnum emm við
meðal annars að benda á það, að
með reglulegu eftirliti megi finna
krabbamein og forstig þess áður
en það er komið á alvarlegt stig.
Við emm reynslunni ríkari núna
og leggjum enn meiri áherslu á
að fólk svari sem fyrst eftir að
hafa fengið gögn í hendur. Þetta
er meðal annars gert til þess að
halda kostnaði í lágmarki við
framkvæmd könnunarinnar en
niðurstöður eiga að liggja fyrir í
árslok 1988.
Að lokum væri fróðlegt að vita
hver viðbrögð almennings vom
við könnuninni?
-Könnunin . vakti athygii
margra og ýmsir leituðu frekari
upplýsinga símleiðis eða komu til
okkar. Samskipti við fólk vegna
könnunarinnar vom í langflestum
tilfellum mjög góð. Ánægjulegt
er að minnast viðtals í Morgun-
blaðinu við konu sem taldi sig
ákaflega lánsama að hafa átt þess
kost að vera með í könnuninni.
Hjá henni fannst krabbamein á
byijunarstigi sem var komist fyrir
með speglunartæki án skurðað-
gerðar. Þess skal getið að þessi
kona hafði ekki kennt sér neins
meins.
Skyggða svæðið er ristillinn og neðst er
endaþarmur. Sé æxli staðbundið eru bata-
horfur allgóðar.
Á svona spjald eru sett hægðasýni til þess að leita að blóði sem getur gefið vísbendingu
um krabbamein á byrjunarstigi.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ:
23 stúdentar
útskrifaðir
í Fjölbrautaskólanum i
Garðabæ voru útskrifaðir 23 stúd-
entar laugardaginn 19. desember
sl.
Hátíðleg athöfn var haldin í skól-
anum og fluttu ávörp Þorsteinn
Þorsteinsson, skólameistari, sem af-
henti prófskírteini, Pétur Stefánsson,
formaður skólanefndar, sr. Bragi
Friðriksson, sóknarprestur, og Hjört-
ur Jónsson, nýstúdent. Gísli Ragn-
arsson, aðstoðarskólameistari, veitti
nemendum viðurkenningu fyrir góð-
an námsárangur, m.a. bókagjafir frá
þýska sendiráðinu og spænska kons-
úlnum. Bestum námsárangri á
stúdentsprófi náði Helga M. Berg-
steinsdóttir á málabraut. Kór skólans
söng við athöfiiina undir stjóm Guð-
laugs Viktorssonar.
Nemendur skólans vom 435 á
haustönn. Tekið var I notkun í haust
nýtt viðbótarhÚ8næði með 8 kennslu-
stofum og mötuneyti fyrir nemendur.
Kennarar skólans voru 36 á haust-
önninni.
Stúdentar sem útskrifuðust frá Fjölbrautaskólanum I Garðabæ. Sitjandi frá vinstri: Laufey Vilhjálmsdótt-
ir, Linda B. Bragadóttir, Anna M. Guðjónsdóttir, Sóiveig B. Einarsdóttir, Margrét Sigurgeirsdóttir, Edda
B. Jónsdóttir, Svana L. Hauksdóttir, Sesselja Magnúsdóttir, Maria Þ. Helgadóttir. Standandi frá vinstri:
Þorsteinn Þorsteinsson, skólameistari, Hjörtur Jónsson, Edvin Árnason, Erlingur Bjamason, Hermann Leifs-
son, Þröstur R. Kristinsson, Helga M. Bergsteinsdóttir, Tindur Hafsteinsson, Guðfinna K. Sigurðardóttir,
Gunnhildur Jóhannsdóttir, Arnþór Ragnarson, Baldur Vilþjálmsson, Hreiðar I. Júliusson, Sigurður P. Sig-
urðsson, Gisli Ragnarsson, aðstoðarskólameistari.