Morgunblaðið - 30.12.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. DESEMBER 1987
25
Bandaríkin:
Morðóður
byssumaður
drepur sex-
tán manns
Russellville í Arkansas, Reuter.
ALLS hafa fundist 16 lík í smá-
bænum Russellville í Arkansas í
suðurríkjum Bandaríkjanna eftir
að maður nokkur gekk þar ber-
serksgang síðastliðinn mánudag.
Talið er að hann hafist handa
við ódæðin skömmu fyrir jól, en
14 fórnarlamba mannsins voru
skyldmenni hans.
Lögreglustjórinn í Russellville,
Herbert Johnston, sagði að manns-
ins hefði fyrst orðið vart þegar
hann gekk um götur bæjarins, drap
tvo og særði fjóra á innan við hálf-
tíma að morgni mánudags. Lík
Reuter
Fjöldamorðinginn Gene Simmons leiddur á braut af lögreglunni.
fimm annarra fórnarlamba manns-
ins fundust síðar á heimili hans og
við nánari aðgæslu fundust átta í
viðbót grafin í grenndinni.
Morðinginn reyndist vera 47 ára
gamall verslunarþjónn að nafni
Gene Simmons, en ekki er vitað
hvað olli æði hans því hann hefur
ekki fengist til þess að segja auka-
tekið orð við yfirheyrslur.
Arabaríkin við Persaflóa:
Skora á Sameinuðu þjóð-
irnar að skerast í leikinn
og fylgja eftir ályktun um vopnahlé í Persaflóastríðinu
Riyadh. Reuter.
FJÖGURRA daga fundi ar-
abaríkjanna við Persaflóa lauk i
gær með því, að skorað var á
Sameinuðu þjóðirnar að fylgja
fast eftir ályktunmni um vopna-
hlé í stríðinu milli íraka og írana.
Samstarfsnefnd Persaflóaríkj-
anna, sem sex arabaþjóðir eiga
aðild að, hvatti „þjóðir heims og
sérstaklega öryggisráðið til að axla
ábyrgð sína og fylgja eftir í verki
ályktun 598“ en í henni var kveðið
á um vopnahlé í Persaflóastríðinu.
í öryggisráðirtu er nú fyrir dyrum
að ræða um bann við vopnasölu til
írana vegna þess, að þeir hafa ekki
viljað fallast á ályktunina. Gera
þeir það að skilyrði, að írakar verði
fyrst lýstir upphafsmenn að ófriðn-
um.
Persaflóaríkin, sem um ræðir,
eru Saudi-Arabía, Kuwait, Qatar,
Bahrain, Oman og Sameinuðu
arabísku furstadæmin. Standa þau
öll með írökum og hafa dregist
sífellt meir og meir inn í átökin. í
lokayfirlýsingu fundarins sagði, að
rætt hefði verið um „eldflaugaárás-
ir írana og yfirgang þeirra við
Kuwaita og hermdarverkin, sem
íranir unnu skammt frá húsi Allah".
Með því síðarnefnda er átt við at-
burðina í Mekka í júlí sl. þegar
íranskir pílagrímar gengu berserks-
gang og nokkur hundruð manna
létu lífið.
Athygli vekur, að fundurinn forð-
aðist stór orð í gagnrýni sinni á
írani og því augljóst, að arabaríkin
vilja halda dyrunum opnum fyrir
hugsanlegum viðræðum við þá. Þá
var lýst yfir eindregnum stuðningi
við „uppreisn Palestínumanna" á
hemámssvæðum ísraela og þeim
heitin fjárhagsleg aðstoð. Utanrík-
isríkisráðherrum ríkjanna var
einnig veitt heimild til að vinna að
samstarfssamningi við Evrópu-
bandalagið og Japanir harðlega
gagnrýndir fyrir að leggja skatt á
hráolíu og olíuvörur.
Reuter
A úlfaveiðum í Frakklandi
Um síðustu helgi var þessi úlfur felldur í Frönsku Ölpunum en að
undanförnu hefur hann leikið bændur grátt og drepið fyrir þeim
fjölda fjár. Var raunar búist við, að gaupur eða hundahópur ætti hlut
að máli en það reyndist sem sagt vera úlfur. Em úlfar heldur sjald-
séð sjón í Frakklandi nú orðið en þeir eru algengari á Ítalíu og koma
stundum þaðan.
Margnerite Yourcen-
ar látin 84 ára að aldri
Eina konan sem kjörin hefur verið
í Frönsku akademíuna
Bar Harbor. Main. AP. New York Times.
enar, einn af Hr. ■:
eina konan I
sem hlotið Marguente
hefur kjör í Yourcenar
Frönsku akademiuna, lést á
eyjunni Mount Desert úti fyrir
Maine á aðfangadag jóla. Yo-
urcenar hafði búið í Maine í 40
ár. Hún var 84 ára að aldri og
iést af völdum heilablóðfalls.
Bókmenntakona
Marguerite Yourcenar var
heimsborgari og ijölhæf bók-
menntakona. Hún var þekktust
fyrir sagnaskáldskap, einkum
skáldsögu sína „Minningar Hadr-
ians“, sem út kom 1951. Meðal
annarra skrifa hennar má nefna
ritgerðir, ævisögur og ieikrit.
Yourcenar var af hollensku og
frönsku bergi brotin, fæddist í
Brussel og ólst upp í Frakklandi.
Hún var einkabarn Michel de
Crayencour og fyrri konu hans,
Femande de Cartier de Marchi-
enne. Nafnið Yourcenar, sem
skáldkonan tók sjálf upp sem rit-
höfundarnafn á þriðja áratug
aldarinnar, er orðaleikur með
nafnið Crayencour.
Yourcenar var í heimsókn hjá
vinum sínum í Bandaríkjunum,
þegar síðari heimsstyijöldin skall
á, og..ákvað að framlengja dvöl
sína þar. Hún hóf að kenna sam-
anburðarbókmenntir við Sarah
Lawrence College og stundaði
kennslustörf í áratug. Árið 1947
hlaut hún bandarískan ríkisborg-
ararétt, en hélt áfram hinum
franska.
Kjör hennar í Frönsku aka-
demíuna 1981 var heiður, sem
ekki hafði hlotnast nafntoguðum
kynsystrum hennar frönskum eins
og de Staél, Colette og fleiri, í
400 ára sögu akademíunnar.
í ávarpi, sem hún flutti við
þetta tækifæri, sagði Yourcenar,
að henni fyndist hún umkringd
„ósýnilegum hópi kvenna, sem
hefðu e.t.v. átt að hljóta þennan
heiður fyrir löngu, svo að mér
finnst hæfa að víkja til hliðar og
hleypa skuggum þeirra að“.
En hún álasaði akademíunni
ekki fyrir að hafa ekki veitt kon-
um rúm hjá sér áður.
„Það er einfaldlega í samræmi
við þá hefð að lofsyngja konuna,
en leyfa henni ekki að taka þátt
í leiknum," sagði hún.
Yourcenar þýddi enn fremur
bandarískan sálmakveðskap jafnt
og verk James Baldwin, nútíma-
verk gríska skáldsins Constantine
Cavafy, Henry James, Thomasar
Mann, Yukio Mishima og Virginiu
Woolf.
En skáldsaga hennar um róm-
verska keisarann Hadrian bar af
öðrum verkum hennar. Rithöfund-
urinn Stephen Koch skrifaði í
bókmenntatímarit The New York
Times í september 1985, að sagan
„er hrein náma hvejjum þeim, sem
hefur áhuga á sögu, mannúðar-
stefnu eða sálarfræði valdsins".
Þegar sagan var fyrst gefin út,
sagði hann, „var hún þegar í stað
talin með sígildum verkum síns
tíma“. Önnur verk hennar voru
minna þekkt, þar til hún var kjör-
in í akademíuna.
Yourcenar var aðeins mánað-
argömul, er hún missti móður
sína, og lét faðir hennar einka-
kennara svo til eingöngu sjá um
að kenna henni. Átta ára gömul
var hún farin að lesa Racine, og
meðan hún var enn á unglings-
aldri höfðu komið út eftir hana
tvær litlar ljóðabækur. Hún
menntaðist í klassískum fræðum
og sagði seinna, að verk sín væru
„sambland fræða og dulúðar“.
Þegar Marguerite Yourcenar
var orðin sjálfri sér ráðandi, var
hún vel efnum búin ung kona.
Hún ferðaðist vítt og breitt, skrif-
aði ritgerðir, ljóð og skáldsögur,
og hlaut góðar undirtektir gagn-
rýnenda sem skáldsagnahöfund-
ur. Eftir að hún settist að í
Bandaríkjunum árið 1950, keypti
hún hús á eyjunni Mount Desert
undan ströndum Maine — ásamt
vinkonu sinni Grace Frick. Frick,
sem þýddi mörg verka Yourcenar
á ensku, lést árið 1979.
TRYGGÐU GÆÐIN
-TAKTA KDDAK...
I djörfum dansi hjá Heiðari
w . mm * VWÍr ælÆVÆ
10viknanámskeiðhefjast í janúar.
Innritun í alla dansa í öllum flokkum
hefst 4. janúar.
ahJjkcti HeiðatJ fljttalítJJcnar